Óeirðir og mótmæli í Bandaríkjunum eftir að niðurstöður kosninga voru ljós

Mikil reiði braust út víða í Banda­ríkjunum í nótt eftir að sigur Donalds Trump í forseta­kosningum þar í landi varð ljós. Víða um landið er lögreglan í viðbragðs­stöðu vegna ástandsins.

Borgaraleg óhlýðni
Borg­ara­leg óhlýðni Kona gengur fram­hjá rusla­tunnum sem log­uðu í mót­mælum í Oakland í Kalíforníu. Mynd: Reuters

Ósáttir borgarar hópuðust saman í Banda­ríkjunum og mótmæltu í nótt eftir að niður­stöður forsetakosningana lágu fyrir. Á sumum stöðum urðu mótmælin að óeirðum þar sem hópar fólks kveiktu elda og brutu rúður. 

Mótmæli brutust út víðs vegar um landið, en voru þó mest áberandi meðal háskóla­nema í Kaliforníu í Oregon-ríki, þar sem Hillary Clinton fór með sigur af hólmi. Það dugði þó ekki til að tryggja henni sigur í forseta­kosningunum. 

„Til fjandans með Donald Trump!“

Ósáttir kjósendur tóku reiði sína út með því að brenna fána og hrópa: „Ekki minn forseti!“ [e. Not my president,] „Til fjandans með Donald Trump!“ [e. Fuck Donald Trump] og „Fólkið, sameinað mun aldrei verða sundrað,“ [e. The people, united, will never be divided.]

Víða í Banda­ríkjunum er lögreglan í viðbragðs­stöðu vegna hættu á óeirðum, en talið er að fólk muni sætta sig við úrslit kosningana og mótmælunum muni ljúka fljótlega.

Sigur Trumps í nótt kom mörgum á óvart, því undan­farnar vikur hefur Clinton haft yfir­höndina samkvæmt könnunum. Hún var öldungar­deildar­þingkona á árunum 2001 til 2009, innan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna undir stjórn Obama frá 2009 til 2013 og fylgdi eigin­manni sínum, Bill Clinton, í Hvíta húsið þegar hann var kjörinn forseti. Hinn nýkjörni forseti, Donald J. Trump, hefur hins vegar aldrei komið nálægt stjórn­málum áður. 

Tef Poe, áberandi talsmaður Black Lives Matter hreyfingarinnar sem berst fyrir auknu réttlæti til handa svörtum í Band­ríkjunum, vakti talsverða athygli í mars síðastliðnum. Þá lýsti hann því yfir á Twitter að færi svo að Trump sigraði þá yrðu óeirðir allstaðar. „Ágæta hvíta fólk. Ef Trump sigrar eru ungir blökku­menn eins og ég aldeilis harðákveðnir í að hefja óeirðir hvert sem við förum. Ég er bara að láta ykkur vita.“ Tef Poe eyddi síðar tístinu og reyndi að sverja það af sér.  

Tístið
Tístið þar sem Tef Poe hótar aðgerðum.

 

Fram eftir nóttu leit út fyrir að Clinton færi með sigur af hólmi, þar til það lá fyrir að Trump hafði óvænt sigrað ríki sem tryggðu honum sigurinn, eins og Flórída. Stuðnings­menn hans þar voru hæstánægðir með niður­stöður kosninganna.

Í Portland sýndu mótmælendur hins vegar óánægju sína með því að brenna fána landsins:

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakjör í BNA 2016

ErlentForsetakjör í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?

Á dögunum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þingmaður Pírata, úr ræðustól á Alþingi að Donald Trump Bandaríkja­forseti væri fasisti. Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðis­flokksins andmælti því, og nokkrir aðrir sömuleiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vefsíðan Slate viðtal sem blaða­maðurinn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræðinginn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svipuðum slóðum og fasistar eða nasistar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár