Trump verður ákærður af Bandaríkjaþingi

Donald Trump verður ákærður af fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings fyrir brot í starfi. Honum er gefið að hafa misbeitt valdi sínu og fyrir að reyna að torvelda rannsókn þeirra sem eiga að veita honum aðhald.

Forsvars­menn Demókrata í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings í tilkynntu í dag að þeir myndu leggja fram ákærur á hendur Donald Trump fyrir embættis­brot. Hann er þriðji forsetinn í sögu Banda­ríkjanna sem er ákærður fyrir embættis­brot. Hinir tveir, Andrew Johnson og Bill Clinton, voru báðir sýknaðir.

Ákæru­liðirnir eru tveir. Annars vegar er Trump gefið að hafa misnotað vald sitt sem forseta þegar hann beitti ráðamenn í Úkraínu þrýstingi til að rannsaka annars vegar samsæris­kenningu um að inngrip í síðustu forseta­kosningum í Banda­ríkjunum, árið 2016, ættu rætur sínar að rekja til Úkraínu en ekki Rússlands. Þetta gerði Trump með því að fara fram á rannsókn á Joe Biden, fyrrum vara­forseta Banda­ríkjanna og einn þeirra sem líklegastur þykir til að verða fram­bjóðandi demókrata í næstu forseta­kosningum, sem fram fara í nóvember 2020. Trump er gefið að hafa haldið aftur hundruð milljóna dala í hernaðarstuðingi við Úkraínu þar til að hann fékk ofan­greindu fram.

Hins vegar er Trump gefið að hafa hindrað fulltrúa­deild þingsins í eftirlits­hlutverki sínu. „Enginn, ekki einu sinni forsetinn, er yfir lög hafin, “ sagði Jerry Nadler, dómsmála­nefndar fulltrúa­deildar Banda­ríkja­þingsins, þegar ákvörðunin um að ákæra Trump var kynnt í dag. Á meðal annarra sem tóku til máls á blaðamanna­fundinum voru Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúa­deildinni, og Adam Shiff, formaður leyni­þjónustu­nefndar fulltrúa­deildar Banda­ríkjaþings. Schiff sagði að ákvörðunin um að ákæra Trump væri nauðsynleg vegna þess að hann teldi að önnur grein stjórnar­skráar Banda­ríkjanna veitti honum heimild til að gera hvað sem er.

Trump átti sjálfur von á ákærunum og kallaði þær „brjálæði“ í tísti fyrr í dag.

Fyrir fimm dögum var tilkynnt um ákvörðun um að hefja und­ir­bún­ing ákæru á hendur for­set­anum byggði meðal ann­ars á mati þriggja laga­pró­fess­ora við Standford, Harvard og University of North Carolina, sem komu fyrir Banda­ríkja­þing í gær og sögðu frá sínu mati á stöðu for­set­ans, vegna sam­skipta hans við yfir­völd í Úkra­ínu.

Það var mat þess­ara pró­fess­ora allra, að Trump hefði gerst brot­legur við stjórn­ar­skrána, og að hann hefði tekið sér­hags­muni sína fram yfir hags­muni þjóð­ar­inn­ar, og mis­beitt valdi sínu með það að mark­miði að ná fram hlutum fyrir sig per­sónu­lega.

Ef þetta er ekki brot, þá er ekk­ert brot, sögðu þessir þrír fram­an­greindu pró­fess­orar meðal ann­ar­s.

Með fyrr­nefndu ákæru­ferli (e. impeachment) geta þing­menn opin­ber­lega sótt gegn emb­ætt­is­mönnum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Búist er við því að Repúblikanar muni reyna með öllum ráðum að verja for­set­ann, og hafna þeim mála­til­bún­aði að Trump hafi brotið af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár