Eyþór tengdur einum stærsta hagsmunaaðilanum í byggingarframkvæmdum í Reykjavík

Fóstur­faðir eiginkonu Eyþórs Arnalds, og viðskipta­félagi hans til margra ára, er varamaður í stjórn eins stærsta verktaka­fyrir­tækisins í Reykjavík, Þingvangs. Þing­vangur byggir hundruð íbúða víða um Reykjavík og eitt stærsta nýja hverfi borgarinnar í Laugarnesinu. Maðurinn heitir Hörður Jónsson og sonur hans, Pálmar Harðarson, er eigandi og framkvæmda­stjóri Þingvangs.

Eyþór Arnalds, borgar­stjóra­efni Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík í komandi sveitar­stjórnar­kosningum, er nátengdur einu stærsta verktaka­fyrirtæki Reykja­víkur, sem stendur að byggingu fjölda fasteigna um alla borg. Verktaka­fyrirtækið heitir Þing­vangur. 

Ef Eyþór verður borgar­fulltrúi eða borgar­stjóri í Reykjavík mun hann þurfa að taka ákvarðanir, beint eða óbeint, sem snúast um eða snerta hagsmuni þessa stóra verktaka­fyrirtækis, nema þá að hann segi sig frá allri slíkri aðkomu vegna vanhæfis.  

Viðskiptafélagi og tengdafaðir Eyþórs

Einm helsti viðskipta­félagi Eyþórs, Hörður Jónsson, er varamaður í stjórn Þingvangs og faðir eiganda og framkvæmda­stjóra verktaka­fyrir­tækisins. Hörður er jafnframt fóstur­faðir eiginkonu Eyþórs.

Hörður er húsa­smíða­meistari og hafa þeir Eyþór unnið saman í viðskiptum um árabil, meðal annars í fyrir­tækjunum Strokki Energy, Krossa­neseignum - eignarhalds­félagi utan um fasteign álþynnu­verksmiðju á Akureyri, Haga­vatns­virkjun og Íslenskri vatnsorku. Hörður er auk þess varamaður í stjórnum tveggja eignarhalds­félaga sem eiga Þingvang, Eigna­samsteypunni og Íslands­bersa.

Hörður Jónsson er faðir eiganda …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár