Gagnrýna heilbrigðisráðherra fyrir að vilja skerða athafnafrelsi fólks án fullnægjandi raka

„Þetta plagg heilbrigðis­ráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmda­stjóri Félags atvinnu­rekenda, um rafrettu­frumvarp Óttars Proppé.

Félag atvinnu­rekenda gagnrýnir frumvarps­drög Óttars Proppé heilbrigðis­ráðherra um rafrettur og telur þau illa undirbúin og skorta rökstuðning. „Þetta plagg heilbrigðis­ráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað. Það er ástæða til að vinna þetta mál mun betur og draga úr þeim inngripum í athafna- og atvinnu­frelsi sem felast í frumvarps­drögunum,“ er haft eftir Ólafi Stephensen, framkvæmda­stjóra félagsins, í frétta­tilkynningu.

Ólafur Steph­en­sen

Í umsögn sem félagið sendi velferðar­ráðuneytinu er bent á að engin greinar­gerð fylgi frumvarps­drögunum og því sé engin leið að sjá hvaða greinar frum­varpsins eigi rætur að rekja til Evrópu­tilskipunar og hverjar ekki. Bent á að skiptar skiptar skoðanir séu meðal lækna um rafsígarettur og skaðsemi eða skaðleysi þeirra. Því sé undarlegt að frum­varpinu fylgi ekki mat ráðuneytisins á rann­sóknum og álitum lækna­samfélagsins.

„Telur FA að afstaða ráðuneytisins verði að byggja á haldbærum rökum þar sem vísindaleg gögn um rafsígarettur og áhrif þeirra eru lögð til grund­vallar,“ segir í umsögninni. „Lýðheilsurök eru fyrir því að notkun rafsígarettna afstýri heilsu­tjóni, með því að reykinga­menn hætti að reykja og færi sig yfir í notkun þeirra í staðinn. Jafnframt eru rök fyrir því að það kunni hafa neikvæð áhrif á lýðheilsu að ungt fólk sem byrjar að fikta við rafsígarettur leiðist síðar út í tóbaks­reykingar. Ekkert hefur komið fram um það hvernig þessi rök voru vegin saman áður en ráðuneytið komst að þeirri niður­stöðu sem fram kemur í frum­varpinu.“

Félag atvinnu­rekenda gagnrýnir jafnframt að lagt sé til án rökstuðnings að sömu takmarkanir verði settar á notkun rafsígaretta og reyk­tóbaks og að óheimilt verði að nota þær á tilteknum stöðum. „Bann á tiltekinni háttsemi er viðurhlutamikið inngrip í athafna­frelsi manna sem verður að byggja á fullnægjandi gögnum. Varla er ástæða til að banna notkun rafsígaretta í tilteknum rýmum nema sýnt sé fram á að hún valdi fólki í rýminu sambærilegum skaða og tóbaks­reykingar. Þá má velta því upp hvaða rök standi til þess að hindra sýnileika rafsígaretta og áfyllingar­íláta í verslunum, eins og lagt er til í 5. gr. frum­varpsins, meðan t.d. nikótín­tyggjó, sem gegnir sama hlutverki þ.e. að aðstoða fólk við að hætta að reykja, er sýnilegt viðskipta­vinum. Hér líkt og í öðrum málum verður að gæta jafnræðis og meðalhófs.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár