Verðhrun Facebook heldur áfram

Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, hefur verið boðaður í yfirheyrslu hjá Banda­ríkjaþingi þar sem rætt verður um hvernig fyrir­tækið fer með gögn notenda.

Verð­miðinn á Facebook hefur fallið um 80 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 8 þúsund milljörðum króna, á undan­förnum tveimur vikum.

Spjótin hafa beinst að félaginu eftir að greint var frá því að fyrir­tækið Cambridge Analytica hefði nýtt sér gögnum um notendur Facebook, samtals um 50 milljónir manna, meðal annars í vinnu fyrir framboð í kosningum, bæði í Banda­ríkjunum og Bretlandi.

Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, hefur nú verið gert að koma fyrir þingnefnd í Banda­ríkjunum og svara spurningum um hvernig fyrir­tækið fer með gögn notenda. Zuckerberg segir að nú þegar sá hafin ítarleg rannsókn á því hvort skilmálar Facebook hafi verið brotnir eða lög um persónu­vernd.

Hann hefur beðist opinber­lega afsökunar á því að fyrir­tækið kunni að hafa brugðist trausti notenda, en segir að rannsókn muni leiða sann­leikann í ljós.

Í gær lækkaði verðið á Facebook um tæplega 5 prósent, og nemur markaðs­virði fyrir­tækisins rúmlega 440 milljörðum. Fyrir aðeins 13 dögum var það 520 milljarðar Bandaríkja­dala, eða um 52 þúsund milljarðar króna.

Samkvæmt umfjöllun Bloomberg óttast fjár­festar nú hið versta, þegar kemur að horfum Facebook og jafnvel einnig fleiri tækni­fyrirtækja. Óttinn snýr meðal annars að því að nýtt regluverk muni gera það að verkum að tækni­fyrirtækin geti ekki nýtt gögn með sama hætti go áður, sem geri þeim erfitt fyrir í rekstri.

Markaðs­virði Amazon, Apple og Alphabet (Google) lækkaði nokkuð mikið í gær, eða á bilinu 2,5 til tæplega 5 prósent. Í umfjöllun Bloomberg var lækkunin skýrð með því, að fjár­festar óttist að tækni­fyrirtækinu muni þurfa að breyta starfsemi sinni og takast á við hertari regluverk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár