Ólafur Ragnar stoppar Sigmund Davíð

Ólafur Ragnar Grímsson forseti synjaði Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni forsætis­ráðherra um heimild til að boða kosningar, eins og Sigmundur hótaði á fundi með Bjarna Benedikts­syni.

Sigmundur á leið af fundi
Sig­mundur á leið af fundi For­set­inn synj­aði beiðni Sig­mundar. Mynd: Kristinn Magnússon

Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur stoppað tilraun Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar forsætis­ráðherra til að nota boðun kosninga sem vopn í átökum við Sjálfstæðis­flokkinn.

Sigmundur Davíð hafði flýtt fundi sínum með forsetanum eftir fund sinn með Bjarna Benedikts­syni í morgun, þar sem hann hótaði Bjarna kosningum ef hann nyti ekki stuðnings sem forsætis­ráðherra.

Sigmundur þurfti að sækja umboð til að boða kosningar hjá forseta Íslans, en forsetinn sagði nei. 

„Forsætis­ráðherra gat ekki fullvissað mig um það hver væri afstaða Sjálfstæðis­flokksins til þeirrar beiðni. Í ljósi þess tjáði ég forsætis­ráðherra það að ég væri ekki tilbúinn til þess nú, eða án þess að hafa rætt við formann Sjálfstæðis­flokksins, að veita honum heimild til þless að rjúfa þing,“ sagði Ólafur Ragnar á fundi með frétta­mönnum í hádeginu. 

Sigmundur Davíð greindi frá fyrirætlun sinni að stefna að þingrofi ef hann nyti ekki stuðnings á Facebook í morgun. Hann hafði ekki ráðfært sig við þingflokk Framsóknar­flokksins fyrir það. „Hann hefði kannski átt að segja þing­flokknum frá þessu fyrst,“ sagði Karl Garðarsson í fréttum RÚV vegna yfir­lýsingar formannsins.

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson Neitaði að afhenda Sigmundi vopnið sem hann ætlaði sér að nota á Sjálfstæðis­flokkinn.

Ekki við hæfi hjá Sigmundi

Í ljósi þess að Sigmundur opinberaði þá fyrirætlun sína ákvað forseti Íslands að tjá sig um fundinn með Sigmundi. 

Hann sagði það ekki hafa verið auðvelda ákvörðun að gera slíkt en í ljósi yfir­lýsingar Sigmundar Davíð væri eðlilegt að forseti skýrði frá afstöðu sinni, þar sem hér hefði verið reynt að draga forsetann inn í valda­baráttu á milli stjórn­mála­flokkanna og  slíkt væri ekki við hæfi.

„Það hefur verið regla í íslenskri stjórn­skipun að fundir forseta og forsætis­ráðherra fari fram í trúnaði og án þess að gerð sé opinber grein fyrir því. Þess vegna var það í sjálfu sér ekki einföld ákvörðun að ákveða að tala við ykkur. En eins og ég tjáði forsætis­ráðherra í ljósi þess að hann gerði ykkur og almenningi á Facebókarsíðu sinni að ég held grein fyrir því að hann stendi að þingrofi og myndi beita því afli í viðræðum sínum við samstarfs­flokkinn að þá væri á vissan hátt verið að draga forsetann með ákveðnum hætti inn í deilur eða aflraunir á milli stjórn­mála­flokkanna á ákveðnum tíma­punkti og það er ekki við hæfi að forsetinn sé með þeim hætti dreginn inn í atburðarrás eða aflraunir sem á sér stað frá einni klukku­stund til annarar,“ sagði Ólafur Ragnar á blaðamanna­fundinum, og hélt áfram að ávíta forsætis­ráðherra. „Þess vegna hefði mér fundist óeðlilegt ef ég hefði ekki gert grein fyrir því hvert svar mitt var fyrst að lagt var upp í förina hingað til Besssastaða í dag á þann hátt að fyrirfram fjalla um erindið með þeim hætti sem gert var og tilkynna að það ætti að beita því í viðræðum við  samstarfs­flokkinn síðar í dag.“

Ólafur Ragnar Grímsson hefur því ekki aðeins tekið púðrið úr hótun Sigmundar Davíðs heldur einnig opinberað fundar­efnið með honum með óvenju­legum hætti.

Sigmundur á Bessastöðum
Sigmundur á Bessa­stöðum Forsætis­ráðherra flýtti fundi með forsetanum til að biðja um umboð til að boða kosningar, en fékk neitun.

Sigmundi lá á

Sigmundi Davíð virðist hafa legið mikið á að fá heimild til að boða til kosninga eftir fund hans með Bjarna Benedikts­syni. Ólafur Ragnar segir frá því að Sigmundur hafi viljað flýta fundi með honum.

„Ég hafði nú ekki ætlað mér að halda hér í dag blaðamanna­fund á Bessa­stöðum, en ég tel óhjákvæmilegt í ljósi ummæla forsætis­ráðherra fyrr í dag og þess fundar sem við höfum átt hér á Bessa­stöðum að ég geri ykkur og þjóðinni um leið skýra grein fyrir mínum sjónar­miðum og afstöðu til þess erindis sem hann kom með hingað til Bessa­staða. Við töluðum saman í gær, ég var á leið til landsins, í síma, og ákváðum að við myndum hittast hér klukkan eitt í dag. Svo barst mér rúmlega ellefu í morgun að forsætis­ráðherra vildi koma strax hingað til Bessa­staða og ég ákvað að verða við þeirri ósk og frestaði fundi sem ég hafði ákveðið með forseta þings Kýpur.“

Ólafur Ragnar mun síðar í dag funda með Bjarna Benedikts­syni, formanni Sjálfstæðis­flokksins, og forseta Alþingis. Sigmundur Davíð er hins vegar á leið á þing­flokksfund hjá Framsóknar­flokknum þar sem hann mun væntanlega þurfa að útskýra gjörðir sínar.

Einangraður Sigmundur á hlaupum

Útspil Sigmundar Davíðs í morgun hefur því mistekist og leitt til þess að hann er enn einangraðari en áður.

Uppfært kl. 13.40: Sigmundur yfirgaf Stjórnar­ráðið og neitaði að svara spurningum frétta­manns RÚV. Hann sagði að frétta­maður RÚV ætti að líta á Facebook. „Kíktu bara á Facebook, það er jafnvel betri heimild en sumt sem maður heyrir á blaðamanna­fundum.“ Sigmundur stefndi síðan á Alþingis­húsið, þar sem hann smeygði sér í gegnum hóp frétta­manna og sagðist ætla að tala við þá síðar.

Bless, bless
Bless, bless Forsætis­ráðherra var fljótur að láta sig hverfa eftir fund með forsetanum og neitaði að ræða við frétta­menn, en lét þó hafa eftir­farandi eftir sér: Við sjáum til með þetta allt saman, bless, bless.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár