Bakaravandi

Það blæs ekki byr­lega fyrir danska bak­ara um þessar mundir. Svimandi hátt orku­verð og sífellt hækk­andi hrá­efn­is­kostn­aður neyðir æ fleiri bak­ara til að skella í lás. Þessi miss­erin lokar að jafn­aði eitt bak­arí í hverri viku.

Danir eru miklir mat­menn og þekktir víða um heim fyrir mat­ar­ást sína. Margir fá vatn í munn­inn þegar minnst er á pur­u­steik, kjöt­bollur, hakk­buff með lauk og spæ­leggi og pylsur. Að ekki sé minnst á smur­brauðið, sem ensku­mæl­andi og margir aðrir kalla „dan­ish open sandwich“.

Danskar drykkj­ar­vörur eru sömu­leiðis þekktar um víða ver­öld. Carlsberg og Tuborg bjór­inn þekkja flestir. Sama má segja um Gammel Dansk snafs­inn og Ála­borgar áka­vítið, en fyrir kald­hæðni örlag­anna eru bæði sá gamli og áka­vítið nú fram­leidd í Noregi. Danir hugga sig við að upp­skrift­irnar að þessum þekktu veigum séu danskar og rétt að nefna að Danir fram­leiða eftir sem áður margar gerðir af snafs og áka­víti.

Ekki má svo gleyma bakk­els­inu. „Danish pastry“ er víða um lönd eins konar sam­heiti yfir sæta­brauð, einkum vín­ar­brauð af ýmsu tagi. Danskar smákökur í dósum eru vin­sælar meðal ferða­manna, ekki síst asískra, sem leggja leið sína til Dan­merkur. Hundruð, eða þús­undir, tonna af þessum smákökum eru auk þess árlega fluttar til Kína og seldar í versl­unum þar í landi. Fyrir nokkru var greint frá því að kín­verskt fyr­ir­tæki hafi fengið dóm fyrir að fram­leiða eft­ir­lík­ingar af dönsku kök­unum og þær seldar sem danskur bakstur í Kína.

Margt af því sem boðið er upp á í íslenskum bak­ar­íum á rætur að rekja til Dan­merkur. Ritari þessa pistils var í Kaup­manna­höfn fyrir skömmu og varð gengið fram­hjá dæmi­gerðu dönsku bak­aríi í íbúða­hverfi á Amager. Í glugg­unum var flest af því sem sjá má í bak­ar­íum hér á landi: vín­ar­brauðs­lengjur, sér­bökuð vín­ar­brauð, vín­ar­brauðskringlur, kanilsnúðar og fleira og fleira. Kleinur voru þarna líka, öðru­vísi í lag­inu en hjá okkur og sömu­leiðis voru snúð­arnir í þessu bak­aríi minni en við eigum að venj­ast. Í hillum inn­an­dyra voru líka margir „kökukunn­ingjar“, lagtertur brúnar og hvítar og möndlukökur svo fátt eitt sé nefnt.

Bakaríin, brauðið, stórverslanir og bensínstöðvar

Áratugum saman hefur ferð í bak­aríið verið fastur liður í lífi danskra fjöl­skyldna, einkum um helgar. Sunnu­dagur ætíð anna­samasti dagur vik­unnar hjá bök­urum. Þannig er það reyndar enn, en á und­an­förnum árum hefur margt breyst.

Mat­vöru­versl­anir ger­ast æ umsvifa­meiri í köku- og brauð­sölu. Sumar þeirra, einkum þær stærstu, eru með eigin bak­arí en margar selja svo­nefnt „bakeoff“. Það er frosin hálf­bökuð vara, iðu­lega inn­flutt, sem svo er skellt í ofn­inn og bakst­ur­inn klár­aður. Margar bens­ín­stöðvar bjóða líka sams­konar bakstur. Bakarar, sem vinna allt frá grunni, eiga í harðri sam­keppni við „bakeoff“ kruð­er­íið og á und­an­förnum árum hefur dönskum bak­ar­íum fækkað. Flest voru þau árið 2005 um 1200 tals­ins en fækk­aði næstu árin. Þar átti áður­nefnd sam­keppni við versl­anir og bens­ín­stövar stóran hlut. Fyrir nokkrum árum virt­ist ástandið þó vera að breyt­ast, þeim sem vildu kaupa bakst­ur­inn hjá „bak­ar­anum á horn­inu“ fjölg­aði. En þá mætti annar vandi bök­urum, hann var sá að æ færri lögðu bak­ara­námið fyrir sig. Margir bak­arar stóðu frammi fyrir því að geta ekki fengið fag­fólk til starfa. Á síð­asta ári útskrif­uð­ust 153 bak­arar en það hrekkur ekki til, margir í bak­ara­stétt­inni eru orðnir nokkuð við aldur og fyr­ir­séð að á næstu árum fjölgi þeim sem fari á eft­ir­laun. Á þessu ári hafa þó aðrir og meiri erf­ið­leikar mætt dönskum bök­urum.

Orku- og hráefniskostnaður setur strik í reikninginn

Innrásin í Úkraínu og átökin þar hafa haft miklar afleið­ingar, sem danskir bak­arar hafa ekki farið var­hluta af. Verð á hveiti og korn­vöru hefur hækkað veru­lega, smjör hefur sömu­leiðis meira en tvö­fald­ast í verði að und­an­förnu. Verð­hækk­unin á smjöri hefur valdið mik­illi óánægju meðal Dana og danska Sam­keppn­is­eft­ir­litið fer þessa dag­ana í saumana á „smjör­mál­inu“ eins og það er kallað. Og orku­verðs­hækk­anir verða sömu­leiðis skoð­aðar

Til við­bótar auknum hrá­efn­is­kostn­aði glíma danskir bak­arar við annan vanda: stór­auk­inn orku­kostnað. Bakst­ur­inn er orku­frekur, hvort sem not­ast er við gas eða raf­magn við bakst­ur­inn. Hjá mörgum bök­urum hefur orku­kostn­að­ur­inn þre­fald­ast, eða jafn­vel rúm­lega það. Það er meira en margir ráða við og þá er bara eitt að gera: slökkva á ofn­unum.

Fækkar um eitt á viku og bakarar uggandi

Í byrjun þessa árs voru um það bil 750 bak­arí í Danmörku. Eftir inn­rás­ina í Úkraínu hefur þeim fækkað og um þessar mundir fækkar þeim um eitt í viku hverri. Bakarar ótt­ast að þeim sem gef­ast upp og skelli í lás muni fjölga til muna á næst­unni. Henrik Mühlend­orph fram­kvæmda­stjóri sam­taka danskra bak­ara- og köku­gerð­ar­meist­ara, BKD, sagði í við­tali við við­skipta­vefritið Finans að sam­tök­unum bær­ust sífellt fleiri til­kynn­ingar frá bök­urum um að rekst­ur­inn væri að fara í þrot. „Þeim fjölgar sífellt sem sjá enga lausn aðra en að loka“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár