Annar stór skjálfti á Reykjanesi

Skjálfti sem mældist 4,6 stig varð rétt fyrir 6 í morgun á Reykjanesi, á svipuðum slóðum og stóri skjálftinn í gærkvöldi sem reyndist 5 stig. Grjóthrun varð í nágrenni upptak­anna.

Fjöldi skjálfta hefur orðið á Reykjanesi síðustu klukkustundir.
Fjöldi skjálfta hefur orðið á Reykja­nesi síð­ustu klukku­stundir. Mynd: Skjáskot Veðurstofa Íslands

Jarð­skjálfta­hrina er nú á Reykjanesi og mældist stór skjálfti, 4,6 stig, nú klukkan 5.46 í morgun. Klukkan 23.36 í gær varð skjálfti sem mældist 5 stig. Fjöldi smærri skjálfta hefur fylgt og hafa um tuttugu þeirra, samkvæmt óyfirförnum frum­niðurstöðum, verið 3 stig eða stærri frá miðnætti. Upplýsingar hafa borist veður­stofunni um grjóthrun í Festar­fjalli sem er um sex kíló­metrum suðvestur af upptökum skjálftans.

Stóri skjálftinn í gær varð um þrjá kílómetra norður af Fagradals­fjalli á Reykjanesi. Samkvæmt óyfirförnum mælingum úr sjálf­virkum mælum var hann 4,4 en að því er fram kemur í tilkynningu frá almanna­varna­deild ríkis­lögreglu­stjóra reyndist hann 5 að stærð.

Sá skjálfti fannst víða, meðal annars á höfuð­borgar­svæðinu, á Stokks­eyri, í Vestmanna­eyjum og í Borgarnesi.

Samkvæmt upplýsingum frá veður­stofunni urðu fleiri en 700 skjálftar við Fagradals­fjall í gær og viðbúið að þeir verði fleiri.

Ekki er hægt að útiloka fleiri stóra skjálfta á svæðinu í þessari hrinu, segir í tilkynningu almanna­varna.

Í janúar hófst landris við fellið Þorbjörn skammt frá Grindavík samhliða jarð­skjálfta­hrinu. Um tíma stöðvaðist landrisið en um miðjan júní hafði land þar risið um 12 sentí­metra.

Jörð hefur skolfið víðar á Íslandi undan­farið. Á Norður­landi hefur jarð­skjálfta­hrina einnig verið í gangi.

Vísbendingar um að Grímsvötn búi sig undir eldgos

Vísindaráð almanna­varna hittist á fundi 10. júní vegna jarð­hræringa á Reykja­nesskaga og nýlegra mælinga í Grímsvötnum. Á fundinum kom fram að um miðjan maí hófst þensla að nýju vestan við Þorbjörn sem benti til þess að þriðja kviku­innskotið á þessu svæði frá áramótum væri að eiga sér stað. Innskotið virðist hafa byrjað að myndast um miðjan maí en jarð­skjálfta­virkni jókst nokkru síðar eða þann 30. maí. Í þeirri hrinu var stærsti skjálftinn 3,5 stig.

Á fundinum var einnig rætt um stöðuna í Grímsvötnum, en Jarð­vísinda­stofnun og Veður­stofa Íslands voru þar við mælingar í byrjun júní. Á virkni­tímabilum eins og verið hefur frá 1996, er algengt að 5-10 ár séu milli gosa í Grímsvötnum. Síðast gaus þar 2011 og var það nokkuð stórt og kröftugt gos. Á þeim tíma sem liðinn er frá gosinu benda mælingar til þess að kvika hafi safnast fyrir og þrýstingur í kviku­hólfi aukist. Í byrjun júní mældu starfs­menn Veður­stofunnar brennisteins­díoxíð, SO2, í suðvestur­horni Gríms­vatna, nærri þeim stað þar sem gaus 2004 og 2011. „Þetta er í fyrsta sinn sem SO2 mælist í svo miklu magni í eldstöð á Íslandi án þess að eldgos sé í gangi og er vísbending um grunn­stæða kviku“, var haft eftir Melissu Anne Preffer, sérfræðingi á Veður­stofu Íslands, í tilkynningu. Sagði hún að til viðbótar við aukið magn SO2, færi svæðið þar sem jarðhiti á yfirborði mælist stækkandi.

Mögulegt að eldgos brjótist út í lok jökulhlaups

Í tilkynningu vísinda­ráðsins kom fram að aðstæður í Grímsvötnum væru þannig að vatnsborð standi fremur hátt auk þess sem kviku­þrýstingur væri hár í kviku­hólfinu undir öskjunni. „Því verður að gera ráð fyrir þeim möguleika að eldgos brjótist út í lok jökulhlaups, sem gæti orðið á næstu vikum eða mánuðum. Alls ekki er víst að svona fari, jökulhlaup á næstunni þarf ekki að leiða til eldgoss.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár