Dómstóll í Havaí hafnar ferðabanni Trumps

Donald Trump á enn í vandræðum með að fá dómstóla til að gangast við tilskipunum forseta­embættisins.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Derrick Watson, dómari við alríkis­dómstólinn í Havaí, hefur lagt tíma­bundið bann á tilskipun Donalds Trumps Bandaríkja­forseta, um að setja 90 daga ferðabann á fólk frá sex ríkjum þar sem múslimar eru í meirihluta, og 120 daga bann á flótta­menn.

Samkvæmt umfjöllun New York Times, hefur Hvíta húsið ekki ennþá brugðist við niðustöðunni, en Trump rökstuddi hana einkum með því að hætta væri á því að hryðu­verkamenn kæmust inn í landið ef ekki yrði lokað fyrir ferðir fólks frá löndunum sex.

Fyrri tilskipun Trumps, frá 27. janúar, um ferðabann borgara frá sjö ríkjum var dæmd ólögmæt, og því lagði hann fram aðra tilskipun, sem var lítillega breytt og opnað á ferðir fólks frá Írak.

Löndin sem um ræðir og tilskipunin nú nær til, eru Jemen, Sómalía, Súdan, Íran, Líbía og Sýrland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár