ÁTVR og Reitir hafa ekki náð saman og „ólíklegt“ að það verði Vínbúð á Fiskislóð

Samninga­viðræður ÁTVR um að taka húsnæði í eigu Reita við Fiskislóð 10 á leigu undir Vínbúð hafa ekki skilað árangri. Atvinnu­húsnæðið, sem er í eigu Reita, hefur verið auglýst til leigu á fasteigna­vefjum.

Ólíklegt er að Vínbúð opni á Fiskislóð 10 á Granda, samkvæmt aðstoðarforstjóra ÁTVR.
Ólíklegt er að Vínbúð opni á Fiski­slóð 10 á Granda, sam­kvæmt aðstoð­ar­for­stjóra ÁTVR. Mynd: Bára Huld Beck

ÁTVR hefur ekki náð að komast að samkomu­lagi um leigu­samning við eigendur atvinnu­húsnæðis að Fiskislóð 10 á Grand. Það húsnæði var það eina sem sem uppfyllti skilyrði um stað­setningu af þeim fjórum kostum sem boðnir voru fram eftir að ÁTVR auglýsti eftir leigu­húsnæði miðsvæðis í Reykjavík í haust.

Sigrún Ósk Sigurðar­dóttir aðstoðar­forstjóri ÁTVR stað­festir við Kjarnann að ekki hafi náðst samkomulag við húseigendur og segir að eins og staðan sé í dag sé „ólíklegt að það verði opnuð Vínbúð á Fiskislóð 10“.

Það vakti athygli blaða­manns atvinnu­húsnæðið við Fiskislóð, sem er í eigu Reita, hefur verið auglýst til leigu á fasteignavef mbl.is og eflaust víðar.

„Það er rétt ályktað hjá þér að það hefur ekki náðst samkomulag við húseigendur á Fiskislóð 10,“ segir Sigrún Ósk í skriflegu svari til blaða­manns, sem einnig spurði hvort í ljósi þessa væru einhver frekari tíðindi af húsnæðis­málum Vínbúðarinnar í miðborg Reykja­víkur. Svo er ekki.

„Engin önnur tíðindi en við höldum áfram að vinna með málið,“ segir Sigrún Ósk. Í haust óskuðu Ríkiskaup fyrir hönd ÁTVR eftir því að taka á leigu um 400-600 fermetra atvinnu­húsnæði undir nýja Vínbúð á svæði sem „afmarkast af Snorra­braut, Hverfis­götu, Tryggva­götu, Geirsgötu og til sjávar í norður“, eins og það var orðað í auglýsingu á útboðs­vefs hins opinbera.

Fiskislóð 10 var einn þeirra kosta sem boðinn var fram, en einnig var boðið fram húsnæði við Hall­gerðargötu 19-23, Hringbraut 119-121 og á Hall­veigarstíg 1, en engin hinna þriggja stað­setninganna uppfyllti skilyrði ÁTVR um stað­setningu undir nýja Vínbúð.

Samfara leit að nýju plássi undir Vínbúð miðsvæðis í borginni hefur ÁTVR verið með það til skoðunar að loka mögulega Vínbúðinni í Austur­stræti. „Aust­ur­stræt­is­búðin er óhent­ug. Hún er á tveimur hæð­um, við erum með lag­er­inn niðri, og svo er bara mjög erfitt um flutn­inga til og frá búð­inn­i,“ hafði Viðskipta­blaðið eftir Sig­rúnu Ósk í október í fyrra.

Borgarstjóri handsalar miðborgarbúð við forstjóra ÁTVR

Rúmum mánuði fyrir borgar­stjórnar­kosningar sagði Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri þó frá því að hann hefði átt fund með Ívari J. Arndal forstjóra ÁTVR, þar sem handsalað hefði verið að „að búðin í Aust­ur­stræti myndi ekki loka þrátt fyrir að samn­ingar næð­ust á Grand­an­um“.

Borgar­stjórinn sagði jafn­framt frá því að for­stjóri ÁTVR hefði upp­lýst að ef Aust­ur­stræt­inu yrði lokað „yrði aug­lýst eftir 1-2 vel stað­settum en minni versl­unum á mið­borg­ar­svæð­inu til að koma í stað­inn“ og þá kom einnig fram í Twitter-færslum Dags að ÁTVR hefði fengið skipulags­ráðgjafa með sér í lið til að vinna að mörkun stefnu um stað­setningu Vínbúða.

Nokkur umræða hafði áður skapast um mögulegan flutning Vínbúðarinnar úr hjarta miðborgarinnar og ÁTVR hlotið nokkra gagnrýni fyrir að gera það að skilyrði fyrir stað­setningu nýrrar búðar að þar væri nóg af bíla­stæðum sem mætti sérmerkja fyrir viðskipta­vini búðarinnar.

Umræða um hið sama átti sér sömu­leiðis stað þegar Vín­búð­inni í Borg­ar­túni var lokað í fyrra og þá hafa fleiri ákvarð­anir ÁTVR um stað­setningar versl­ana sætt gagn­rýni á umliðnum árum, til dæmis stað­setn­ing nýrrar versl­unar fyr­ir­tæk­is­ins í Kaup­túni í Garða­bæ, en áður var ÁTVR með útibú á Garða­torgi. Bæj­ar­yf­ir­völd í Garðabæ furð­uðu sig á því að ÁTVR vildi ekki opna verslun mið­svæðis í bæn­um. Einnig mætti nefna brott­hvarf ÁTVR úr Firðinum í Hafnar­firði og yfir í Hellu­hraun, sem er fremur bílmiðaður verslunar­kjarni.

Það er Grandinn svo einnig, en nú er sem áður segir „ólíklegt“ að ný Vínbúð opni þar og allt á huldu hvar ný Vínbúð á miðborgar­svæðinu verður staðsett, ef af verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár