Atvinnuleysi ekki minna síðan í desember 2018 en langtímaatvinnulausir eru mun fleiri

Þótt atvinnu­leysi sé hverfandi á Íslandi í dag þá eru mun fleiri langtíma­atvinnu­lausir nú en fyrir kórónu­veiru­faraldur. Atvinnu­leysi erlendra ríkis­borgara fer minnkandi þótt erlendir séu nú hlutfalls­lega stærri hluti af atvinnu­lausum en í sumar.

Störfum í byggingaiðnaði hefur fjölgað mikið undanfarin misseri.
Störfum í bygg­inga­iðn­aði hefur fjölgað mikið und­an­farin miss­eri. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru 2,8 prósent vinnu­færra lands­manna án atvinnu í lok september, eða 5.409 manns. Það er minnsta atvinnu­leysi sem hefur mælst hér á landi frá því í desember 2018, eða í næstum fjögur ár.

Á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð mæld­ist atvinnu­leysið mest í jan­úar 2021, 11,6 pró­­sent, og heild­­ar­at­vinn­u­­leysi að með­­­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­­sent. Það þýddi að alls 26.403 voru annað hvort atvinnu­lausir að öllu leyti eða í minnk­uðu starfs­hlut­falli á þeim tíma, eða um 21 þús­und fleiri en um síð­ustu mán­aða­mót.

Í upphafi þessa árs var það komið niður í 5,2 prósent og hefur næstum helmingar síðan þá.

Þetta kemur fram í nýjustu mánaðar­skýrslu Vinnumála­stofnunar. HúnAtvinnuleysi ekki minna síðan í desember 2018 en langtíma­atvinnu­lausir mun fleiri spáir því að atvinnu­leysið muni ekki breytast mikið í október. Nú er enda staðan sú hérlendis að skortur er á starfs­fólki og þau störf sem verða til í hag­kerf­inu eru að stórum hluta fyllt af erlendu starfs­fólki, sem er nú um 20 pró­sent af öllu vinnu­afli hér­lend­is.

Í nýlegri könnun sem gerð var á meðal stjórn­enda 400 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins sagði 54 pró­sent þeirra að skortur væri á vinnu­afli. Hlutfall fyrir­tækja sem segja að það sé skortur á starfs­fólki hefur einungis einu sinni mælst hærra, árið 2007 þegar banka­góðærið var í hámarki.

Langtímaatvinnuleysið meira en það var

Í síð­ustu mán­aða­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar kemur fram að 2.279 manns verið atvinnu­lausir í meira en tólf mán­uði í lok september. Það eru mun fleiri en glímdu við slíkt atvinnu­leysi fyrir far­ald­ur­inn. Í febr­úar 2020, þegar atvinnu­leysi var hlut­falls­lega meira en það er núna, höfðu 1.893 verið án atvinnu í ár eða leng­ur. Í desember 2018, þegar atvinnu­leysi var síðast svona lítið, voru einungis 977 skilgreindir sem langtíma­atvinnu­lausir, eða 43 prósent þeirra sem eru það í dag. Vert er að hafa í huga að starfandi einstaklingum hefur fjölgað á síðustu fjórum árum samhliða fjölgun starfa.

Fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra er því 20 pró­sent meiri nú en hann var þá, í minna atvinnu­leysi. Í febr­úar 2020, þegar atvinnu­lífið var enn að glíma við afleið­ingar af gjald­þroti WOW air og loðnu­brest, voru 21 pró­sent allra atvinnu­lausra flokk­aðir lang­tíma­at­vinnu­lausir en nú er það hlut­fall 42 pró­sent og hefur farið vaxandi á undan­förnum mánuðum.

Erlendir 43 prósent atvinnulausra

Atvinnu­leysi hjá erlendum rík­is­borg­urum hefur farið lækkandi á síðustu mánuðum og mælist nú 5,8 prósent. Til saman­burðar var það 7,3 prósent í lok júlí. Alls voru 2.505 erlendir atvinnu­leitendur án atvinnu í lok september, sem er 337 færri en tveimur mánuðum fyrr.

Hlutfalls­lega eru erlendir ríkis­borgarar þó stærri hluti af atvinnu­lausum en þeir voru í sumar. Í júlí voru þeir 43 prósent allra í atvinnu­leit en í dag eru þeir rúmlega 46 prósent.

Alls bjuggu 61.047 erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi í byrjun september. Þeir eru 15,9 pró­sent allra íbúa. Því liggur fyrir að atvinnu­leysi er mun meira á meðal þeirra en íslenskra rík­is­borg­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár