„Franska ríkisstjórnin var hvorki blind né meðvitundarlaus“

Frönsk stjórn­völd „gerðu ekkert“ til að stöðva blóðbaðið í Rúanda á tíunda áratug síðustu aldar. Eftir voða­verkin reyndu þau svo að hylma yfir þátt sinn sem m.a. fólst í því að veita gerendum vernd.

Myndir af nokkrum fórnarlömbum þjóðarmorðsins í Rúanda.
Myndir af nokkrum fórn­ar­lömbum þjóð­ar­morðs­ins í Rúanda. Mynd: EPA

Frönsk stjórn­völd bera „ríka“ ábyrgð í því að koma ekki í veg fyrir „fyrir­sjáanlegt“ þjóðar­morð í Rúanda. Frakkar leyndu auk þess fjölda skjala og vitnis­burða tengdum voða­verkinu. Um 800 þúsund manns voru drepnir í þessu smáa afríska ríki árið 1994.

Þetta er niður­staða rann­sóknar rúandskra stjórn­valda um hlutverk Frakka fyrir, á meðan og eftir að dráps­aldan gekk yfir. Skýrslan var unnin með vilja og vitund Emmanuel Macron Frakk­lands­forseta og er skref í viðleitni hans til að bæta samskipti ríkjanna tveggja.

Í skýrslunni segir einfald­lega að Frakkar hafi „ekkert gert“ til að stöðva blóðbaðið sem stóð hvað hæst í apríl og maí árið 1994. Eftir voða­verkin hafi Frakkar svo reynt að hylma yfir þátt sinn í atburðunum og meira að segja boðið sumum sem fóru fyrir dráps­liðinu vernd.

Skýrslan var kynnt formlega fyrir ríkis­stjórn Rúanda í gær. Niður­staða hennar er að Francois Mitterrand, þáverandi forseti Frakk­lands, sem og stjórn hans, hafi haft vitneskju um hvað var í uppsiglingu en hélt engu að síður áfram að styðja forseta Rúanda, Juvenal Habyarimana, og ríkis­stjórn hans. „Franska ríkis­stjórnin var hvorki blind né meðvitundar­laus,“ skrifa höfundar skýrslunnar. Hún hafi vitað hvað var í uppsiglinu.

Frönsk rann­sóknarnefnd sem Macron setti á fót skilaði skýrslu um sama mál í síðasta mánuði og ein helsta niður­staða hennar var sú að stjórn­völd hefður verið „blind“ á það sem var í gangi en hafi svo brugðist of hægt við, ekki náð yfirsýn á hvað var að gerast í Rúanda og verið sein til aðgerða. Niður­staða þeirrar skýrslu var ennfremur sú að Frakkar hefðu með þeim hætti borið „gríðar­mikla ábyrgð“ með því að hafa ekki brugðist við þeirri gjá sem hafði myndast í landinu sem leiddi að lokum til drápa öfgamanna af þjóðar­broti Hútúa á Tútsum sem og Hútúum sem reyndu að vernda þá.

Þó að niður­stöður skýrslnanna tveggja greini á um ákveðna þætti er talið að þær geti orðið grunnur að þeirri vinnu sem framundan er til að bæta samskipti Frakk­lands og Rúanda. Utan­ríkis­ráðherra Rúanda hefur sagt land sitt „tilbúið“ til að stofna til „nýs sambands“ við Frakkland og ef afsökunar­beiðni yrði sett fram væri það af hinu góða.

„Það mikil­vægasta er kannski það að þetta ferli, greining þessara tveggja rann­sóknar­nefnda á sögulegum stað­reyndum sem þær fengu aðgang að, getur orðið til þess að við komumst að gagn­kvæmum skilningi á fortíðinni,“ sagði ráðherrann, Vincent Biruta. „Þaðan getum við svo byggt upp sterkt samband.“

Bandaríska lögfræði­stofan Levy Firestone Muse, leiddi vinnu rúöndsku rann­sóknar­nefndarinnar. Til verksins fékkst aðgangur að marg­víslegum gögnum frá opinberum aðilum sem og frá samtökum, stofnunum og einstaklingum sem urðu vitni að atburða­rásinni. Um 250 vitni komu fyrir nefndina á þeim tæplega fjórum árum sem hún starfaði.

Á árunum fyrir þjóðar­morðið „vopnuðu, ráðlögðu, þjálfuðu og vernduðu frönsk yfirvöld rúöndsku ríkis­stjórnina,“ segir ennfremur í nýju skýrslunni. Frakkar hafi haft sína eigin hagsmuni að leiðar­ljósi. Í apríl og maí árið 1994, er morðaldan reis sem hæst, gerðu frönsk yfirvöld „ekkert til að stöðva“ blóðbaðið.

Það var ekki fyrr en í lok júní þetta sama ár sem hernaðar­bandalag undir forystu Frakka hóf aðgerðir en þá höfðu fjölmargir Tútsar þegar týnt lífi. Hins vegar er ekkert sem bendir til þess, að mati skýrslu­höfunda, að franskir embættis­menn hafi beinlínis komið að drápunum. Er þetta samhljóða þeirri niður­stöðu sem fékkst í frönsku skýrslunni.

Íbúar Rúanda eru um 12 milljónir talsins. Líkt og mestöll Afríka varð land­svæðið bitbein Evrópu­ríkja á öldum áður. Innan landamæra þess enduðu svo margar þjóðir sem áttu jafnvel fátt sameiginlegt að menningu, siðum og háttum. Þjóð­verjar hertóku það í lok nítjándu aldar og bættu því við svæði sem þeir kölluðu Þýsku-Austur-Afríku. Belgar gerðu svo innrás árið 1916 á meðan fyrri heims­styrjöldinni stóð og réðu þar ríkjum allt til ársins 1962.

Ástæðan fyrir því að Frakkar drógust inn í málefni landsins á tíunda áratug síðustu aldar er sú að frönsk stjórn­völd höfðu mikil tengsl við ríkis­stjórn Juvénal Habyarimana forseta, sem var Húti, og studdu hana opinber­lega í barátt­unni gegn stjórnmála­öflum leiddum af Tútsum sem höfðu í áraraðir verið undirokaðir og áreittir og flúið land í umvörpum. Þeir sendu einnig herlið til Rúanda til að þjálfa innlenda hermenn, m.a. ungliða­hreyfingar, í tengslum við friðargæslu­verkefni Sameinuðu þjóðanna.

27 ár eru liðin frá þjóðar­morðinu. Á þeim tíma hafa frönsk stjórn­völd leynt hlutverki sínu og hagrætt sann­leikanum sem og verndað þá sem stóðu fyrir morðunum, segir í rúöndsku skýrslunni. Þannig hafi Frakkar ekki beitt sér fyrir því að réttað yrði yfir sökudólgunum. Þrír rúandskir ríkis­borgarar hafa til þessa dags verið sakfelldir í Frakk­landi fyrir þátttöku sína í þjóðar­morðinu. Í maí á síðasta ári var Félicien Kabuga, sá sem lengi hefur verið grunaður um að hafa fjár­magnað kaup öfga­mannanna á sveðjum og öðrum vopnum til drápanna, hand­tekinn. Þá var prestur sem grunaður er um aðild að voða­verkunum hand­tekinn í París í síðustu viku. Hann neitar sök.

Rúöndsk stjórn­völd hafa ítrekað beðið um að frönsk hernaðar­gögn, sem leynd hvílir á, verði gerð opinber í tengslum við rann­sóknina á þjóðar­morðinu. Samkvæmt frönskum lögum er hægt að halda slíkum upplýsingum frá almenningi áratugum saman en hluti gagnanna var látinn af hendi í rann­sókninni nú. Þetta segja skýrslu­höfundar vekja vonir um fram­haldið. Macron forseti tilkynnti svo í byrjun apríl að leynd yrði aflétt af skjölum skrif­stofu forseta og forsætis­ráðherra landsins er tengjast Rúanda á árabilinu 1990-1994.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár