Amazon gæti orðið risi á við Apple

Grein­endur UBS telja að Amazon gæti hækkað að virði um 60 prósent á næstu tólf mánuðum.

Jeff Bezos er forstjóri Amazon.
Jeff Bezos er for­stjóri Amazon. Mynd: EPA.

Smásölu- og hugbúnaðar­risinn Amazon gæti hækkað mikið í verði á næstu tólf mánuðum, að mati greinanda UBS bankans, og teiknar hann upp sviðsmynd í nýjustu greiningu sinni þar sem verð­miðinn muni hækka um 60 prósent á næstu tólf mánuðum. Ef það myndi gerast, þá gæti farið svo að Amazon færi upp að hlið Apple, sem það fyrirtæki sem er með mesta markaðs­virðið. Virði Apple er nún 782 milljarðar Bandaríkja­dala, og er félagið langsamlega verð­mætasta skráða hluta­félag heimsins.

Í þeirri sviðsmynd er sérstak­lega horft til fjögurra þátta.

1) Sala á Prime áskrifendum aukist hraðar en búist er við, en talið er að þær séu nú ríflega 80 milljónir (talan er ekki gefin upp nákvæmlega)

2) Árangurinn á nýjum markaðs­svæðum og með nýjum vöru­lausnum verði betri en áætlað er.

3) Almennt betri sala og meiri velt á vefnum.

4) Lítill árangur verði í sölu vefþjónustu frá Apple og Google, keppinautum á markaði.

Hlutabréf Amazon hafa hækkað um þriðjung á árinu. Í júní tilkynnti félagið um kaup á Whole Foods matvöru­keðjunni fyrir 14,7 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1.500 milljörðum króna.



Markaðs­virði Amazon er nú 483 milljarðar Bandaríkja­dala, en uppgangur fyrir­tækisins hefur verið með ólíkindum á síðustu tveimur árum. Um mitt ár 2015 var verð­miðinn 138 milljarðar Bandaríkja­dala og hefur hann því marg­faldast frá þeim tíma.

Stofn­andinn Jeff Bezos, sem einnig er forstjóri, á ennþá 17 prósent hlut í fyrir­tækinu og nemur virði hans 82 milljörðum Bandaríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár