Vopnabúr á heimili fjöldamorðingjans

Mikið vopnabúr fannst á heimili fjölda­morðingjans Stephen Paddock, sem drap 59 og særði 527 í Las Vegas. Tala látinna gæti hækkað þar sem margir eru alvarlega særðir.

Tala látinna, eftir skot­árásina við hótelið Mandalay Bay Resort í Las Vegas, er nú komin upp í 59 og særðir eru 527. Margir þeirra eru alvarlega særði og gæti tala látinna hækkað enn.

Samkvæmt fréttum New York Times hefur lögreglan fundið mikið vopnabúr á heimili fjölda­morðingjans, hins 64 ára gamla Stephen Paddocks, en hann skaut sig til bana áður en hann var yfir­bugaður af sérsveitar­mönnum á 32. hæð hótelsins, þaðan sem hann lét kúlum rigna yfir ríflega 20 þúsund manna tónleika.

Leitað var á heimili Paddocks í borginni Mesquite í Nevada-ríki í dag og fannst þar vopnabúr. Þetta staðfesti lögreglu­stjórinn í Vegas, Joseph Lombardo. Á meðal þess sem fannst heima hjá Paddock voru sprengjur, skotvopn og þúsundir skotfæra.

Inn á hótel­herbergi hans­fundust í það minnsta 16 byssur, sem hann notaði við að skjóta á fólkið með skelfi­legum afleiðingum.

Lombardo segir að rannsókn málsins sé nú í algjörum forgangi, og er þar ekki síst einblínt á að reyna að skýra umhverfi Paddocks og hvað það var sem rak hann til að framkvæma þessi verstu skotárás í sögu Banda­ríkjanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár