Landlæknir leiðréttir „misskilning“ Óttars – lagatúlkun ráðuneytisins opni á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins

Velferðar­ráðuneytið styðst við laga­túlkun sem gæti reynst Klíníkinni hagstæð. Land­læknir telur túlkunina gera það að verkum að einka­rekstur á sviði sérhæfðrar þjónustu geti haldið áfram að vaxa.

Land­læknir telur að túlkun heilbrigðis­ráðuneytisins á heilbrigðis­lögum geri það að verkum að einka­rekstur og einka­væðing á sviði sérhæfðrar heilbrigðis­þjónustu og sjúkrahús­þjónustu geti haldið áfram að vaxa hér á landi. Slík þróun eigi sér stað í skjóli samnings Sjúkra­trygginga Íslands og Lækna­félags og vandséð sé hvernig heilbrigðis­yfirvöld geti haft stjórn á því hvert opinbert fjármagn rennur til heilbrigðis­mála og hvaða rekstrar­form verði ríkjandi í íslensku heilbrigðis­kerfi.

Embætti land­læknis sendi út tilkynningu í gær vegna misskilnings sem gætir í umræðu um heilbrigðis­þjónustu. Leið­réttir land­læknir bæði ummæli sem Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra lét falla á Alþingi þann 23. mars og full­yrðingu sem birtist í frétt Morgun­blaðsins daginn eftir.

Þegar rætt var um málefni heilbrigðis­fyrir­tækisins Klíníkurinnar í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi þann 23. mars sagði Óttarr: „Það er ekki ég sem veiti starfs­leyfi fyrir starfsemi eða stofum, aðstöðu sérfræðinga úti í bæ, það er embætti land­læknisins sem veitir starfs­leyfi fyrir stöðinni.“ 

„Embætti land­læknis hefur ítrekað reynt að leiðrétta þann misskilning að embættið veiti leyfi til rekstrar heilbrigðis­þjónustu“

Í tilkynningu land­læknis segir hins vegar: „Embætti land­læknis (EL) hefur ítrekað reynt að leiðrétta þann misskilning að embættið veiti leyfi til rekstrar heilbrigðis­þjónustu. Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu á land­læknir að staðfesta að fyrir­hugaður rekstur heilbrigðis­þjónustu uppfylli faglegar lágmarks­kröfur. Í lögum um heilbrigðis­þjónustu stendur að þegar um er að ræða svokallaða sérhæfða heilbrigðis­þjónustu þurfi leyfi ráðherra til rekstrarins.“

Starfsemi Klíníkurinnar eins og hver annar stofurekstur

Bendir land­læknir á að embættið hafi þegar staðfest að starfsemi Klíníkurinnar Ármúla með fimm daga legudeild uppfylli faglegar lágmarks­kröfur um sérhæfða sjúkrahús­þjónustu.

„Embættið hefur því bent ráðuneytinu á að samkvæmt skilningi þess á lögum þurfi leyfi ráðherra til þess að hefja rekstur legu­deildar með tilheyrandi aðgerðum.“ 

 

Ráðuneytið lýsti því hins vegar yfir í desember síðastliðnum, þegar Kristján Þór Júlíusson var heilbrigðis­ráðherra, að það væri ósammála túlkun embættisins; líta bæri á rekstur Klíníkurinn sem hvern annan stofu­rekstur lækna sem ekki þyrfti leyfi ráðherra. 

Eins og Stundin hefur áður bent á tengist fyrir­tækið Klíníkin Sjálfstæðis­flokknum sterkum böndum. Á meðal hluthafa eru Hrólfur Einarsson, náfrændi Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra, Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðar­kona sem verið hefur einn stærsti hluthafi Morgun­blaðsins undan­farin ár, Ásta Þórarins­dóttir sem Bjarni Benediktsson skipaði sem stjórnar­formann Fjármála­eftirlitsins árið 2015 og Ásdís Halla Braga­dóttir, stjórnar­formaður fyrir­tækisins sem er fyrr­verandi bæjar­stjóri Sjálfstæðis­flokksins í Garðabæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár