Vonast til að uppbygging á Blómavalsreit geti hafist snemma á næsta ári

Fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela von­ast til þess að hægt verði að hefj­ast handa við upp­bygg­ingu á svoköll­uðum Blóma­vals­reit bak við Grand Hótel snemma á næsta ári. Þar stendur til að byggja 109 íbúðir í sex fjöl­býl­is­húsum, auk við­bygg­ingar við hót­elið.

Nýtt deiliskipulag fyrir reitinn í Sigtúni var samþykkt árið 2015. Síðan þá hefur ekkert hreyfst á svæðinu.
Nýtt deiliskipu­lag fyrir reit­inn í Sigtúni var sam­þykkt árið 2015. Síðan þá hefur ekk­ert hreyfst á svæð­inu. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Allt frá því árið 2015 hefur verið í gildi deiliskipu­lag sem heim­ilar upp­bygg­ingu rúm­lega eitt hund­rað íbúða í Sigtúni í Reykja­vík, á svoköll­uðum Blóma­vals­reit. Lóðin er í eigu félags á vegum Íslands­hót­ela og hefur verið skipu­lögð í tengslum við fyr­ir­hug­aða stækkun Grand Hótels.

Davíð Torfi Ólafsson fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela segir við Kjarnann að von­ast sé til að fram­kvæmdir á reitnum geti haf­ist snemma á næsta ári, en stefnt er að því að byggja 109 íbúðir á reitnum í sex fjöl­býl­is­húsum.

Verk­efnið hefur verið á ís í nokkur ár og játar Davíð Torfi því að verk­efnið hafi taf­ist, núna síð­ast vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Nú sé hins vegar útlit fyrir að það stytt­ist í að hægt verði að ráð­ast í verk­efnið, sem felur auk íbúða­upp­bygg­ing­ar­innar í sér að Grand Hótel verði stækkað all­nokkuð. Hvenær fram­kvæmdir hefj­ist fari eftir því hvernig fjár­mögn­un­ar­ferlið gangi.

Íbúðir fjærst hótelinu byggðar fyrst

Davíð Torfi segir hann reikni með því að ráð­ist verði í verkið í fjórum áföngum, en að byrjað verður á því að grafa fyrir bíla­kjall­ara sem á að verða undir öllum Blóma­vals­reitnum og teygja sig sömu­leiðis inn undir hót­ellóð­ina, með stæðum fyrir mörg hund­ruð bíla. Áætlað bygg­ing­ar­magn verk­efn­is­ins í heild­ina er um 40 þús­und fer­metrar.

Hann segir að eins og áætl­an­irnar líti út – og tekur fram að þær geti tekið breyt­ingum – sé stefnt að því að fyrstu húsin rísi yst á reitnum, þ.e. fjærst Grand Hótel og næst höf­uð­stöðvum Ung­menna­fé­lags Íslands. Þá er reiknað með því að síð­asta skref upp­bygg­ing­ar­innar verði við­bygg­ingin við hót­elið.

Davíð Torfi segir ljóst að vanda þurfi til verka er varðar upp­bygg­ingu á reitnum, enda sé áætlað að hafa Grand Hótel í fullum rekstri á meðan unnið sé að verk­inu.

Til stóð að hefjast handa árið 2017

Upp­bygg­ing­ar­verk­efnið byggir sem áður segir á að skipu­lagi frá árinu 2015. Fjallað var um málið í Morg­un­blað­inu sum­arið 2017 og sagði þar frá því að til stæði að að hefja fram­kvæmdir þá um haustið og opna stærra Grand Hótel árið 2020, en ekk­ert varð af því og reit­ur­inn hefur staðið algjör­lega óhreyfður síðan.

Eins og skýr­ing­ar­myndir í deiliskipu­lagi líta út er reiknað með því að húsin sem standa næst aðliggj­andi íbúða­byggð við Sigtún verði á þremur hæðum og kall­ist þannig á við eldri húsin sem standa gegnt reitnum og eru á 3-4 hæðum.

Sunnar á reitnum er svo gert ráð fyrir háreist­ari bygg­ingum umhverfis inn­garð, sem ráð­gert er að verði á milli hús­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár