Bankasýslan telur sér ekki fært að birta lista yfir kaupendur að hlut ríkisins í Íslandsbanka

Stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins ber fyrir sig banka­leynd og að það sé óþekkt erlendis að upp­lýst sé um kaup­endur og hvað keypt sé í útboðum. Hann telur að ekki sé hægt að birta lista yfir kaup­endur.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: Skjáskot/Dagmál

„Við erum undir þessar reglur sett í Banka­sýsl­unni og þess vegna teljum við okkur ekki fært að birta þetta með þeim hætti sem að krafa stendur til. En við höfum hins vegar bent á það fyrir stjórn­völd að við gætum í næsta umgangi bara sett þetta sem skil­yrði í útboð­inu að það yrði til­kynnt eða upp­lýst um kaup­endur og kaupin eftir að útboði lýkur.“

Þetta segir Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, í þætti Dagmála á mbl.is sem birtur var í morgun þegar hann var spurður um hvort það væri ekki hægt að birta lista yfir þá 209 aðila sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn með 2,25 millj­arða króna afslætti.

Lárus sagði að Banka­sýslan hafi fengið lög­fræði­á­lit um þetta við­fangs­efni og álit frá Íslands­banka sjálfum. Jafn­framt hafi verið leitað álits hjá erlendum ráð­gjöfum stofn­un­ar­innar. „Það er ein­hlítt svar í sjálfu sér, það eru allar líkur á því að þetta falli undir banka­leynd og jafn­framt er þetta óþekkt í þessum erlenda praxís að menn upp­lýsi um kaup­endur og hvað keypt er.“

Bjarni hefur beðið um listann

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær að hann hafi beðið Banka­sýsl­una um að afhenda lista yfir þá sem keyptu. Að hans hálfu sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að list­inn verði birt­ur. „Bara ef lög stæðu í vegi fyrir því. Ég er að vona að nið­ur­staðan verði sú að við getum bara birt þetta.“

[adspot]Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á þingi í fyrra­dag að vand­inn við sölu­ferlið væri sá að það hafi ekki ríkt fullt gagn­­sæi um ferl­ið. „Hins vegar er það alger­­lega ljóst af minni hálfu að þegar rík­­is­­eign á borð við Íslands­­­banka er seld þá á að liggja fyrir hverjir keyptu. Það eru upp­­lýs­ingar sem íslenskur almenn­ingur á heimt­ingu á. Ef ein­hver tækn­i­­leg atriði valda því að Banka­­sýsla rík­­is­ins telur sig ekki geta birt þær upp­­lýs­ingar tel ég rétt­­ast að Alþingi geri við­eig­andi breyt­ingar á lagaum­hverfi þannig að unnt sé að birta þær því að annað gengur ekki.“

Tugir minni fjárfesta fengu að kaupa fyrir lágar upphæðir

Harðlega hefur verið gagn­rýnt að litlum aðilum sem upp­fylla skil­yrði þess að vera skil­greindir sem fag­fjár­festar hafi fengið að kaupa með afslætti í lok­uðu útboði. Alls 24 þeirra sem tóku þátt fengu að kaupa hlut fyrir tíu millj­­ónir króna eða minna, 35 keyptu fyrir tíu til 30 millj­­ónir króna og 20 keyptu fyrir 30 til 50 millj­­ónir króna. Því liggur fyrir 79 aðil­­ar, rúm­­lega helm­ingur allra þátt­tak­enda, keypti fyrir 50 millj­­ónir króna eða minna. Gagnrýnt hefur verið, meðal ann­ars á þingi, að nauð­syn­legt hafi verið að veita þessum aðilum aðkomu að þessu útboði í ljósi þess að marg­föld umfram­eft­ir­spurn var hjá stórum fjár­festum á borð við líf­eyr­is­sjóði og litlu fjár­fest­arnir voru að kaupa fyrir upp­hæðir sem séu þess eðlis að þeir hefðu ein­fald­lega átt að kaupa hluti á eft­ir­mark­aði, og á mark­aðs­verði.

Í kynn­ingu Banka­­sýsl­unnar fyrir ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál síð­ast­lið­inn föstu­dag var há hlut­­deild einka­fjár­­­festa rök­studd með því að áskriftir þeirra hefðu skertar á kostnað almennra fjár­­­festa í frumút­­­boð­inu á hlutum í Íslands­­­banka, sem fór fram í fyrra­­sumar en þá seldi ríkið 35 pró­­sent hlut í bank­an­­um.

Frávik sem sumir kalla afslátt

Lárus sagði í Dagmálum að það væri sölu­ráð­gjafa Banka­sýsl­unnar að ganga úr skugga um að þeir aðilar sem þeir komu með inn í útboðið upp­fylltu þau skil­yrði sem lög kalla á til að flokk­ast sem fag­fjár­festar. Hann sagði að það að litlir fjár­festa hafi fengið að njóta „þessa frá­viks, sem sumir kalla afslátt“, hafi ekki spila stóra rullu í heild­ar­söl­unni á bank­anum en alls seldi Banka­sýslan 22,5 pró­sent hlut fyrir 52,65 millj­arða króna.

[links]Í áður­nefndri kynn­ingu Banka­sýsl­unnar fyrir ráð­herra­nefnd­inni kom fram að fjöldi til­­­boða sem var tekið hafi verið 209. Þar af keyptu inn­­­lendir fjár­­­festar 85 pró­­sent af hlutnum fyrir sam­tals 44,8 millj­­arða króna, en erlendir aðilar 15 pró­­sent fyrir 7,9 millj­­arða króna.

Fjöldi inn­­­lendra fjár­­­festa sem fékk að kaupa voru 190 tals­ins. Þar af fengu 23 líf­eyr­is­­sjóðir að kaupa 37,1 pró­­sent þess sem selt var á 19,5 millj­­arðar króna. Alls 140 íslenskir einka­fjár­­­festar fengu að kaupa næst mest, alls 30,6 pró­­sent af því sem var selt á 16,1 millj­­arð króna. Alls 13 verð­bréfa­­sjóðir fengu að kaupa fyrir 5,6 millj­­arða króna og „aðrir fjár­­­fest­­ar“ frá Íslandi fyrir 3,5 millj­­arða króna.

Alls 15 fjár­­­festar keyptu fyrir meira en einn millj­­arð króna og sex keyptu fyrir á bil­inu 500 til 1.000 millj­­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár