Flugið nær fyrri styrk

Júlí var metmánuður í farþega­flutningum hjá Play og Icelandair þokast nær þeim farþega­tölum sem sáust fyrir kórónu­veiru­faraldur. Farþega­fjöldi um Kefla­víkur­flugvöll var meiri í júlí síðastliðnum en í sama mánuði árið 2019.

Fleiri farþegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí síðastliðinum en í sama mánuði árið 2019.
Fleiri far­þegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar í júlí síð­ast­lið­inum en í sama mán­uði árið 2019. Mynd: ISAVIA

Flug­félagið Play Air hefur aldrei flutt jafn marga farþega og í síðasta mánuði en fjöldinn nam 110 þúsundum í mánuðinum. Fjöldi farþega sem flogið hafa með flug­félaginu hefur vaxið í hverjum mánuði það sem af er ári en í júní flugu 88 þúsund með Play. Flug­félagið tók sína sjöttu þotu í notkun í síðasta mánuði en í flota félagsins eru nú þrjár Airbus A321neo og þrjár Airbus A320neo vélar í rekstri. Stefnt er að því að bæta fjórum þotum í flota félagsins í vetur sem mun færa fjölda Airbus þota í flota félagsins upp í tíu vorið 2023.

Flug­félagið tók til starfa í júlí á síðasta ári og flutti samtals um rúmlega 101 þúsund farþega á fyrstu sex starfs­mánuðum félagsins. Því flugu fleiri með hinu nýja flug­félagi í síðasta mánuði heldur en á síðasta ári. Á síðasta ári var sæta­nýting Play rúm 53 prósent en sæta­nýting félagsins hefur vaxið jafnt og þétt á þessu ári. Í júlí var sæta­nýtingin 88 prósent, saman­borið við 79 prósent í júní, og hefur hún aldrei verið eins góð.

Icelandair nálgast sömu umsvif og fyrir faraldur

Sæta­nýting Icelandair var einnig góð í júlí, 89 prósent. Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að hún hafi aldrei verið hærri í júlí­mánuði. Í mánuðinum flutti Icelandair 504 þúsund farþega í milli­landaflugi og er það í fyrsta sinn frá því í fyrir kórónu­veiru­faraldur sem farþega­fjöldi félagsins í einum mánuði fer yfir hálfa milljón. Fjöldi farþega í milli­landaflugi í júní var 407 þúsund.

Icelandair kemst þar af leiðandi nálægt því að ná sömu farþega­tölum og fyrir faraldur en farþega­fjöldinn í júlí síðastliðnum var 89 prósent af því sem hann var í sama mánuði árið 2019. Í júlí á síðasta ári flutti flug­félagið aftur á móti 195 þúsund farþega í milli­landaflugi.

Í tilkynningu frá Icelandair er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra að góð sæta­nýting sé eftirtektar­verð. „Eftir­spurn er og hefur verið mikil og ljóst er að mikil uppsöfnuð ferðaþörf er til staðar,“ segir Bogi Nils.

Framkvæmdir við nýja austurálmu standa yfir á Keflavíkurflugvelli

Nýjar farþega­tölur frá Kefla­víkur­flugvelli, gefnar út af Isavia, sýna einnig fram á bata í ferða­þjónustunni. Í júlí síðastliðnum fóru rúmlega 852 þúsund farþegar um flug­völlinn og voru það fleiri farþegar en fóru um flug­völlinn í sama mánuði árið 2019.

Í tilkynningu Isavia er haft eftir Guðmundi Daða Rúnars­syni að nú sé mikilvægt að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin hafi verið í uppbyggingu á Kefla­víkur­flugvelli til að mæta eftir­spurninni sem fari vaxandi.

„Framkvæmdir hafa staðið yfir á Kefla­víkur­flugvelli meðal annars vegna byggingu 1200 metra akbrautar fyrir flugvélar og byggingar á nýrri austur­álmu sem er rúmlega 20.000 fermetrar að stærð sem mun bæta upplifun farþega og flug­félaga frá 2024. Á sama tíma hafa bæði Icelandair og Play tilkynnt stækkun flugflota á næstu misserum og því mikil þörf á að framkvæmdir á flug­vellinum haldi áfram,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár