Þrýst á að listi yfir litlu fjárfestana sem fengu að kaupa í Íslandsbanka á afslætti verði birtur

Hlut­hafar Íslands­banka munu þurfa að bera saman lista með á sext­ánda þús­und nöfnum til að finna út hvaða litlu fjár­festar fengu að kaupa í bank­anum. Sögur ganga um að miðl­arar hafi hringt í valda við­skipta­vini og hleypt þeim að kaupum með afslætti.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Íslands­banki tekur nú saman lista yfir hlut­hafa í bank­anum fyrir og eftir sölu á 22,5 pró­sent hlut í bank­anum í síð­ustu viku með rúm­lega fjög­urra pró­sent afslætti af mark­aðsvirði. Sá listi verður aðgengi­legur öllum hlut­höfum. Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í munn­legri skýrslu um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem fram fór í þing­inu á mið­viku­dag.

Bjarni sagði enn fremur að þar verði hægt „að bera saman hlut­haf­alist­ann eins og hann stóð fyrir söl­una og eins og hann stendur núna eftir söl­una.“ Auk þess sé von á ítar­legri sam­an­tekt frá Banka­sýslu rík­is­ins um söl­una sem yrði kynnt ráð­herra­nefnd um rík­is­fjár­mál á fundi sem fór fram í gær. „Ég hef enn fremur sent Banka­sýsl­unni bréf í því skyni að fá end­an­legan lista yfir úthlutun Banka­sýsl­unnar. Í anda gagn­sæis á öllum stigum máls­ins standa vænt­ingar mínar til þess að þessi gögn öll verði hægt að gera opin­ber nema lög standi því í vegi.“

Ástæða þess að Bjarni var að ræða þetta voru spurn­ingar stjórn­ar­and­stöð­unnar um hvaða litlu fag­fjár­festar fengu að kaupa í rík­is­banka með afslætti, en fyrir liggur að stór hluti þeirra 430 bjóð­enda sem var val­inn til að kaupa í Íslands­banka í síð­ustu viku voru einka­fjár­festar sem keyptu litla hluti.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Banka­sýslu rík­is­ins í gær­morgun og kall­aði eftir því að fá lista yfir þá sem fengu að kaupa í Íslands­banka í síð­ustu viku, en hún fer með 45 pró­sent hlut í bank­anum fyrir hönd almenn­ings í land­inu og sá um söl­una. Í svari for­stjóra hennar, Jóns Gunnars Jóns­sonar, sagði að hann gæti ekki veitt þær upp­lýs­ingar „á þess­ari stundu“. Kjarninn sendi sömu­leiðis fyr­ir­spurn á Íslands­banka og bað um hlut­haf­alista bank­ans. Ekki hefur borist svar við þeirri fyr­ir­spurn.

Hlut­hafar Íslands­banka voru 15.600 um síð­ustu ára­mót og eru því senni­lega um 16 þús­und í dag. Til að finna út hvaða litlu fjár­festar fengu að kaupa í Íslands­banka þarf að bera saman þá lista. Miðað við þær upp­lýs­ingar sem fram hafa komið geta fjöl­miðlar ekki fengið aðgang að list­anum nema að blaða­menn­irnir sem um biðja séu beinir hlut­hafar í bank­anum.

Ráðgjafar völdu minni aðila til að taka þátt

Alls 430 bjóð­endur fengu að kaupa hlut í bank­anum í lok­uðu til­boð­sút­boði sem fram fór á þriðju­dag í síð­ustu viku. Þeir greiddu alls 52,65 millj­arða króna fyrir hlut­inn, sem var 2,25 millj­arða króna afsláttur af mark­aðsvirði. Fyrir liggur að stórir stofn­ana­fjár­festar á borð við líf­eyr­is­sjóði og verð­bréfa­sjóði keyptu mest. En fjöl­mörgum minni aðilum var líka hleypt að.

[adspot]Flestir hinna svoköll­uðu „fag­fjár­festa“ sem fengu að kaupa í bank­anum með afslætti eru nefni­lega ein­stak­lingar sem voru metnir hæfir til þátt­töku af þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem valdir voru sem sölu­ráð­gjaf­ar, og eru í mörgum til­vikum þau sömu og umræddir aðilar eiga í við­skiptum við dags dag­lega. Fyr­ir­tækið á þá að leggja mat á sér­­fræð­i­kunn­áttu, þekk­ingu og reynslu við­kom­andi og hvort hún veiti næg­i­­lega vissu fyrir því að hann geti sjálfur tekið ákvarð­­anir um fjár­­­fest­ingar og skilji áhætt­una sem í þeim felst.

Til að þessir ein­stak­l­ingar geti talist fag­fjár­­­festar þurfa þeir að upp­­­fylla að minnsta kosti tvö af þremur skil­yrð­um: í fyrsta lagi að hafa átt umtals­verð við­­skipti á við­eig­andi síð­­ast­liðið ár, eða að með­­al­tali a.m.k. tíu sinnum á hverjum árs­fjórð­ungi, í öðru lagi að fjár­­­mála­­gern­ingar þeirra og inn­i­­stæður séu sam­an­lagt virði 500 þús­und evra (71 milljón króna) eða meira eða í þriðja lagi að fjár­­­festir hafi gegnt eða gegni, í að minnsta eitt ár, stöðu í fjár­­­mála­­geir­­anum sem krefst þekk­ingar á fyr­ir­hug­uðum við­­skiptum eða þjón­ust­u.

Innan fjár­mála­geirans er mikið rætt um að það hverjir hafi verið valdir til þátt­töku í þessu ferli af ráð­gjöfum Banka­sýsl­unnar og á Alþingi í mið­viku­dag voru lagðar fram spurn­ingar um það. Auk þess var kallað eftir skýr­ingum á nauð­syn þess að ein­stak­lingar sem versla hluta­bréf fyrir nokkrar millj­ónir króna í hverjum við­skiptum hafi verið hleypt inn í þessi afslátt­ar­við­skipti þegar þeir hefðu alveg getað átt slík við­skipti á eft­ir­mark­aði ef þeir vildu eign­ast hlut í Íslands­banka.

„Fáum við að sjá þessi nöfn?“

Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra út þann hóp lít­illa fjár­festa sem fékk að kaupa í Íslands­banka í þing­inu á mið­viku­dag. Hún benti á að hug­myndin á bak­við til­boðs­ferli, sem er sú sölu­teg­und sem ráð­ist var í, væri að það væri rétt­læt­an­legt að veita afslátt frá mark­aðsvirði vegna þess að inn væru að koma stórir aðilar, sem væru að kaupa stóran bita og taka með því mikla mark­aðs­á­hættu. Upplýst hefði verið í gegnum inn­herj­a­lista að aðilar hafi fengið að kaupa 55 millj­óna króna hlut, 27 millj­óna króna hlut, 11 millj­óna króna hlut. Þar er um að ræða Ara Dan­í­els­son, stjórn­ar­mann í Íslands­banka, sem keypti fyrir 55 millj­ónir króna, Rík­harð Daða­son, sam­býl­is­mann Eddu Her­manns­dóttur mark­aðs- og sam­skipta­stjóra bank­ans, sem keypti fyrir tæpar 27 millj­ónir króna og Ásmund Tryggva­son, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja og fjár­fest­inga­sviðs, sem keypti fyrir rúmar 11 millj­ónir króna en við­skipti þeirra voru til­kynnt til Kaup­hallar Íslands vegna tengsla þeirra.

Í ræðu sinni sagði Kristrún að þessir aðilar hefðu hæg­lega getað keypt á eft­ir­mark­aði. „Þetta eru ekki stórir, umfangs­miklir lang­tíma­fjár­festar sem voru að taka á sig mikla mark­aðs­á­hættu. Hver er til­gang­ur­inn með því að hleypa svona aðilum að í afslátt? Verða þessir aðilar, þessir litlu aðilar sem fljóta svona með til hliðar, á þessum lista sem verður birtur eða er þetta bara þessi klass­íski listi sem kemur fram yfir þá sem eru með langstærstu hlut­ina?“

[links]Bjarni útskýrði til­gang­inn í svari sínu en svar­aði ekki hvort list­inn yfir litlu aðil­anna yrði birtur. Kristrún ítrek­aði því seinni spurn­ing­una og sagði það ekki „gott í ferli sem á að vera gagn­sætt og yfir alla gagn­rýni hafin að það ber­ist slúður, gróu­sögur, upp­lýs­ingar um að sumir hafi fengið sím­tal frá sínum verð­bréfa­miðl­ara og aðrir ekki. Hug­myndin á bak við til­boðs­verð af þessu tagi þar sem verið er að grípa inn í mark­aðs­verð – í almenna útboð­inu á sínum tíma var bank­inn ekki kom­inn á markað – er að það séu góð og gild rök fyrir slíku. Ég get ekki séð, þegar var svona mikil umfram­eft­ir­spurn hjá stórum aðilum sem vildu fá inn, að það hefði átt að hleypa svona litlum fjár­festum að. Fáum við að sjá þessi nöfn? Munu þau vera á þessum lista og hvenær kemur hann?“

Bjarni end­ur­tók að Íslands­banki myndi gera aðgengi­legan allan hlut­haf­alist­ann eins og hann var fyrir útboðið og eins og hann líti út eftir útboðið. „Ég hef sömu­leiðis kallað eftir en ekki enn fengið nið­ur­stöðu úthlut­un­ar­innar og vil gera hana aðgengi­lega og mun gera það, nema mér séu ein­hverjar hömlur settar með lögum til þess að gera það, sem ég vona og trúi ekki að sé.“

Bjarkey vonar að kerfið stoppi ekki birtingu

Kristrún spurði Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­mann Vinstri grænna og for­mann fjár­laga­nefndar, líka út í sama mál og hvernig fram­kvæmdin með litlu fjár­fest­anna slægi hana.

Bjarkey svar­aði því til að aðkoma minni fjár­festa hefði ein­fald­lega ekki verið rædd í fjár­laga­nefnd þegar verk­lagið á útboð­inu var kynnt fyrir henni. Það hafi mögu­lega verið vegna þess að nefnd­ar­menn hafi hugsað stórt. „Við veltum alltaf fyrir okkur hverjir það væru sem gætu keypt og hugs­uðum fyrst og fremst kannski um líf­eyr­is­sjóð­ina og ein­hverja almenna stóra fjár­festa sem við sæjum fyrir okkur sem lang­tíma­fjár­festa. Ég ætla ekki að halda því fram fyrr en ég er búin að fá ein­hver svör hvernig það bar til, aðkoma þess­ara minni fjár­festa. Hvernig þeir voru valdir. Ég ætla ekki að fella neinar stórar skoð­anir um hvort það sé heppi­legt eða ekki heppi­legt.“

Bjarkey tók þó undir með Kristrúnu um að það væri óheppi­legt að um fyr­ir­komu­lagið ríki óskýr­leiki og að það treysti ekki stoðir undir því að banka­kerfið standi undir því trausti sem vilji er til að það hafi. „Það er kannski ang­inn sem ég hef áhyggjur af í þessu sam­hengi.“

Hún bætti svo við að það yrði að ýta af fullum þunga eftir því að list­inn yfir alla sem fengu að kaupa yrði birtur. „Ég vona svo sann­ar­lega að það sé ekk­ert innan kerf­is­ins sem stoppar okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár