Súr Sigmundur kallar Bjarna farþega og segir að hann hljóti að hætta í stjórnmálum

Formaður Miðflokksins, sem er ekki inni í myndinni í núverandi stjórnar­myndunar­viðræðum, segir að Bjarni Benediktsson hljóti að ætla að sleppa að bjóða sig fram ef hann samþykkir núverandi forsendur.

Sigmundur og Bjarni
Sig­mundur og Bjarni Ekki er verið að vinna að end­ur­teknu sam­starfi þeirra á milli. Mynd: Pressphotos

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kallar Katrínu Jakobs­dóttur sósíal­ista og segir Bjarna Benediktsson vera farþega sem hljóti að hætta í stjórn­málum, ef hann fellst á forsendur núverandi stjórnar­myndunar­viðræðna, í færslu sinni um viðræðurnar. Sjálfur hafði Sigmundur farið fram á stjórnar­myndunar­umboð eftir kosningarnar í lok október, en virtist hvorki vera inni í myndinni fyrir myndun vinstri stjórnar né íhalds­stjórnar frá vinstri til hægri. Hann finnur báðum stjórnar­myndunar­viðræðum margt til foráttu og segir þær fyrri „leik­sýningu“.

Fyrir fjórum árum rúmum vann Sigmundur að því með Bjarna að mynda ríkis­stjórn. Fóru þeir saman í sumar­bústað fjöl­skyldu Bjarna við Þingvalla­vatn, borðuðu vöfflur með rjóma, fóru í göngu, grilluðu og báðu um óskalag í útvarpinu, Wild Boys með Duran Duran.

Nú er Sigmundur hins vegar ekki hluti af stjórnar­myndunar­viðræðum fyrr­verandi félaga hans, Bjarna Benedikts­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, formanns Framsóknar­flokksins, heldur Katrín Jakobs­dóttir. Í færslunni virðist Sigmundur reyna að reka fleyg í samstarfið.

„Óvenjuleg hegðun“ 

Sigmundur kallar Katrínu sósíal­ista og segir Bjarna Benediktsson og Sjálfstæðis­flokkinn sýna „einkar óvenju­lega hegðun“. Hann sé „farþegi í allri þessari atburðarás“.

„Auk þess áformar hann að brjóta blað með því að gera sósíal­ista að forsætis­ráðherra á Íslandi í fyrsta skipti.“

„Formaður flokksins þráir nú að komast í ríkis­stjórn með fólki sem hefur um langt skeið kallað hann glæpamann og öðrum verri nöfnum. Hann leitast við að koma til valda fólki sem gekk hart fram við að reyna að koma fyrr­verandi formanni Sjálfstæðis­flokksins og forsætis­ráðherra í fangelsi, ásamt fjármála­ráðherra flokksins. Auk þess áformar hann að brjóta blað með því að gera sósíal­ista að forsætis­ráðherra á Íslandi í fyrsta skipti. Full ástæða verður til að óska Katrínu Jakobs­dóttur til hamingju með að ná þessum áfanga og að hafa tekist ætlunar­verkið með því að beygja bæði grasrót eigin flokks og allan Sjálfstæðis­flokkinn samtímis. Það er ekki lítið afrek.“

Þá segir hann skattkerfis­breytingarnar munu sýna hvort hægri eða vinstri verði sterkara í viðræðunum. „Ef formaður Sjálfstæðis­flokksins gefur eftir bæði forsætis­ráðuneytið og efnahags­málin má heita öruggt að hann ætli sér ekki að verða í framboði í næstu kosningum.“

Og Sigmundur vandar Framsóknar­flokknum ekki heldur kveðjurnar. „Nú er útlit fyrir að markmiðið um bandalag Sjálfstæðis­flokks og sósíal­ista náist með hjálp Framsóknar­flokksins.“

Hagsmunaárekstur afhjúpaður - hótar lögsókn

Sigmundur hafði því sem næst hætt að mæta á Alþingi og nefndar­fundi þingsins eftir að hann tapaði formanns­kosningu í Háskóla­bíói í október í fyrra, hvaðan hann yfirgaf salinn samstundis við úrslitin og sagði síðar að brögð hefðu verið í tafli. Aðdrag­andinn að því að flokks­menn kusu annan formann var að Sigmundur Davíð hafði reynst vera í leyndum hagsmuna­árekstri persónulegrar og opinberrar stöðu sinnar sem forsætis­ráðherra, þar sem félag sem var áður í eigu hans og eiginkonu hans, sem Sigmundur sendi konu sinni að helmingi fyrir einn Bandaríkjadal, átti meira en hálfs milljarðs króna kröfu í þrotabú íslensku bankanna sem Sigmundur sýslaði með sem fors­sætis­ráðherra. Sigmundur hafði sem forsætis­ráðherra það hlutverk að tryggja að hagsmunir ráðherra væru uppi á borðinu og siða­reglum ráðherra fylgt, en gerði það ekki í eigin tilfelli. Sigmundur hefur hótað þremur fjöl­miðlum málsókn vegna umfjöllunar um hagsmuna­árekstur hans sem lá hulinn á aflands­svæði áður en sýnt var fram á hann í umfjöllun um Panama­skjölin. Hann vann hins vegar kosninga­sigur í Alþingis­kosningunum í lok október og fékk 10,9 prósent atkvæða á landsvísu og sjö þingmenn kjörna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár