Biden sagði Trump að „stíga upp“ – Trump sagðist „elska“ mótmælendurna

Verðandi og núverandi forseti Banda­ríkjanna hafa talað með mjög mismun­andi hætti um öfga­mennina sem hafa gert árás á Banda­ríkjaþing.

Joe Biden, verðandi Bandaríkja­forseti, ávarpaði þjóð sína og aðra sem fylgjast slegnir með atburðunum í höfuðborg Banda­ríkjanna í kvöld.

Hann skoraði á Donald Trump, fráfar­andi forseta, um að ávarpa þjóðina í beinni sjónvarps­útsendingu og fordæma árásina á þingið og gera allt sitt til þess að reyna lægja öldurnar.

„Í þessum töluðu orðum er lýðræði okkar undir fordæma­lausri árás, sem er ólík öllu öðru sem við höfum séð í nútímanum“ sagði Biden í ræðu sinni, sem fjöl­miðlar um víða veröld sýndu í beinni útsendingu, enda hefur ofbeldis­fullur múgur brotist inn í húsakynni Banda­ríkjaþings á Kapitóluhæð í Washington DC.

Biden sagði að um væri að ræða „fámennan hóp öfgamanna“ og að það yrði að koma böndum á ástandið. Orð forsetans skiptu máli í því samhengi.

„Farið heim, við elskum ykkur“

Skömmu seinna setti Trump inn myndskeið á Twitter þar sem hann bað mótmælendur um að fara heim í friði.

En, í mynd­skeiðinu sagði hann einnig: „Við elskum ykkur“ og beindi orðum sínum til mótmælendanna.

Hann endurtók einnig, enn á ný, þau rangindi að hann hefði unnið kosningarnar sem fram fóru í Banda­ríkjunum 3. nóvember síðastliðinn. Hann sagðist skilja reiði fólks.

Fyrr í dag hélt hann ræðu frammi fyrir hópi mótmælenda í Washington og sagðist aldrei ætla að gefast upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár