Útgáfufélag Morgunblaðsins hefur fengið 600 nýjar milljónir frá hluthöfum á þremur árum

Sá hópur sem keypti útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins árið 2009 hefur sett tvo millj­arða króna í rekst­ur­inn og þegar afskrifað helm­ing þeirrar upp­hæðar. Sam­an­lagt tap nemur rúm­lega 2,5 millj­örðum króna og lestur hefur rúm­lega helm­ing­ast.

Davíð Oddsson er annar ritstjóra Morgunblaðsins og hefur verið það frá haustinu 2009.
Davíð Oddsson er annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og hefur verið það frá haustinu 2009. Mynd: Samsett

Hlutafé í Þórsmörk, eig­anda útgáfu­fé­lags­ins Árvakurs sem heldur úti Morg­un­blað­inu, mbl.is og K100, var aukið um 100 millj­ónir króna þann 31. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í þeim gögnum sem skilað hefur verið inn til fyr­ir­tækja­skrár vegna aukn­ing­ar­innar kemur ekki fram hver greiddi fyrir hluta­fjár­aukn­ing­una og breyt­ingar á eign­ar­haldi hafa ekki verið til­kynntar til fjöl­miðla­nefndar líkt og lög gera ráð fyrir.

Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald útgáfu­fé­lags­ins sem eru þar aðgengi­legar voru síð­ast upp­færðar 17. júlí 2020. Í lögum um fjöl­miðla segir að við sölu á hlut í fjöl­miðli beri að til­kynna um hana „innan tveggja virkra daga frá gerð kaup­samn­ings“. Sá frestur rann fyrir fyrir rúmum mán­uði.

Þetta er í þriðja sinn frá árinu 2019 sem nýtt hlutafé er sett inn í rekstur fjöl­miðla­sam­steypunnar til að mæta tap­rekstri hennar. Í byrjun árs 2019 var hluta­féð aukið um 200 millj­ónir króna. Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga (KS) og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­sent þeirrar aukn­ingar. Sumarið 2020 var hluta­féð aukið um 300 millj­ónir króna og kom allt féð frá þeim eig­enda­hópi sem var þegar til staðar. Að við­bættri þeirri hluta­fjár­aukn­ingu sem ráð­ist var í í upp­hafi árs hefur móð­ur­fé­lagi Árvakurs því verið lagt til 600 millj­ónir króna á þremur árum.

Kaupin sögð á viðskiptalegum grunni

Árvakur var tækni­lega gjald­þrota fyr­ir­tæki eftir banka­hrunið og í nokk­urs konar gjör­gæslu nýstofn­aðs Íslands­banka. Um jólin 2008 fékk hluti eft­ir­stand­andi starfs­manna til að mynda ekki laun fyrr en langt var liðið að jólum og eftir að bank­inn ákvað að veita útgáfu­fé­lag­inu, sem var gríð­ar­lega skuld­sett, við­bót­ar­fyr­ir­greiðslu.

[adspot]Í lok febr­úar 2009 náð­ist sam­komu­lag um að selja Árvakur til sjö fjár­festa sem stóðu að félag­inu Þórsmörk. Hópurinn var leiddur af Óskari Magn­ús­syni en á meðal ann­arra í honum voru fyr­ir­ferða­miklir útgerð­ar­menn eins og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, aðal­eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja, Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, og Pétur H. Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Vísis í Grinda­vík. Af þessu til­efni sagði Óskar við Morg­un­blaðið að kaupin væru á við­skipta­legum grunni og að hóp­ur­inn teldi „að það megi gera úr þessu góðan og arð­væn­legan rekstur. Það er aðal­mark­mið þeirra fjár­festa sem hafa komið til liðs við mig í þessu verk­efni til þessa. Svo eru sjálf­sagt mis­mun­andi ástæður hjá hverjum og einum.“

Frá þessum tíma og til loka árs 2020 hefur útgáfu­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­örðum króna. Eig­enda­hóp­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­arða króna í nýtt hlutafé.

Milljarðar afskrifaðir

Við­­skipta­­banki Árvak­­urs, Íslands­­­banki, afskrif­aði um 3,5 millj­­arða króna af skuldum félags­­ins í aðdrag­anda þess að félagið var selt nýjum eig­enda­hópi. Síð­­­ari lota afskrifta af skuldum Árvakurs við bank­ann átti sér svo stað árið 2011 og var upp á einn millj­­arð króna.

Í maí 2019 var ákveðið að lækka hlutafé í Þór­s­­­­mörk um einn millj­­­­arð króna. Sam­­­­kvæmt til­­­­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­­­­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi.

Við það lækk­­­­aði hlutafé Þór­s­­­­merkur úr 1,6 millj­­­­arði króna í 606,6 millj­­­­ónir króna. Það þýddi að eig­endur félags­­­­ins hafa afskrifað millj­­­­arð af því fjár­­­­­­­magni sem þeir settu inn í félag­ið. Síðan þá hef­­ur hluta­­féð verið aukið um sam­tals 400 millj­­ónir króna til að mæta áfram­hald­andi tap­rekstri.

Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Árvakurs, fyrir árið 2020, var rekstr­ar­tap félags­ins 210,3 millj­ónir króna á því ári. Það er aðeins minna rekstr­ar­tap en árið áður þegar það var 245,3 millj­ónir króna.

Óvissa um rekstrarhæfi Árvakurs

Sá munur var á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla árið 2020 miðað við árið 2019 að á fyrr­nefnda árinu ákvað Alþingi að veita rekstr­ar­stuðn­ing til þess að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs­ins, og studdi við fyr­ir­tæki með ýmsum öðrum hætti.

Rekstr­ar­styrk­ur­inn sem Árvakur fékk nam alls 99,9 millj­ónum króna, en eitt hund­rað millj­óna króna þak var á styrkjum til hvers fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is. Því má ætla að rekstr­ar­tapið hafi verið yfir 300 millj­ónir króna ef ekki hefði verið fyrir rekstr­ar­styrk­inn.

[adspot]Árvakur fékk svo rúm­lega 81 milljón króna í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði í fyrra.

Í árs­reikn­ingi Árvak­urs fyrir árið 2020 sagði að á því ári hafi verið „unnið að hag­ræð­ing­ar­að­gerðum í rekstri félags­ins til að mæta þeim rekstr­ar­vanda sem einka­reknir fjöl­miðlar hér á landi búa við og mun verða haldið áfram á þeirri veg­ferð til að ná jafn­vægi í rekstri þess, en hvenær það næst er erfitt að meta með áreið­an­legum hætti. Það er mat stjórn­enda félags­ins að ekki sé vafi á rekstr­ar­hæfi félags­ins eins og staða þess er í dag. En gangi áætl­anir stjórn­enda ekki eftir ríkir ákveðin óvissa um rekstr­ar­hæfi félags­ins til lengri tíma.“

Lestur meira en helmingi minni en þegar nýir ritstjórar tóku við

Um haustið 2009 var Ólafur Steph­en­sen rek­inn sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og tveir ráðnir í hans stað, þeir Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen. Þeir stýra enn blað­inu og eru lang­launa­hæstu fjöl­miðla­menn lands­ins. Samkvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar sem kom út í ágúst í fyrra var Davíð með tæpar 5,5 millj­ónir króna á mán­uði í laun árið 2020. Þess má geta að hluti launa Dav­íðs eru eft­ir­laun frá því hann var ráð­herra og þing­mað­ur. Eft­ir­laun Dav­íðs eru 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra en hann fær einnig eft­ir­laun vegna starfa sinna sem seðla­banka­stjóri eftir að hann hætti á þingi. Haraldur, sem er líka fram­­kvæmda­­stjóri Ár­vak­urs, var með rúmar 3,2 millj­ónir króna í laun á mán­uði.

Þegar nýju eig­end­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­blaðið, flagg­skip útgáf­unnar, lesið af rúm­lega 40 pró­sent þjóð­ar­innar. Í síð­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 18,6 pró­sent og hefur aldrei mælst lægri. Vefur útgáf­unnar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en á síð­ustu miss­eri hefur Vísir.is, vefur í eigu Sýnar, stöðugt mælst með fleiri not­endur.

Eignarhlutur færður til borgarfulltrúa

Líkt og áður sagði hafa orðið breyt­ingar á eig­enda­hópnum á und­an­förnum árum. Stærsti eig­and­inn fyrir síð­ustu hluta­fjár­aukn­ingu voru Guð­björg Matth­í­as­dóttir og börn henn­ar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfé­lag Vest­manna­eyja. Sam­an­lagt átti sá hópur 25,5 pró­sent hlut. Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjáv­ar­af­urð­ir, í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, með 19,4 pró­sent eign­ar­hlut.

Samherji, Síld­ar­vinnslan og Vísir seldu sína hluti í Árvakri árið 2017 til Eyþórs Arnalds, borg­ar­full­trúa og odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Alls var um að ræða 26,62 pró­sent eign­ar­hlut. Stærsti bit­inn var 18,43 pró­sent hlutur sem Eyþór keypti af félagi Samherja, sem ber nafnið Kattanef ehf. Eyþór lagði ekk­ert út fyrir kaup­unum heldur veitti selj­and­inn honum selj­enda­lán.

Lánið féll á gjald­daga árið 2020 og Katt­ar­nef hefur afskrifað það að fullu. Í árs­reikn­ingi félags Eyþórs, Ramses ehf, kom fram að gjald­fallnar afborg­anir félags­ins hafi numið alls 386,8 millj­ónum króna í árs­lok 2020. Í fyrra náð­ist svo sam­komu­lag á milli félags­ins Ramses II, sem er í fullri eigu Eyþórs, og félags­ins Katt­ar­nefs um að annað félag í eigu Eyþórs, sem heitir Ramses, keypti kröf­una sem Katt­ar­nef átti á Ramses II. Virði hennar var, líkt og áður sagði, krónur núll í bókum Katta­nefs.

Hlutur Eyþórs í Árvakri hefur rýrnað vegna ítrek­aðra hluta­fjár­inn­spýt­inga ann­arra hlut­hafa og fyrir nýj­ustu aukn­ing­una var Eyþór eig­andi 13,41 pró­sents hlutar í útgáfu­fé­lag­inu. Sá eign­ar­hlutur var met­inn á 82,4 millj­ónir króna í lok árs 2020 og hefur lækkað um meira en 100 millj­ónir króna í virði frá árs­lokum 2017.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur opin­ber­lega gert athuga­semdir við þróun eign­ar­halds á stærri fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum lands­ins. Í umsögn um frum­varp um rekstr­ar­styrki til fjöl­miðla, sem skilað var inn til Alþingis í byrjun árs 2020, sagði að „eign­ar­hald stærri einka­rek­inna fjöl­miðla hefur í vax­andi mæli þró­ast á þann veg að eign­ar­haldið hefur færst á hendur fjár­sterkra aðila sem standa fyrir til­tekna skil­greinda hags­muni í íslensku atvinnu­lífi. Í sumum til­vikum blasir við að ráð­stöfun þess­ara aðila á fjár­munum í fjöl­miðla­rekstur hefur það meg­in­mark­mið að ljá hags­munum við­kom­andi aðila enn sterk­ari rödd og vinna þeim þannig frek­ari fram­gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár