Dýpkunarkostnaður Landeyjahafnar bókfærður sem fjárfesting hjá Vegagerðinni

Búið að verja meira fé í að dæla sandi úr Landeyja­höfn en kostaði að byggja hana og er dýpkunar­kostnaður á árunum 2011-2020 fjór­faldur miðað við upphaflegar áætlanir. Ríkis­endurskoðun gagnrýnir að Vega­gerðin bókfæri dýpkunar­kostnað sem fjár­festingu.

Herjólfur leggst að bryggju í Landeyjahöfn. Vegagerðin segir dýpkunarþörf hafa stórminnkað með nýju skipi, en Ríkisendurskoðun bendir á að kostnaðurinn sé enn langt umfram áætlanir eftir að nýja skipið hóf siglingar.
Herj­ólfur leggst að bryggju í Land­eyja­höfn. Vega­gerðin segir dýpk­un­ar­þörf hafa stór­minnkað með nýju skipi, en Rík­is­end­ur­skoðun bendir á að kostn­að­ur­inn sé enn langt umfram áætl­anir eftir að nýja skipið hóf sigl­ingar. Mynd: Arnar Þór

Ríkis­endurskoðun segir ljóst að allar áætlanir um rekstur Landeyja­hafnar hafi verið „mjög vanáætlaðar“ og gagnrýnir stofnunin að kostnaður vegna dýpkun hafnarinnar hafi ekki verið bókfærður sem rekstrar­kostnaður á undan­förnum árum, eins og eigi að gera.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri stjórnsýslu­úttekt um framkvæmda- og rekstrar­kostnað Landeyja­hafnar, sem kynnt var fyrir stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis í morgun. Ríkis­endurskoðun ákvað að ráðast í úttektina af eigin frumkvæði.

Í úttektinni kemur fram að kostnaður vegna dýpkunar hafnarinnar hafi ekki verið bókfærður sem rekstrar­kostnaður, heldur sem fjár­festingar­kostnaður, þar sem fjár­veitingar til dýpkunarinnar komi af fjárfestingarlið í fjárlögum. „Þetta gagnrýnir Ríkis­endurskoðun og bendir á að kostnað vegna viðhalds­dýpkunar beri að færa sem rekstrar­kostnað hafnarinnar,“ segir í athugasemd stofnunarinnar.

Búið er að verja meira fé í að dæla sandi frá og úr Landeyja­höfn en það kostaði að byggja höfnina á sínum tíma. Stofn­kostnaður við höfnina nam tæpum 3,33 milljörðum á meðan að 3,66 milljörðum var varið í að dýpka höfnina frá því hún var tekin í notkun og þar til í lok árs 2020.

Kostnaðarsamt að þróa dýpkunaraðferðir, segir Vegagerðin

Í viðbrögðum Vega­gerðarinnar við aðfinnslum Ríkis­endur­skoðunar um færslu dýpkunar­kostnaðar sem fjár­festingar­kostnaðar segir að ljóst sé að frá því að höfnin opnaði hafi farið mikill tími í að þróa dýpkunar­aðferð sem hentar til þess að viðhalda dýpi í höfninni.

„Slíkt er kostnaðar­samt og stór hluti af miklum kostnaði fyrstu árin er rakinn til þess. Ekkert dýpkunar­verkefni á Íslandi, og þó víðar væri leitað, er jafn krefjandi og í Landeyja­höfn og því var mikilvægt að þróa aðferðir sem geta virkað,“ segir Vega­gerðin einnig.

Mestur varð kostnaðurinn árið 2015, en það ár var gerð tilraun með að dýpka verulega mikið framan við hafnar­mynnið, í von um að sú aðgerð myndi minnka dýpkunar­þörf komandi vetrar. Sú aðgerð skilaði ekki árangri og hefur ekki verið reynd aftur.

Dýpkunarkostnaður enn mjög hár

Í úttekt Ríkis­endur­skoðunar er dregið fram að saman­lagður kostnaður við dýpkun Landeyja­hafnar á árunum 2011-2020 hafi numið hátt í 3,7 milljörðum króna sem áður segir, en að í áætlunum Siglinga­stofnunar hafi verið gert ráð fyrir því að kostnaðurinn á þessu tímabili yrði um 900 milljónir, m.v. verðlag hvers árs. Kostnaður við dýpkun hafnarinnar hafi því verið fjór­faldur miðað við upphaflegar áætlanir.

Rétt er að taka fram að forsendur fyrir byggingu hafnarinnar gerðu ráð fyrir því að nýr Herjólfur yrði keyptur samhliða hafnar­framkvæmdum. Það var ekki gert, nýji Herjólfur var ekki tekinn í notkun fyrr en árið 2019 og því var notast við skip sem risti dýpra í lengri tíma en lagt var upp með. Aurburður úr Markar­fljóti vegna jökulhlaupa og eldgossins í Eyja­fjallajökli setti einni strik í reikninginn.

Samkvæmt upplýsingum sem Vega­gerðin veitti Ríkis­endurskoðun hefur nýr Herjólfur gjör­breytt dýpkunar­þörf hafnarinnar. Ríkis­endurskoðun vekur þó eftir sem áður athygli á því í úttekt sinni „að dýpkunar­kostnaður er enn mjög hár og langt umfram upphaflegt mat.“

Árleg framlög vegna dýpkunar hafnarinnar eru áætluð 334 milljónir króna fram til ársins 2024, samkvæmt samgöngu­áætlun, af alls 433 milljónum sem áætlaðar eru í árlegan rekstur hafnarinnar á næstu árum.

Hefði þurft að vanda betur til verka við kaup á botndælubúnaði

Fram kemur í skýrslunni að Ríkis­endurskoðun telji að Vega­gerðin hefði þurft að „ígrunda betur“ kaup sín á botn­dælubúnaði fyrir Landeyja­höfn og rekur að um umtals­verða fjár­festingu hafi verið að ræða. Búnaðurinn sjálfur kostaði 100 milljónir keyptur til landsins en alls fóru 874 milljónir í þetta verk samkvæmt af fjárlögum áranna 2019 og 2020.

„Fljótlega eftir að búnaðurinn kom til landsins árið 2020 kom í ljós að afköst hans myndu ekki réttlæta kostnað við uppsetningu og var því hætt við verkið í miðjum klíðum. Um var að ræða kostnaðar­sama fjár­festingu sem reyndist ekki grund­völlur fyrir. Þó svo að eitthvert gagn sé af fjár­festingunni og framkvæmdum henni tengdum sem nýtist til frambúðar við Landeyja­höfn beinir Ríkis­endurskoðun því til Vega­gerðarinnar að vanda betur undir­búning verka sinna í fram­tíðinni,“ segir í athugasemd Ríkis­endur­skoðunar vegna þessa.

Vega­gerðin tekur að nokkru leyti undir gagn­rýnina og segir að sá hluti verksins sem sneri að botn­dælubúnaði, „hafi ekki verið nógu vel ígrundaður“. Stofnunin segir þó að verkefnið, sem fól einnig í sér aðrar breytingar á Landeyja­höfn hafi verið „mjög mikilvægt varðandi kyrrð innan hafnar.“

„Rafvæðing skipsins hefði ekki verið möguleg án þessarar framkvæmdar þar sem ekki er hægt að hlaða skipið nema í mikilli kyrrð. Veglagning út á garðsenda er mikil öryggis­aðgerð en ef til þess kemur að um óhapp eða slys verði getur skipt sköpum að geta ekið út á garðs­endana í björgunar­aðgerðum. Ekki má gera lítið úr þessum framkvæmdum þó svo að hinn hluti verk­efnisins, sem sneri að botn­dælubúnaði, hafi ekki verið nógu vel ígrundaður. Vega­gerðin tekur undir það mat Ríkis­endur­skoðunar,“ segir í viðbrögðum stofnunarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár