Samningur við Frumherja dæmi um skynsamlega útvistun eftirlitsverkefnis

„Það kann að vera rétt að útvista fleiri slíkum verkefnum,“ segir í svari Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfa­dóttur iðnaðar­ráðherra við fyrir­spurn Óla Björns Kárasonar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, telur að útvistun einstakra eftirlits­verkefna geti verið skyn­samleg, svo sem í tilvikum þar sem hreinum hlutlægum reglum er fylgt og ekki er svigrúm til huglægs mats. Útvistun löggildingar á mæli­tækjum til fyrir­tækisins Frumherja hafi verið dæmi um slíkt.

Þetta kemur fram í svari hennar við fyrir­spurn Óla Björns Kárasonar, formanns efnahags- og viðskipta­nefndar Alþingis, sem spurði alla ráðherra hvort hvort þeir hefðu látið kanna mögu­leikann á útvistun eftirlits­verkefna til einka­aðila. Í svari ráðuneytisins er vísað sérstak­lega til þess að Neytenda­stofa hafi útvistað þjónustu við löggildingu mælitækja, svo sem voga og eldsneytis­dælna, til fyrir­tækisins Frumherja.  

„Ráðherra telur að útvistun einstakra eftirlits­verkefna geti verið skyn­samleg í ákveðnum tilvikum en það þarf að skoða vel og leggja mat á hvert tilvik fyrir sig. Slík útvistun eftirlits­verkefna getur verið skyn­samleg í þeim tilvikum þar sem um hreinar hlutlægar reglur er að ræða þar sem ekki er svigrúm til huglægs mats. Dæmi um útvistun slíkra eftirlits­verkefna er löggilding mælitækja sem er á ábyrgð Neytenda­stofu,“ segir í svarinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár