Bretland sé að verða „veiki maðurinn í Evrópu“

Efna­hags­horfur hafa versnað í Bret­landi og Banda­ríkj­unum um leið og þær hafa batnað á Evru­svæð­inu, sam­kvæmt nýrri skýrslu AGS.

Sérfræðingar eru áhyggjufullir yfir stöðu Bretlands
Sér­fræð­ingar eru áhyggju­fullir yfir stöðu Bret­lands Mynd: Birgir Þór Harðarson

AGS hefur dregið úr hag­vaxt­ar­vænt­ingum sínum fyrir Bretland og Banda­ríkin, en sömu­leiðis gerir sjóð­ur­inn ráð fyrir auknu vægi evru­svæð­is­ins. Í kjöl­far breyt­ing­anna hefur Guardian vísað til Bret­lands sem „veika mann­inn í Evrópu.“

Hag­vaxt­ar­vænt­ingar AGS birt­ust í skýrslu sjóðs­ins, sem er upp­færð árs­fjórð­ungs­lega, um horfur í efna­hags­málum um allan heim. Í skýrsl­unni er gert ráð fyrir að hag­vöxtur muni aukast um 3,5% á alþjóða­vísu í ár og um 3,6% á næsta ári. Sjóð­ur­inn býst því við nokk­urri upp­sveiflu á næstu miss­erum, en met­inn alþjóða­hag­vöxtur í fyrra var 3,2%. Þrátt fyrir ágætar efna­hags­horfur eru hag­vaxt­ar­töl­urnar enn lægri en þær voru fyrir fjár­mála­hrunið 2008.

Helstu breyt­ingar í skýrsl­unni síðan í apríl eru þær að sjóð­ur­inn hefur dregið úr vænt­ingum fyrir Bretland og Banda­ríkin. Í Bret­landi hefur neysla verið undir vænt­ingum, aðal­lega vegna hækk­andi verð­bólgu und­an­far­inna mán­aða. Í Banda­ríkj­unum, hins vegar, hefur seðla­bank­inn gefið til kynna að vaxta­hækkun sé á næsta leiti, en vænta má þess að hækk­unin muni hægja eitt­hvað á hag­vext­inum.

Samhliða versn­andi horfum í Banda­ríkj­unum og Bret­landi má gæta auk­innar bjart­sýni á evru­svæð­inu. Búist er við miklum hag­vexti í Frakk­landi, Þýska­landi, Ítalíu og á Spáni þar sem vöxtur á fyrsta árs­fjórð­ungi hefur verið ofar vænt­ingum. Í því til­liti nefnir sjóð­ur­inn að póli­tísk áhætta hjá Evr­ópu­sam­band­inu hafi minnkað á árinu, en Evr­ópu­sinn­aðir stjórn­mála­flokkar hafa unnið í kosn­ingum í þremur stórum Evr­ópu­löndum það sem af er árs. Þróunin er einnig skýr ef litið er á gjald­miðla land­anna, þar sem evran hefur styrkst mikið gegn pund­inu og Banda­ríkja­dal á síð­ustu mán­uðum.

Á vef Guardian í dag lýstu tveir fyrr­ver­andi starfs­menn pen­inga­stefnu­nefndar seðla­banka Englands yfir áhyggjum af þró­un­inni. Hag­vöxtur í Bret­landi væri sá minnsti af öllum evru­ríkj­unum, verð­bólga sé komin aftur á kreik og kaup­máttur launa hafi staðnað. Samkvæmt þeim hefur útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu leitt til þess að landið sé að verða að „veika mann­inum í Evrópu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár