Icelandair flytur störf til Tékklands

Hag­stæð­ara fyrir Icelandair að not­ast við starfs­menn í Tékk­landi en á Íslandi.

Um mán­að­ar­mótin fá níu starfs­menn Icelandair Ground Services upp­sagn­ar­bréf. Þetta var til­kynnt á fundi með starfs­mönnum um mán­að­ar­mótin. Icelandair Ground Services er dótt­ur­fé­lag Icelandair en móð­ur­fé­lagið hyggst hag­ræða og flytja störf úr landi, nánar til­tekið til Tékk­lands. Störfin sem um ræðir tengj­ast svoköll­uðu hleðslu­eft­ir­liti eða „Load Control“ en þeir starfs­menn gefa út hleðslu­fyr­ir­mæli til hlað­deildar sem síðan sér um að hlaða flug­vél­arnar. Þetta stað­festir Gunnar Olsen, fram­kvæmda­stjóri IGS, í sam­tali við Stundina en hann segir að öllum þeim níu starfs­mönnum sem sagt verður upp um mán­að­ar­mótin verði boðin önnur vinna innan fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er þó aðeins um sum­ar­vinnu að ræða og því alls óvíst hvort starfs­menn­irnir haldi störfum sínum eftir háanna­tím­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár