Bretar heltast úr lestinni í iðnaðarframleiðslu

Geng­is­lækkun punds­ins hefur ekki skilað sér í sterk­ari útflutn­ingi, en iðn­að­ar­fram­leiðsla í Bret­landi hefur ekki náð sömu hæðum og í Asíu og Evrópu í kjöl­far auk­innar eft­ir­spurnar á alþjóða­vísu.

Útflutningur breskra verksmiðja er lítill, þrátt fyrir veikingu pundsins.
Útflutn­ingur breskra verk­smiðja er lít­ill, þrátt fyrir veik­ingu punds­ins. Mynd: EPA

Breskar verk­smiðjur nutu ekki góðs af auk­inni eft­ir­spurn í Evrópu og Asíu í júní, þrátt fyrir veik­ingu punds­ins. Þetta kemur fram á vef Reuters.

Aukning fram­leiðslu­magns verk­smiðja á evru­svæð­inu síð­ustu vikur var sú mesta í sex ár. Sömu­leiðis jókst fram­leiðsla í mörgum Asíu­ríkjum sam­hliða auk­inni eft­ir­spurn á raf­vörum á alþjóða­vísu.

Vöxt­ur­inn náði hins vegar ekki í jafn­miklum mæli til Bret­lands þar sem eft­ir­spurn­inni er haldið niðri af tveimur þáttum, vax­andi verð­bólgu­vænt­ingum og hæg­ari launa­vexti, sam­kvæmt könnun sem Reuters lagði fram. Báðir þættir eru taldir vera afleið­ingar væntrar úrsagnar Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar bentu til þess að áhrif veik­ingar á gengi punds­ins hafi ekki skilað sér að fullu leyti, en búist var við því að geng­is­lækkun myndi gera útflutn­ings­greinar Breta sam­keppn­is­hæf­ari. Sú hefur ekki verið raunin, en frétta­stofa Reuter telur að þessar óvæntu nið­ur­stöður gætu frestað vaxta­hækkun hjá seðla­banka Englands (Bank of England).

Óttast er að verð­bólga muni fara vax­andi í Bret­landi á næst­unni í kjöl­far Brexit, en seðla­bank­inn hefur gefið út vís­bend­ingar þess efnis að hann muni hækka stýri­vexti sína til þess að halda henni í skefjum.

Seðla­banka­stjóri Englands, Mark Carney, sagð­ist ætla að bíða og sjá hvernig hag­kerfið muni þró­ast í kjöl­far útgöngu­við­ræðna Breta við Evr­ópu­sam­bandið, þá sér­stak­lega hvort fjár­fest­ing og útflutn­ingur gæti vegið á móti lít­illi neyslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár