Líf mitt í 5 réttum

Valgerður Matth­í­as­dóttir sjónvarps­kona deilir hér minningum um mat. Hún segir frá þeim fimm réttum sem hún tengir mest við og útskýrir af hverju.

1. Sigin grásleppa

Ég er alin upp af kennurum og móður sem var bæði kennari og skóla­stjórnandi í fullu starfi, sex barna móðir og mjög virk stjórn­málakona sem tók meðal annars þátt í stofnun Kvenna­listans og kjara­baráttu kennara. En hún var einnig mjög listræn og það segir í raun allt sem segja þarf um það mataræði sem ég var alin upp við. Skynsemi, tímaþröng, einfald­leiki en á sama tíma ótrúlega mikil frum­legheit og bragðgæði á heims­mælikvarða. Hún var einstak­lega lunkin við að henda í dýrindis rétti þrátt fyrir að vera alltaf í fullu starfi og með allan krakka­skarann. Við mamma áttum okkar sérstöku stundir þegar hún keypti signa grásleppu og sauð örstutt ásamt kartöflum og smjöri, en sigin grásleppa hefur verið einn af mínum uppáhalds réttum síðan. Þessi réttur minnir mig líka á grásleppurnar sem grásleppu­karlarnir veiddu út frá Ægisíðu og svo sauð mamma líka oft rauðmaga sem mér fannst algjört sælgæti. Hún var mikill Vesturbæ­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár