Norður-Kórea: Aðgerðir SÞ eins og „stríðsyfirlýsing“

Stjórn­völd í Norður-Kóreu segja Sameinuðu þjóðirnar og Banda­ríkin beita órétt­læt­an­legum aðgerðum.

Stjórn­völd í Norður-Kóreu segja nýjustu efnahags­þvinganir gegn landinu, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt, jafngilda „stríðs­yfirlýsingu“ gegn landinu. Aðgerðirnar koma meðal annars nær alveg í veg fyrir að landið geti flutt inn eldsneyti. Þetta hefur lamandi áhrif á efnahagslíf landsins.

Í yfir­lýsingu stjórn­valda í Norður-Kóreu segir að landið muni halda áfrm kjarnorku­tilraunum sínum, enda sé markmið þeirra að styrkja varnar­kerfi landsins með þeim eina mögulega hætti sem það getur, sem sé að búa yfir lang­drægum flaugum og kjarnorku­vopnum. Ógnin frá Banda­ríkjunum sé það sem Norður-Kórea sé að verja sig fyrir.

Spennan á Kóreu­skaga hefur magnast mikið að undan­förnu, og eru heræfingar Suður-Kóreu og Banda­ríkjanna á svæðinu við landa­mærin, viðvarandi. Þá hafa stjórn­völd í Japan krafist þess að alþjóða­samfélagið beiti Norður-Kóreu hörðustu mögulegu þvingunum.

Kína og Rússland, helstu bandamenn Norður-Kóreu í gegnum tíðina, hafa stutt aðgerðir Sameinuðu þjóðanna og því munu aðgerðirnar nú auka enn á einangrun landsins.

Öryggis­ráðið samþykkti aðgerðirnar einróma með öllum 15 atkvæðum aðildar­ríkjanna í ráðinu.

Íbúar í Norður-Kóreu eru 25,3 milljónir en í Suður-Kóreu tæplega 52 milljónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár