Zuckerberg: Ég stofnaði Facebook og ber ábyrgð á mistökunum

Mark Zuckerberg hefur tjáð sig um þau mistök sem miðillinn hefur gert varðandi verndun á gögnum notenda.

Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, birti á Facebook síðu sinni yfir­lýsingu fyrir stundu, þar sem hann fjallar um málið sem snýr að söfnun Cambridge Analytica á gögnum frá Facebook, sem síðan voru notuð í kosninga­baráttum viðskipta­vina fyrir­tækisins, þar á meðal í Brexit kosningunum í Bretlandi og forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum haustið 2016.

Zuckerberg segir að það hafi verið á ábyrgð Facebook að vernda gögn notenda, en eins og fram hefur komið þá er Cambridge Analytica talið hafa misnotað gögn sem fyrir­tækið komst yfir, og brotið með því bæði skilmála Facebook og persónuverndarlög.

„Það er á okk­ar ábyrgð að vernda gögn­in og ef við get­um það ekki þá eig­um við ekki skilið að þjóna ykk­ur. [...] Ég hef reynt að kom­ast að því hvað gerðist í raun og veru og hvernig hægt er að sjá til þess að þetta ger­ist ekki aft­ur [...] En við gerðum einnig mis­tök og það þarf að vinna áfram við að ráða fram úr vand­an­um. Við þurf­um að bæta okk­ur og gera það,“ segir Zuckerberg í yfir­lýsingu sinni.

Hann segir að trúnaðar­brestur hafi orðið á milli Facebook, Cambridge Analytica og Aleksandr Kogan, forritara.

Zucker­berg hét því að kynna til sög­unn­ar breyt­ing­ar sem munu gera smá­for­rit­um frá þriðja aðila erfiðara fyr­ir varðandi söfn­un á upp­lýs­ing­um um not­end­ur Face­book.

Rann­sóknir eru nú hafnar á starfsemi Cambridge Analytica, bæði í Bretlandi og Banda­ríkjunum, en talið er að fyrir­tækið hafi komist yfir persónu­upplýsingar hjá yfir 50 milljónum notenda, og nýtt í þeim tilgangi að hafa áhrif á kjósendur.

Markaðs­virði Facebook hefur fallið nokkuð undan­farna daga og er nú tæplega 500 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 50 þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár