Þúsund milljarða dala innviðauppbygging í Bandaríkjunum

Gríðarlegar framkvæmdir á vegum hins opinbera í Banda­ríkjunum munu fara fram á næstu misserum nái helsta stefnumál Donalds Trumps í efnahags­málum fram að ganga.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Óhætt er að segja að Donald J. Trump Bandaríkja­forseti ætli sér að standa við stóru orðin um að byggja innviði Banda­ríkjanna upp að nýju en hann hyggst óska eftir fjár­heimild frá þinginu upp á eitt þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 106 þúsund milljörðum króna, til að styrkja innviði landsins, svo sem vegi og lestar­samgöngur.

Upphæðin er risavaxin, jafnvel á mæli­kvarða Banda­ríkjanna. Þetta er upphæð sem nemur um ríflega 331 þúsund krónum á hvern Bandaríkja­manna. Hlutfalls­lega, fært niður á íslenskan veruleika, væri um að ræða áætlun upp á 109 milljarða framkvæmdir.

Líklega verður þetta ekki auðsótt hjá Trump ef marka má reynslu forvera hans, Baracks Obama, því líkt og Trump ætlar sér nú, þá reyndi Obama ítrekað að fá samþykktar auknar fjár­heimildir til innviða­framkvæmda, meðal annars í vegi og lestar­samgöngur, líkt og Trump hefur hug á því að gera nú.

Repúblikanar stöðvuðu þessar beiðnir ítrekað, og var þó um að ræða aðeins brot af þessari upphæð sem Trump hyggst fá fram nú. Nú er hins vegar öldin önnur og meiri líkur en minni á að Repúblikanar muni standa með forsetanum þegar kemur að þessu stefnu­máli.

Samhliða þessu verður 10 prósent útgjalda­aukning til hermála, eða um sem nemur 54 milljörðum Bandaríkja­dala. Á móti þessari gríðar­legu útgjalda­aukningu hyggst Trump skera niður í öllum öðrum mála­flokkum, einkum og sér í lagi allri opinberu félags- og heilbrigðis­þjónustu.

Í stefnu­ræðu sinni í lok febrúar sagði hann ríkissjóð Banda­ríkjanna hafa eytt sex þúsund milljörðum Banda­ríkjanna í stríðs­rekstur í miðausturlöndum, og það væri óásættanlegt. „Fyrir þá upphæð hefðum við getað endurnýjað alla innviði tvisvar, jafnvel þrisvar,“ sagði Trump.

Nýjustu hagtölur í Banda­ríkjunum sýna áfram­haldandi efnahags­bata en í síðasta mánuði voru sköpuð 298 þúsund ný störf í landinu, en flestar spár höfðu gert ráð fyrir um 200 þúsund nýjum störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár