Norðmenn vilja afglæpavæða fíkniefnaneyslu

Polítísk samstaða er í Noregi um að auka við stuðning við fíkla og horfa þá sérstak­lega til þess að hjálpa þeim í gegnum heilbrigðis­kerfið. Liður í þessu er að afglæpa­væða neysluna.

Pólitísk samstaða er að nást um það í Noregi að aðstoða fíkla meira en gert hefur verið með mark­vissari heilbrigðis­þjónustu og stefnu­mótun á sviði lýðheislu. Þá er einnig horft til þess að afglæpa­væða neyslu á fíkni­efnum.

Þetta kemur fram í Verdens Gang og er þar meðal annars vitnað til viðhorfa innan Sósíalíska vinstri flokksins, þar sem fyrst og síðast er lögð áhersla á að það verði að hjálpa fíklum en ekki refsa þeim.

Samstaða, sem nú virðist vera að nást fram innan stjórn­málaflokka í Noregi, byggir á vinnu milli Hægri­flokks Ernu Sjöberg, forsætis­ráðherra Noregs, og síðan þriggja vinstri flokka, Verkamanna­flokksins, Vinstri­flokksins og Sósíalíska vinstri flokksins.

Bent Høie, heilbrigðis­ráðherra Noregs, hefur sagt að hann hafi enga trúað hann hefði enga trú á refsistefnu gagnvart fíklum, heldur þætti honum betra að efla meðferðar­úrræði og læknis­þjónustu.

Óhætt er að segja að mikil umræða eigi sér nú stað víða um heim um hvernig best sé að berjast gegn vanda­málum sem tengjast neyslu fíkniefna.

Vanda­málin hafa magnast upp víða, og þá einkum í Banda­ríkjunum, þar sem þróunin hefur verið ógnvænleg á undan­förnum árum. Gríðar­lega mikil aukning er á dauðsföllum vegna of stórs skammts fíkniefna, en á síðasta ári létust 64 þúsund einstaklingar í Banda­ríkjunum af þeim orsökum.

Fjölgun dauðsfalla hefur verið gríðar­lega hröð, eða 20 til 30 prósent aukning milli ára síðustu fimm árin. Frá árinu 2014 hafa 166 þúsund einstaklingar í Banda­ríkjunum látist úr of stórum skammti, og búist er við því að talan fari yfir 70 þúsund á þessu ári. Sem þýðir að um 240 þúsund einstaklingar hafa dáið úr of stórum skammti á fjórum árum.

Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna er mælst til þess að aðildar­ríkin breyti um stefnu í barátt­unni við vandamál sem tengjast fíkni­efnum, og horfi meira til þess að aðstoða fíkla, og dragi úr allri glæpa­væðingu á neyslu efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár