Ríkisendurskoðun skoðar lögmæti fjárframlaga til Viðreisnar

Fjár­festirinn Helgi Magnússon veitti Viðreisn fjár­styrki langt fram yfir lögbundið hámark, ef einka­hlutafélög í hans eigu eru talin með.

Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhann­es­son Formaður Við­reisnar hefur heitið því að gera upp­lýs­ingar um tengsl og eign­ar­hald fyr­ir­tækja aðgengi­legri en nú er. Mynd: Pressphotos

Ríkis­endurskoðun yfirfer nú fjár­framlög til stjórn­mála­flokksins Viðreisnar, vegna ábendinga um að flokkurinn hafi brotið lög um fjármál stjórn­málaflokka og fram­bjóðenda og um upplýsinga­skyldu þeirra. 

Í lögum er kveðið á um að hámarks­framlag lögaðila til stjórnmála­samtaka sé 400 þúsund krónur. Hins vegar megi tvöfalda þá upphæð þegar stjórn­málaflokkur er stofnaður.

Helgi Magnússon fjár­festir veitti Viðreisn styrk sem nemur hámarks­upphæðinni, 800 þúsund krónum. Hins vegar veittu félög í hans eigu Viðreisn einnig framlög. Helgi er skráður 100% eigandi Varðbergs ehf. og Hofgarða ehf. sem samtals veittu Viðreisn 800 þúsund króna styrk. Til viðbótar er Helgi einnig tengdur öðrum félögum sem gáfu Viðreisn 800 þúsund krónur til viðbótar, en þar er eignar­hald hans langt undir 10 prósentum.

Spurningin er hins vegar hvort hann sé lögform­lega „tengdur aðili“, samkvæmt skilgreiningu laganna, og hvort túlka beri lögin svo að framlög frá félögum í hans eigu séu talin með framlögum hans sem lögaðila.

„Við sáum ekkert athuga­vert í fyrstu skoðun“

„Staðan er bara þannig að við birtum þetta, við skoðum þetta, og ef við sjáum ekki neitt í fyrstu umferð og ef síðan kemur í ljós að eitthvað er að, þá látum við lagfæra það,“ segir Guðbrandur Leósson, sérfræðingur hjá Ríkis­endurskoðun, sem nú skoðar fjár­framlögin til Viðreisnar, sem nema 26,7 milljónum króna samtals.

„Við sáum ekkert athuga­vert í fyrstu skoðun,“ segir hann. „Ef í ljós kemur að eitthvað er að, þá er það bara bakfært. Ef eitthvað er í ólagi eru menn látnir endur­greiða.“

Í lögum um fjármál stjórn­málaflokka er kveðið á um að „telja skal saman framlög tengdra aðila.“ Guðbrandur segir að reglur um tengda aðila séu „nokkuð flóknar“.

Í lögum eru tengdir aðilar flokkaðir með þessum hætti: „Lögaðilar þar sem svo háttar til að sami aðili eða sömu aðilar eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðis­réttar í báðum eða öllum lögaðilunum, enda nemi eignar­hlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæða­fjölda í viðkomandi lögaðilum. Sama á við ef einstaklingar eða lögaðilar, sem eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðis­réttar í lögaðila og hver um sig á a.m.k. 10% hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðis­réttar í lögaðilanum, eiga ásamt viðkomandi lögaðila meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðis­réttar í öðrum lögaðila. Til eignar­hluta og atkvæðis­réttar einstaklinga í lögaðilum samkvæmt þessum tölulið telst jafnframt eignar­hlutur og atkvæðis­réttur maka og skyldmenna í beinan legg.“

Þá segir: „Lögaðilar, sem inna af hendi framlög til stjórnmála­samtaka eða fram­bjóðenda, skulu sérgreina heildar­fjárhæð slíkra framlaga í ársreikningum sínum. Telja skal saman framlög tengdra aðila.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár