Stærstu hluthafarnir á bakvið 100 milljóna innspýtingu í útgáfufélag Morgunblaðsins

Sá hópur sem keypti útgáfu­félag Morgun­blaðsins árið 2009 hefur sett tvo milljarða króna í reksturinn og þegar afskrifað helming þeirrar upphæðar. Samanlagt tap nemur rúmlega 2,5 milljörðum króna og lestur hefur rúmlega helmingast.

Aðilar tengdir Ísfélagi Vestmanna­eyja og félag í eigu Kaup­félags Skagfirðinga greiddu stærstan hluta af 100 milljón króna hlutafjár­aukningu sem framkvæmd var í Þórsmörk, eig­anda útgáfu­fé­lags­ins Árvak­urs sem heldur úti Morg­un­blað­inu, mbl.is og K100, þann 31. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Þetta má lesa út úr uppfærðum lista yfir eigendur útgáfu­félagsins sem birtur var í gær á vef Fjölmiðla­nefndar. Í lögum um fjöl­miðla segir að við sölu á hlut í fjöl­miðli beri að til­kynna um hana „innan tveggja virkra daga frá gerð kaup­samn­ings“ til Fjölmiðla­nefndar sem birtir svo uppfærðar upplýsingar á vef sínum. Á fimmtudags­kvöld voru upp­lýs­ingar um eign­ar­hald útgáfu­fé­lags­ins sem þar voru aðgengi­legar voru síð­ast upp­færðar 17. júlí 2020. Það breyttist svo í gær, rúmum tveimur mánuðum eftir að hlutafjár­aukningin átti sér stað.

Stærsti eig­and­inn fyrir síð­ustu hluta­fjár­aukn­ingu voru Guð­­björg Matt­h­í­a­s­dóttir og börn henn­­ar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfé­lag Vest­­manna­eyja. Sam­an­lagt átti sá hópur 25,5 pró­­sent hlut. Þau greiddu samtals um þriðjung aukningarinnar og eiga nú 28,04 prósent.

Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjá­v­­­ar­af­­urð­ir, í eigu Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga, með 19,4 pró­­sent eign­­ar­hlut. Félagið varði þann eignar­hlut í aukningunni og lagði Þórsmörk því til 19,5 milljónir króna.

Legalis, félag sem Sigur­björn Magnússon stjórnar­formaður Árvakurs og faðir Áslaugar Örnu Sigurbjörns­dóttur veitir forstöðu, varði sömuleiðis sinn hlut, á áfram 13,4 prósent og lagði til 13,9 milljónir króna. Hæstu upphæðina lagði til félagið Í fjár­festingar ehf., félag í eigu Katrínar Péturs­dóttur, forstjóra Lýsis, og Gunnlaugs Sævars Gunnlaugs­sonar, stjórnar­formanns Ísfélags Vestmanna­eyja. Það jók hlut sinn upp í 8,71 prósent og borgaði 22,4 milljónir króna í aukningunni.

Aðrir hluthafar, sem flestir koma úr sjávar­útvegi, annað hvort vörðu hluti sína eða tóku ekki þátt. Þar á meðal er félag í eigu Eyþórs Arnalds, núverandi oddvita Sjálfstæðis­flokksins í borgar­stjórn Reykja­víkur, sem átti 13,4 prósent hlut áður. Það keypti ekki nýtt hlutafé og þynntist fyrir vikið niður í 12,08 prósent.

600 milljónir á þremur árum

Hlutafjár­aukningin sem framkvæmd var í janúar er sú þriðja frá árinu 2019. Í byrjun árs 2019 var hluta­féð aukið um 200 millj­ónir króna. Kaup­­­fé­lag Skag­­­firð­inga (KS) og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­sent þeirrar aukn­ing­ar. Sum­arið 2020 var hluta­féð aukið um 300 millj­ónir króna og kom allt féð frá þeim eig­enda­hópi sem var þegar til stað­ar.

Að við­bættri þeirri hluta­fjár­aukn­ingu sem ráð­ist var í í upp­hafi árs hefur móð­ur­fé­lagi Árvak­urs því verið lagt til 600 millj­ónir króna á þremur árum.

Frá því árinu 2009 og til loka árs 2020 hefur útgáfu­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­örðum króna. Eig­enda­hóp­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­arða króna í nýtt hluta­fé.

Þegar nýju eig­end­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­blað­ið, flagg­skip útgáf­unn­ar, lesið af rúm­lega 40 pró­sent þjóð­ar­inn­ar. Í síð­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 18,6 pró­sent og hefur aldrei mælst lægri. Vefur útgáf­unn­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en á síð­ustu miss­eri hefur Vísir.is, vefur í eigu Sýn­ar, stöðugt mælst með fleiri not­end­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár