Bjóða í ferðalag um furðuheim barnabókanna

Börnum og bókmenntum þeirra verður gert hátt undir höfði í Norræna húsinu næstu vikurnar. Á laugar­daginn verður þar opnuð gagnvirk ævintýra­sýning, Barna­bókaflóðið. Um miðjan mánuðinn hefst þar svo alþjóð­lega barna­bókmennta­hátíðin Mýrin með fjöl­breyttri dagskrá.

Inni í furðuheimi bókanna
Inni í furðu­heimi bókanna Kristín Ragna Gunn­ars­dóttir, teikn­ari og rit­höf­undur, er sýn­ing­ar­stjóri Barna­bóka­flóðs­ins sem brátt tekur yfir neðri hæð Norræna húss­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Á laugar­daginn kemur mun heimur íslenskra barnabóka taka neðri hæð Norræna hússins yfir, þegar sýningin Barna­bókaflóðið verður opnuð. Sýningar­stjórinn, Kristín Ragna Gunnars­dóttir, teiknari og rithöfundur, var í óða önn við undir­búning þegar blaða­maður Stundarinnar sló á þráðinn til hennar nokkrum dögum fyrir opnun. „Jú, hér er allt á fullu, verið að mála veggi og setja upp texta úr völdum barna­bókum,“ segir hún, spurð hvort það sé enn í nógu að snúast í Norræna húsinu, svona skömmu fyrir opnun.

Á sýningunni verða meðal annars málaðar myndir á veggina eftir þá mynd­höfunda sem verða gestir á Mýrinni, barna­bókmennta­hátíð Norræna hússins, sem tekur við af Barna­bókaflóðinu. Ein þeirra er Sigrún Eldjárn, en hún og bróðir hennar, Þórarinn Eldjárn, verða heiðurs­gestir bæði sýningarinnar og Mýrarinnar, sem er viðeigandi þar sem bæði tvö hafa sett mark sitt á íslenskar barna­bókmenntir svo um munar.

Jafnframt verða málaðir textar á veggina úr þeim bókum sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár