Borgin þurfi að leysa til sín lóð við Vesturbugt ef framkvæmdir fari ekki að hefjast

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri sagði á opnum fundi um húsnæðismál að ef þeir aðilar sem standa að fyrir­hugaðri uppbyggingu við Vestur­bugt færu ekki að hefja framkvæmdir færi borgin bara að leysa lóðina til sín aftur.

Fyrirhugað uppbyggingarsvæði við Vesturbugt í Reykjavík.
Fyr­ir­hugað upp­bygg­ing­ar­svæði við Vest­ur­bugt í Reykja­vík. Mynd: Reykjavíkurborg

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri segir að ef ekki fari að komast hreyfing á uppbyggingu húsnæðis á þróunar­reit við Vestur­bugt í Reykjavík, sem félag sem er í meirihluta­eigu fasteigna­félagsins Kaldalóns hyggst standa að, þurfi Reykja­víkurborg einfald­lega að leysa lóðina aftur til sín.

„Þetta liggur inni í félagi sem heitir Kaldalón, sem er á hlutabréfa­markaði. Það er alltaf verið að segja að þeir séu að fara af stað og við erum alltaf að gera smá breytingar og annað slíkt. Þetta verður bara að fara af stað, annars förum við bara að leysa þessa lóð til okkar aftur. Það verður bara að vera þannig, því að við viljum að sú húsnæðis­uppbygging sem er í pípunum og fólk tekur mið af í sínum áætlunum, að hún gangi eftir,“ sagði borgar­stjóri í erindi sínu á árlegum fundi um húsnæðis­uppbyggingu í Reykja­víkurborg, sem haldinn var í morgun.

Sagði hann samþykkt skipulagið á reitnum vera frábært og að það væri „algjör synd“ að það væri ekki komið til framkvæmda nú þegar.

Töluvert hefur verið fjallað um fyrir­hugaða uppbyggingu á reitnum í fréttum undan­farin ár.

Í Viðskipta­blaðinu sagði frá því snemma árið 2018, er Kaldalón keypti sig inn í félag sem heitir Vestur­bugt og þar með verkefnið, að framkvæmdir gætu hafist síðar á því ári.

Haustið 2020 sagði svo frá því í frétt Stöðvar 2 að það styttist í framkvæmdir á reitnum. Þá var búið að breyta skipulagi aðeins og fjölga íbúðunum á reitnum.

Í Morgun­blaðinu var svo síðastliðið sumar fjallað um frekari skipulags­breytingar og fjölgun íbúða á reitnum og haft eftir Jónasi Þór Þorvalds­syni framkvæmda­stjóra Kaldalóns að hönnun væri að ljúka. Einnig sagði hann að ef framkvæmdir myndu hefjast um nýliðin áramót, sem þær gerðu ekki, mætti búast við fyrstu íbúðunum á markað um mitt árið 2023.

Sagðist „handrukkari tímalínu í húsnæðismálum“

Skömmu áður í erindi sínu hafði Dagur fjallað um annan reit sem ekkert hefur hreyfst undan­farin ár þrátt fyrir að skipulagið sé löngu tilbúið, svokallaðan Blómavals­reit í Laugar­neshverfi, sem Íslands­hótel eiga.

„Ég er alltaf að hringja í Ólaf Torfason sem á Íslands­hótel og þessa lóð og hann er alveg farinn að taka á sig krók, því ég er svona hand­rukkari tímalínu þegar húsnæðismál eru annars vegar,“ sagði Dagur, en skipulag reitsins var kynnt árið 2015 án þess að uppbygging hafi farið af stað. Íslands­hótel áforma að fara af stað með framkvæmdir á reitnum á þessu ári.

Borgin segist ætla að tvöfalda lóðaframboð

Í erindi sínu á fundinum á morgun kynnti borgar­stjóri að Reykja­víkurborg hefði áform um að tvöfalda lóða­framboð í borginni á hverju ári næstu fimm ár, úr 1.000 lóðum upp í 2.000.

Í frétta­tilkynningu um þetta atriði sem barst frá Reykja­víkurborg í dag segir að þetta sér gert „í ljósi þess skorts sem nú er á nýjum eignum á húsnæðis­markaði“ og sé í takti við breytt mat Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar um þörf á fjölda íbúða.

„Stofnunin hefur metið þarfir markaðarins um 3.500-4.000 íbúðir á ári á öllu landinu. Með tvöföldun myndi hlutur Reykja­víkur í uppbyggingu á landinu vaxa frá því að vera þriðjungur í að verða að minnsta kosti helmingur uppbyggingar,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár