Vill minnka eða „hreinlega afnema“ skerðingar vegna atvinnutekna

Lilja Alfreðs­dóttir menningar- og viðskipta­ráðherra telur að það ætti að minnka eða afnema skerðingar vegna atvinnu­tekna til þess að mæta skorti á starfs­fólki á íslenskum vinnu­markaði. „Ég veit að þetta er mjög róttækt,“ sagði ráðherrann um tillögu sína.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir menningar- og viðskipta­ráðherra telur rétt að bregðast við skorti á vinnuafli hérlendis með því minnka eða afnema skerðingar í 24 mánuði, eða á meðan skortur á vinnuafli er til staðar.

Þetta var á meðal þess sem kom fram í rúmlega tuttugu mínútna langri ræðu ráðherra á fundi Viðskipta­ráðs Íslands og Arion banka í gær, sem helgaður var umræðu um samkeppnis­hæfni Íslands.

„Ég tel að það eigi að minnka eða jafnvel afnema hreinlega skerðingar og ég veit að þetta er mjög róttækt en við munum bara þurfa á fólki að halda,“ sagði Lilja í ræðu sinni á fundinum og bætti því við að „gallinn við það kerfi sem við erum búin að búa til“ væri að „ef þú vinnur eitthvað, þá ertu strax kominn í einhverjar skerðingar og það er svo letjandi fyrir fólk“.

„Kerfið fer strax að refsa þér – og ég held að á meðan það er skortur á vinnuafli þá eigum við að taka einhver svona róttæk skref,“ sagði Lilja.

Afnám skerðinga var ein af fjórum aðgerðum sem Lilja sagði rétt að ráðast til þess að viðhalda nauðsyn­legum vexti vinnuafls hérlendis. Hinar þrjár voru þær að taka ætti stór skref í að auka valfrelsi til atvinnu og afnema aldurs­tengd starfslok, nýta gervi­greind og sjálfvirkni­væðingu í auknum mæli og fjölga erlendum sérfræðingum í íslensku atvinnu­lífi. Varðandi það síðastnefnda sagði Lilja að lykil­atriði væri að bæta samkeppnis­hæfni alþjóðlegra grunn­skóla hérlendis.

Fjármálaráðherra tók illa í tímabundið afnám skerðinga í fyrra

Drífa Snædal forseti ASÍ stakk upp á því undir lok janúar í fyrra að árið 2022 yrði gert að skerðingar­lausu ári, til þess að fólk sem fengi bætur frá almanna­trygginga­kerfinu hefði tækifæri til að „bæta líf sitt, vinna eftir getu og losna tíma­bundið úr spenni­treyjunni“ þegar verið væri að keyra hagkerfið aftur í gang eftir heims­faraldurinn.

Flokkur fólksins hefur einnig lagt fram frumvörp á þingi á undan­förnum þess efnis að allar skerðingar á öryrkja verði felldar niður tíma­bundið í tvö ár. Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður flokksins tillögu Drífu til umræðu á Alþingi í febrúar í fyrra og spurði Bjarna Benediktsson fjármála­ráðherra út í það hvernig honum litist á.

Bjarna leist ekki vel á tillögu Drífu.

„Ef við horfum á hóp þeirra sem sæta skerð­ingum vegna tekna í almanna­trygg­inga­kerf­inu vill ASÍ leggja upp með þá stefnu að við skilum mestu til þeirra úr þessum hópi sem hafa það best. Með afnámi skerð­inga koma flestar krónur til þeirra sem hafa það best af þeim sem yfir höfuð sæta skerð­ing­um, alveg aug­ljóst. Þeir skerð­ast minnst sem hafa minnst. Þannig virkar kerfið í dag,“ sagði Bjarni, í umræðu um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár