„Gera ráð fyrir að sjúkrahúsin á landinu skeri niður um tæpa 5,2 milljarða“

María Heimis­dóttir, fjármála­stjóri Land­spítalans, rýndi í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar á ársfundi spítalans og forstjórinn sagðist gáttaður á stjórn­völdum fyrir að neita að horfast í augu við „blákaldar stað­reyndir“ um rekstur heilbrigðis­kerfisins.

Samkvæmt fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar þurfa sjúkrahús á Íslandi að skera niður í rekstri um tæpa 5,2 milljarða á næstu fimm árum til að skapa svigrúm til nýrra verkefna. Þetta kom fram í ræðu Maríu Heimis­dóttur, framkvæmda­stjóra fjármála­sviðs Land­spítalans, á ársfundi spítalans í gær. Hún sagðist vona að stjórn­völd hefðu einfald­lega ruglast þegar unnið var að fjármála­áætluninni og benti á að í umfjöllun áætlunarinnar um heilbrigðis­útgjöld á Norður­löndunum væri miðað við allt aðrar tölur en almennt tíðkast í slíkum saman­burði. Í ljósi loforða sem gefin hefðu verið um eflingu heilbrigðis­kerfisins mætti draga þá ályktun að hið undarlega val á viðmiðunar­tölum hefði einfald­lega truflað vinnslu áætlunarinnar. 

„Tillaga stjórn­valda virðist því gera ráð fyrir að sjúkra­húsin á landinu skeri niður um tæpa 5,2 milljarða á tíma­bilinu til að skapa svigrúm fyrir það sem kallað er aukin framlög til nýrra verkefna,“ sagði María eftir að hafa rakið hvernig útgjaldarammi fjármála­áætlunarinnar virðist fela í sér kröfu um mikla hagræðingu í rekstri sjúkra­húsa landsins næstu árin. 

Páll Matthíasson, forstjóri Land­spítalans, flutti ávarp á ársfundinum og gagnrýndi stefnu stjórn­valda á sviði heilbrigðis­mála. „Ég vil vera alveg heiðar­legur við ykkur og segi því að ég eiginlega skil bara ekkert í þessu. Hvernig má það vera að vel meinandi stjórn­völd neiti að horfa á blákaldar stað­reyndir sem við súmmerum upp með gagna­öflun og upplýsinga­gjöf. Hvað erum við að gera vitlaust? Hvernig má þetta vera, þegar það gengur svona vel á Íslandi?“ sagði hann.

Í ræðu sinni benti María Heimis­dóttir á að samkvæmt útgjaldaramma sjúkrahús­þjónustu væri gert ráð fyrir heildar­aukningu upp á tæpa 45 milljarða á næstu fimm árum. „Ekki er mögulegt að greina nema að litlu leyti hvaða hlutur fjár­framlaga til sjúkrahús­þjónustu er ætlaður Land­spítala þannig að okkar greining miðast við að Land­spítala séu ætluð öll viðbótar­fjárframlög nema annað sé sérstak­lega tekið fram. Þessi greining sýnir því eins jákvæða mynd af fjár­framlögum til Land­spítala og unnt er út frá tillögu stjórn­valda,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár