Skjóta flugskeytum beint í hjarta Kyrrahafsins

„Höfin okkar eru ekki tómt svæði eða varnar­svæði milli stórvelda heimsins – þau eru eign okkar, lífs­viðurværi okkar og hluti af sjálfs­mynd okkar sem verndara hafsins,“ sagði ráðherra í ríkis­stjórn Kíribatí. Tólf ríki hafa fordæmt tilraunir Kínverja með langdræg flug­skeyti.

Eyríki í Kyrrahafi hafa fordæmt tilraun Kínverja með langdrægt flug­skeyti sem lenti í hjarta hinnar sameiginlegu „bláu heimsálfu“ þeirra, að sögn stjórn­málamanna og sérfræðinga sem AFP ræddi við.

Jafnvel Kyrra­hafsþjóðir sem standa í þakkar­skuld við Kína tóku þátt í gagn­rýninni á tilraunina með langdræga flug­skeytið sem skotið var úr kafbáti og náði langt út á Kyrrahaf.

Hugtakið „Blá heimsálfa“ er notað af eyþjóðum Kyrra­hafsins til að lýsa sameiginlegu heimili sínu og sameiginlegri ábyrgð á hafinu.

Lenti utan lögsögu ríkjanna

Kjarnorku­vopna­hæft flug­skeytið, búið sýndar­oddi, lenti einhvers staðar milli Nárú, Túvalú og Salómons­eyja, samkvæmt upplýsingum frá eftirlits­aðilum og embættis­mönnum á Kyrra­hafseyjum.

Sá staður sem talið er að flug­skeytið hafi lent á er meðal eyjanna í Kyrra­hafinu, en á einu af fáum hafsvæðum þar á milli sem tilheyrir ekki efnahags­lögsögu (EEZ) neins ríkis.

Kínverjar sögðu að flugskeyta­tilrauninni „hefði ekki beinst gegn neinu landi“ …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár