Shell hættir að vera konunglega hollenskt

Olíu­risinn Royal Dutch Shell ætlar sér að flytja höfuð­stöðvar sínar til Bretlands og skatta­lega heimilis­festi líka. Þá má félagið ekki lengur heita Royal Dutch.

Breytingarnar segir Shell gerðar til þess að einfalda skipulag félagsins.
Breyt­ing­arnar segir Shell gerðar til þess að ein­falda skipu­lag félags­ins. Mynd: EPA

Olíu­risinn Royal Dutch Shell stefnir á að færa höfuð­stöðvar sínar og skatta­lega heimilis­festi fyrir­tækisins alfarið til Bretlands, en í dag er fyrir­tækið með höfuð­stöðvar sínar í Hollandi þrátt fyrir að félagið sjálft sé skráð í Bretlandi.

Þessar breytingar, sem tilkynntar voru í morgun, eru samkvæmt félaginu ætlaðar til einföldunar, en Shell mun einnig hætta að vera með hlutabréf félagsins í tveimur hlutabréfa­flokkum. Félagið er í dag með einn hlutabréfa­flokk sem kalla má hollenskan og annan sem kalla má breskan.

Shell, sem er um tuttugasta stærsta fyrirtæki heims, mun einnig breyta um nafn ef tillaga um þessar breytingar á skipulagi félagsins verður samþykkt á hluthafa­fundi þann 10. desember næst­komandi – og fjarlægja Royal Dutch úr nafninu.

Shell hefur verið Royal Dutch allt frá árinu 1907, en þá sameinuðust breska félagið Shell Transport and Trading Company og hollenska félagið Royal Dutch Petroleum Company.

Í tilkynningu frá Shell segir að það hafi verið fyrir­tækinu mikill heiður að tengjast hollensku krúnunni í gegnum nafnið, en að fyrir­tækið búist við að uppfylla ekki lengur skilyrði fyrir því eftir að höfuð­stöðvarnar verða fluttar til Lundúna.

Vonbrigði í Hollandi en ánægja í Bretlandi

Þessi ákvörðun Shell er sögð hafa komið töluvert á óvart, en stjórn­málamenn í ríkjunum tveimur eru eins og e.t.v. gefur að skilja misánægðir með ákvörðun olíu­risans.

Orkumála­ráðherra Bretlands, Kwasi Kwarteng, fagnar tíðindinunum í yfir­lýsingu á Twitter og segir hana sýna að Shell hafi ljóslega mikið traust á breska hagkerfinu, en Stef Blok, efnahags- og loftslags­mála­ráðherra í hollensku stjórninni, hefur hins vegar lýst því yfir að tíðindin hafi verið óvænt og hreint ekki ánægjuleg.

Rifjað hefur verið upp í tengslum við þessar fyrir­ætlanir Shell að einungis um hálft ár er liðið frá því að fyrir­tækið var skyldað til þess af dómstóli í Hollandi að draga út losun gróðurhúsa­lofttegunda um 45 prósent fyrir 2030, miðað við árið 2019.

Shell hyggst áfrýja því máli til æðri dómstiga í Hollandi, en niður­staða dómstólsins tók einungis til starfsemi fyrir­tækisins í Hollandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár