Mæður heyra börn gráta í myrkri næturinnar

Elizabeth Warren, öldungar­deildar­þingmaður á bandaríska þinginu, lýsir upplifun sinni af því þegar hún fór og kynnti sér aðstæður innflytjenda sem haldið er í búrum og örvæntingu mæðra sem skildar eru frá börnum sínum vegna stefnu ríkis­stjórnar Trump Bandaríkja­forseta.

Haldið í búrum
Haldið í búrum Hund­ruðir á hund­ruðir ofan af inn­flytj­endum hafa verið teknir höndum í Banda­ríkj­unum, þeim haldið án dóms og laga og aðskilin frá börnum sínum og fjöl­skyldum. Allt er þetta gert í nafni stefnu Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta um ekk­ert umburð­ar­lyndi gagn­vart ólög­legum inn­flytj­endum. Mynd: Youtube

Elizabeth Warren, öldungar­deildar­þingmaður á Banda­ríkjaþingi, fór síðastliðinn sunnudag til McAllen í Texas til að kynna sér afleiðingar stefnu Donalds Trump Bandaríkja­forseta í innflytjenda­málum. Hún birti í gær Facebook-færslu um upplifunina. Skrif Warren fara hér á eftir í þýðingu og stað­færslu Stundarinnar. Milli­fyrirsagnir eru Stundarinnar.

Síðastliðinn sunnudags­morgun flaug ég til McAllen í Texas til að kynna mér hvað hefur í raun og veru komið fyrir fjöl­skyldur innflytjenda sem stíað hefur verið í sundur af ríkis­stjórn Trumps.

„Eitt er víst: Krísu­ástandið við landamæri okkar stendur enn.“

Ég hélt beinustu leið af flug­vellinum til miðstöðvar tolla- og landamæra­gæslu McAllen (CBP) sem er miðpunktur „zero-tolerance“ stefnu Donalds Trumps, ekkert umburðar­lyndi. Þangað færa landamæra­verðir innflytjendur án pappíra áður en þeim er ýmist sleppt aftur, þeir fluttir út landi, afhentir innflytjenda­eftirlitinu eða, þegar um er að ræða fylgdar­laus börn eða börn sem hafa verið skilin frá foreldrum sínum, þau sett í hendur barna­verndar.

Elizabeth WarrenÖld­ung­ar­deild­ar­þing­mað­ur­inn lýsti ferð sinni til McAllen í Texas þar sem hún kynnti sér hinar hörmu­legu afleið­ingar sem stefna Donalds Trumps í inn­flytj­enda­málum hefur haft.

Af götunni lítur miðstöð CBP út eins og hvert annað vöruhús í iðnaðar­hverfi. Það gefur engin fyrirheit um hryllingin sem fer fram innan dyra. Áður en við gátum farið inn krafðist CBP þess að við horfðum á áróðurs­myndband stjórn­valda. Það er engin önnur leið til að lýsa því, það var eins og kvikmynda­stikla, uppfullt að dramatískum leik­lestri um „hina ólöglegu“ sem kæmu yfir landamæri okkar, toppað með óhugnanlegum myndum sem lýstu ógnunum sem stöfuðu af innflytjendum í Banda­ríkjunum, allt frá glæpa­klíkum til húðútbrota. Hetja mynd­bandsins var CBP sem, eftir því sem sagt var í mynd­bandinu, hefðu unnið þrekvirki við að draga úr komu innflytjenda.

Vöruhús fyllt af búrum

Að því loknu lýsti starfs­maður því sem við ættum í vændum. „Þau hafa aðskilda klefa. Ég kalla þetta klefa, ég veit raunar ekki hvað þeir kalla þá.“ Augljós­lega hafði viðkomandi fengið minnis­blaðið þar sem lögð var áhersla á að kalla þetta ekki sínu rétta nafni: búr. Við hverri einustu spurningu sem ég spurði var flókið og ruglingslegt svar, sem leiddi af sér fleiri spurningar. Jafnvel einföldustu spurningar eins og hversu lengi fólki væri haldið. „Enginn er hér lengur en 24 tíma. Jæja, kannski 24 til 48 tíma. Hámark 72 tíma.“ Og einnig: „Engin börn eru skilin frá. Eða sko, nema eldri börn.“

Vöruhúsið er mikill geimur, með steyptu gólfi og hátt til lofts. Það er fullt af búrum. Búrum fyrir karlmenn. Búrum fyrir konur. Búrum fyrir mæður með ungabörn. Búrum fyrir stúlkur. Búrum fyrir drengi.

Lykt af svita og ótta

Ólyktin, lykt af svita og ótta, skellur á manni um leið og dyrnar eru opnaðar. Fyrstu búrin eru full af karl­mönnum. Þau eru 3,5 til 4,5 metra há og það er þröngt. Ég efast um að allir mennirnir gætu lagst niður í einu. Það er klósett aftast í búrinu bak við smávegg en engin aðstaða til að þvo sér eða fara í sturtu. Einn mannanna æpti aftur og aftur: „Sturtu, gerið þið það. Bara sturtu.“

Ég spurði mennina sem haldið var í búrunum hvaðan þeir væru. Nálega allir voru frá El Salvador, Gvatemala eða Hondúras. Þá spurði ég þá hverstu lengi þeim hefði verið haldið þarna og svörin voru af öllu tagi, allt frá nokkrum dögum og allt að tveimur vikum (72 tímar hámark?). Fulltrúar CBP flýttu sér að leiðrétta mennina sem þeir höfðu í haldi, og héldu því fram að svör þeirra gætu ekki verið rétt. Sérfræðingurinn minn í innflytjenda­málum í þessari ferð talar fullkomna spænsku og gekk úr skugga um að mennirnir hefðu skilið spurninguna. „Hversu lengi hafið þið verið í þessari byggingu?“ Svör þeirra breyttust ekkert. Búr eftir búr. Sömu spurningarnar, sömu svörin.

„Þau höfðu ekkert, engar bækur, engin leikföng, ekkert við að vera. Þau litu út eins og þau hefðu lent í sprengju­regni.“

Því næst komum við inn á svæðið þar sem börnin voru í haldi. Búrin þar voru stærrri en ennþá fleiri í þeim. Í miðju búranna er varðturn, kannski fjögurra metra hár, þaðan sem hægt er að fylgjast með börnunum. Stúlkum er haldið saman í stóru búri. Börnin sögðu okkur að þau hefðu komið til Banda­ríkjanna með fjöl­skyldum sínum og að þau vissu ekki hvert hefði verið farið með þær. Ellefu ára gömul, tólf ára. Lokuð inni í búrum með ókunnugum. Mörg þeirra höfðu ekki talað við foreldra sína. Þau vissu ekki hvar þau væru eða hvað yrði um þau. Börnin voru þögul. Það var miðdegi og þau sátu bara. Sum sátu á þunnum mottum með álteppi dregin yfir höfuð sér. Þau höfðu ekkert, engar bækur, engin leikföng, ekkert við að vera. Þau litu út eins og þau hefðu lent í sprengju­regni.

Konur með ungabörn í búrum

Síðan komum við að stórum búrum þar sem voru konur og smábörn. Konur að gefa unga­börnum brjóst.

Þegar við komum til þeirra spurði ég hví þær hefðu yfirgefið heimalönd sín. Ung móðir með fjögurra ára gamalt barn sagði að sér hefði verið hótað og ógnað af glæpa­gengi í El Salvador. Hún hefði gefið lögreglu­þjóni vatn að drekka og gengið hefði þar með sannfærst um að hún væri á bandi lögreglunnar. Eftir því sem hún sagði lengur frá, því órólegri varð hún. Hún sagði að henni myndi aldrei detta í hug að hjálpa lögreglunni, hún skyldi áhættuna en glæpa­gengið hefði verið sannfært um að hún væri með lögreglunni í liði. Hún seldi allt sem hún átti og flúði með son sinn til Banda­ríkjanna.

Eitt af því sem þú sérð ekki í CBP miðstöðinni eru feður með börnin sín. Eftir að hafa þrýst á fulltrúa CBP útskýrðu þeir að karl­mönnum sem ferðuðust með börnum væri sjálf­krafa sleppt úr miðstöðinni. Það væru einfald­lega ekki nægjanlega mörg búr þar til að halda þeim. Konur með ungabörn hins vegar, þeim mætti halda út í hið óendanlega. Ég þrýsti á fulltrúana hvað þetta varðaði ítrekað. Eina svarið sem ég fékk var að með því væri verið að verja „öryggi mæðra og barna“.

Flúði til að forða syni sínum frá glæpagengi

CBP sagði að feður með börn, ólettar konur, mæður barna með sérþarfir og aðrir „heppnir“ sem sleppt væri úr miðstöðinni væru sendir til hjálpar­stofnunar kaþólsku kirkjunnar. Þangað fór ég næst. Systir Norma, starfslið hennnar og sjálfboða­liðar eru sannarlega að vinna guðs verk. Hjálpar­stofnunin útvegar mat, sturtu­aðstöðu, hrein föt og lyf handa þeim sem á þurfa að halda. Þar er reynt að útskýra hið flókna ferli fyrir fólkinu og sjálfboða­liðar hjálpa því að komast í rútu til ættingja í Banda­ríkjunum.

Systir Norma kynnti mig fyrir föður og unglings­syni hans frá Hondúras. Faðirinn sagði að glæpa­gengi hefði verið á hælum sonar hans, heimtandi að hann gengi til liðs við þá. Eina leiðin fyrir drenginn til að sleppa var að leggja á flótta. Maðurinn yfirgaf eiginkonu sína og fjórar dætur í Hondúras til að koma syni sínum til Banda­ríkjanna. Eina áætlunin sem hann hafði var að finna sér vinnu til að geta sent peninga heim til fjöl­skyldunnar. Frændi hanns býr í New Jersey og því sendu CBP pappíra til innflytjenda­skrif­stofunnar í New Jersey. Fljótlega myndu feðgarnir leggja upp í hina löngu rútuferð þangað.

Hjálpar­stofnun Kaþólsku kirkjunnar í Rio Grande dalnum veitir neyðar­aðstoð til handa fólki af öllum trúar­brögðum og bakgrunni en vegna neyðar­ástandsins á svæðinu er hjálpar­stofnunin komin út á ystu nöf. Fengi hún meira fjármagn og fleiri sjálfboða­liða, myndu hún með gleði hjálpa fleiru fólki.

Ég spurði systur Normu um konurnar og börnin sem væru í ótíma­bundnu haldi. Hún sagði að þau myndu með gleði taka á móti þeim, fæða þau og klæða og koma þeim upp í rútu á leið til ættingja sinna, ef þeim væri aðeins sleppt. „Þetta er siðferðisleg skylda okkar, við erum öll hluti af fjöl­skyldu manna.“

Skilgreiningin aðeins foreldri og barn

Að þessu loknu hitti ég lögfræðinga sem eru í auga stormsins hvað varðar aðskilnaðinn. Ég lýsti fyrir þeim því sem ég hefði séð fram til þessa í McAllen og ræddi framkvæmd sameiningu foreldra og barna. Lögfræðingarnir staðfestu hins vegar það sem ég óttaðist mest. Trump-stjórnin er kannski að „sameina“ fjöl­skyldur en skilgreining þeirra á fjöl­skyldu er eingöngu foreldri og barn. Sem dæmi, ef 9 ára gamalt barn kemur yfir landa­mærin með 18 ára gamalli systur sinni, eða frænku, frænda, afa eða ömmu, eða nokkrum þeim sem ekki er forráða­maður barnsins samkvæmt pappírum, þá eru viðkomandi ekki talin vera fjöl­skylda og þau aðskilin.

Mæður og börn eru talin vera „sameinuð“ ef þeim er haldið í sömu gríðar­stóru byggingunni, jafnvel þó þau sé læst inni í mismun­andi búrum og hafi engan aðgang að hverju öðru. Í veröld CBP og innflytjenda­eftirlitsins eru það sem sagt þannig sem 10 ára gamlar stúlkur, læstar inni í stórum búrum, eru „ekki aðskildar“ frá mæðrum sínum sem eru læstar inni í búrum annars staðar í byggingunni.

Þegar kemur að því að „sameina“ fjöl­skyldur líta stjórn­völd hugsanlega á það sem fjölskyldu­sameiningu þegar barn er sent til fjar­skyldra ættingja sem það hefur aldrei hitt, en ekki til foreldra sinna. Dæmi eru um að sumir ættingjar séu óviljugir að krefjast þess að fá börnin til sín, því það byði heim þeirri hættu að innflytjenda­eftirlitið færi að kanna þeirra eigin fjöl­skyldur. Foreldrar eru svo örvæntingar­fullir að þeir gefa jafnvel upp á bátinn rétt sinn á hæli til að fá börn sín til sín á nýjan leik.

Kerfi til að hafa uppi á fjölskyldu­meðlimum sundraðra fjöl­skyldna er óþekkt, ef það er yfirhöfuð til staðar. Sérfræðingur sem ég ræddi við óttast að í tilfellum sumra fjöl­skyldna sé ein einasta ljósmynd hugsanlega einu gögnin sem yfirvöld hafi í höndunum til að sameina þær á ný. Ég vona innilega að þetta sé rangt.

Fólki haldið í fangelsi

Eftir því sem á daginn leið kviknuðu enn fleiri spurningar hjá mér um það hvernig stjórn Trumps hyggst leysa krísuna sem hún hefur skapað við landa­mærin. Svo síðasti áfanga­staður minn þennan dag var Port Isabel fangelsið, sem er um það bil í klukku­tíma fjarlægð austur af McAllen. Það er eitt stærsta fangelsið í Texas.

Þjóðar­öryggis­stofnunin hefur kynnt hluta af áætlun sinni um sameiningu fjöl­skyldna, meðal annars að Port Isabel verði „miðstöð fjölskyldu­sameiningar og flutninga fyrir fullorðna sem eru í þeirra haldi.“

„Höfum eitt á hreinu: Port Isabel er ekki sameiningar miðstöð. Það er fangelsi. Fangelsi.“

Það er ekkert óskýrt í þessu. Ég hitti yfirmann fangelsisins. Hann sagði ítrekað að hann hefði ekki pláss fyrir börn, að hann hefði engin úrræði til að sjá fyrir þeim og hefði engar áætlanir um að börn kæmu inn fyrir veggi fangelsisins. Þegar ég krafðist svara um hver áætlunin um sameiningu fjöl­skyldna eiginlega væri, giskaði hann á að yfirvöld myndu flytja börnin eitthvað, enn sannarlega ekki í sitt fangelsi. Þegar ég spurði hversu langan tíma það myndi taka giskaði hann á vikur, en sagði að það væri yfirvalda að ákveða. Hann sagðist hafa starfi að sinna: Að halda mæðrum og feðrum í haldi þangað til að hann fengi skipanir um að senda þau eitthvert annað. Annað ekki.

Aftur: Þetta er fangelsi, ekki miðstöð sameiningar.

Við fórum um fangelsið. Það er gríðar­stórt, fjöldi bygginga einangraðar fjarri manna­byggð. Við fórum ekki í þann hluta sem karl­mönnunum er haldið í en konunum er haldið í stórri byggingu fullri af kojum, með stein­steyptu útisvæði. Það er læst, tví-, þrílæst. Háar girðingar girða allt af, með gaddavír efst og við taka aðrar girðingar, einnig með gaddavír efst.

Skelfilegar sögur

Níu mæður voru færðar inn til okkar, konur sem höfðu samþykkt að ræða við okkur. Ég trúi ekki að þær hafi verið sérvaldar fyrir þennan fund því allt sem þær höfðu að segja var skelfilegt. Hver og ein lýsti því hvernig þær hefðu komið yfir landa­mærin, verið teknar og fluttar í miðstöð þar sem þær voru aðskildar frá börnum sínum. Í öllum tilvikum lugu yfirvöld að þeim um hvert ætti að flytja börnin þeirra. Engin þeirra, utan ein, hafði fengið að ræða við börnin sín eftir að þau voru aðskilin. Og engin þeirra vissi hvar þau voru núna.

„Ég fékk ekki að kveðja, ég fékk aldrei að kveðja hann“

Þegar þau voru aðskilin var flestum mæðranna sagt að börnin myndu koma aftur til þeirra. Einni kvennanna hafði verið haldið í „ísskápnum“, miðstöð sem er kölluð svo því þar er afar kalt. Þegar fulltrúar yfirvalda komu og tóku barnið af henni var henni sagt að það væri einfald­lega of kalt fyrir það og það ætti bara að halda hita á barninu hennar þar til hún yrði flutt annað. Þetta var um miðjan júní. Hún hefur ekki séð barnið sitt síðan.

Ein mæðranna var í haldi með barni sínu. Þau voru sofandi saman á gólfinu í einu búrinu þegar hún var rifin í burtu klukkan þrjú að nóttu. Síðast sá hún sjö ára gamlan son sinn sofandi á stein­steyptu gólfinu. Hún grét og sagði ítrekað: „Ég fékk ekki að kveðja, ég fékk aldrei að kveðja hann.“ Þetta var í byrjun júní og hún hefur ekki séð son sinn síðan.

Jafnvel þó að starfs­menn CBP í miðstöðinni hafi sagt mér að mæður barna með sérþarfir yrðu leystar úr haldi ásamt börnum sínum, hafði ein mæðranna sem ég ræddi við í fangelsinu verið skilin frá barni sínu sem hafði sérþarfir. Hún lýsti barninu sínu, sem hefur vanþroskaða fætur og á afar erfitt með gang. Önnur mæðranna lýsti því að í fangelsinu væri móðir sem hefði afar miklar áhyggjur af barni sínu, sem hefði verið skilið frá henni, sökum þess að barnið væri heyrnar­laust og gæti ekki talað.

Konurnar sem ég hitti voru í áfalli, kjökrandi og sárbændu mig um hjálp. Þær skilja ekki hvað hefur komið fyrir þær og þær grátbáðu um að fá að sameinast börnum sínum.

Þau sem eru í haldi geta hringt símtöl gegn gjaldi en allar eigur þeirra eru gerðar upptækar þegar þau eru hneppt í varðhald. Eina leiðin til þess að verða sér út um peninga er ef einhver getur fært peninga inn á reikninga þeirra. Ég spurði hvort fólk eða líknar­félög gætu lagt fram peninga til að þau gætu hringt í fjöl­skyldur sínar eða lögfræðinga, en þær neituðu því. Sá sem vildi láta peninga af hendi rakna þyrfti að hafa undir höndum kennitölu hvers eins og einasta sem haldið væri í fangelsinu og yfirvöld væru augljós­lega ekki tilbúin til að láta þær upplýsingar af hendi.

Baráttunni fjarri lokið

Þrír ungir lögfræðingar voru í Port Isabel á sama tíma og við. Lögfræðingarnir sögðu okkur að mál umbjóðenda þeirra, fólksins sem þeir hefðu rætt við í fangelsinu, væru sterk og miklar líkur á að það ætti rétt á hæli í Banda­ríkjunum. Hins vegar væri ferlið þannig að mögu­leikinn á hæli fælist í frammistöðu fólks í einu einasta símtali við innflytjenda­yfirvöld, þar sem fólk þyrfti að færa rök fyrir því af hverju það ætti rétt á fá hæli. Ein fyrsta spurningin sem allar mæður fengju væri: „Hefur þú verið skilin frá barni þínu?“ Fyrir sumar mæðurnar þarf ekki meira til en þessa spurningu svo að þær brotni saman. Lögfræðingarnir óttast að þessar konur séu í svo viðkvæmu ástandi að þær séu alls ekki í standi til að færa fram sann­færandi rök fyrir máli sínu. Þær séu bjargar­lausar því þær hafi misst börn sín og vilji ekkert annað en að fá þau til sín á nýjan leik.

Heim­sóknin í Port Isabel tók meira en tvo tíma, umtals­vert lengur en þau þrjú korter sem búið var að lofa okkur. Þegar við loks fórum í háttinn þetta kvöld hugsaði ég um nokkuð sem mæðurnar höfðu sagt mér, nokkuð sem á eftir að ásækja mig lengi.

Mæðurnar sögðu að þær heyrðu börn gráta í nóttinni.

Þetta snýst ekki um stjórnmál. Þetta snýst ekki um Demókrata eða Repúblikana. Þetta snýst um manneskjur. Börnum er haldið í búrum, á þessari stundu. Börn eru dreifð um landið allt. Og mæður heyra börnin gráta í myrkri næturinnar.

Ég er enn að melta allt sem ég sá og varð vitni að en ég ég vildi að þið heyrðuð alla söguna. Barátt­unni fyrir þessi börn og fjöl­skyldur þeirra er ekki lokið, því fer fjarri.

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár