Gott hjá Lilju að taka af skarið

Stefán Ólafsson segir tillögu menningar- og viðskipta­ráðherra um afnám skerðinga góða. Hann segir þó að tillagan sé ekki róttæk og að hún ætti ekki að vera tíma­bundin.

„Ég hef um langt árabil fært rök fyrir því að afnema eigi með öllu skerðingar vegna atvinnu­tekna í almanna­trygginga­kerfinu, bæði fyrir öryrkja og eftir­launafólk. Þannig er það í Noregi og Svíþjóð og Danir skerða mun minna en við vegna atvinnu­tekna.“

Þetta skrifar Stefán Ólafsson, pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur hjá Efl­ing­u, í færslu á Facebook í dag.

Kjarninn greindi frá því í dag að Lilja Alfreðs­dóttir menningar- og viðskipta­ráðherra teldi að það ætti að minnka eða afnema skerðingar vegna atvinnu­tekna til þess að mæta skorti á starfs­fólki á íslenskum vinnu­markaði. „Ég veit að þetta er mjög róttækt,“ sagði ráðherrann um tillögu sína.

Þetta á að framkvæma strax og vera varanlegt

Stefán segir að það sé gott hjá ráðherranum að taka af skarið með þetta mál. „Það er hins vegar rangt hjá Lilju að þetta sé róttæk aðgerð og að hún ætti að vera tíma­bundin,“ skrifar hann.

Hann segir jafnframt að þessi aðgerð sé ekki róttækt því þessar skerðingar þjóni engum skyn­samlegum tilgangi. „Þær eru einungis til að gera lágtekju-lífeyrisþegum erfiðara fyrir með að bjarga sér með atvinnu­þátttöku. Þær eru stór hluti af þeirri fátæktar­gildru sem er í almanna­trygginga­kerfinu.

Og skerðingar vegna atvinnu­tekna spara rikinu ekki útgjöld sem neinu nemur. Raunar gæti aukin atvinnu­þátttaka skilað ríkinu auknum skatt­tekjum umfram það sem tapast við afnám skerðinganna. Þetta á því að framkvæma strax og vera varanlegt,“ skrifar hann og bætir því við að einnig þurfi að draga úr skerðingum vegna lífeyris­sjóðs­tekna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár