Ljúfsár tapræða breyttist í sigurræðu

Víkingur Heiðar Ólafsson vann til Grammy-verðlauna fyrir plötu sína þar sem hann flytur Goldberg-tilbrigði Bachs. Hann fylgdist með verðlauna­hátíðinni í heimahúsi í Berlín þar sem hann fagnaði nýjum útgáfu­samningi við Universal og Deutche Grammophon. Hann var búinn að undirbúa ljúfsára tapræðu sem hann snaraði yfir í sigurræðu á örskots­stundu.

Viðurkenning
Við­ur­kenn­ing Víkingur Heiðar Ólafsson á tón­leikum í Hörpu í októ­ber. Hann vann til Grammy-verð­launa sem afhent voru í gær fyrir plötu sína þar sem hann flytur Golberg-til­brigðin eftir Johann Sebast­ian Bach. Mynd: Mummi Lú

Ég er bara hérna í smá göngutúr með konunni minni, Höllu, við erum í Berlín og vorum að fá okkur rótsterkt og gott kaffi af því að við sváfum ekkert rosalega mikið í nótt,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson, píanisti og nýbakaður Grammy-verðlauna­hafi. 

Grammy-verð­launin fóru fram í 67. sinn í Los Angeles í gær í skugga gróður­elda sem hafa geisað í Kaliforníu síðustu vikur. Víkingur er á tónleika­ferðalagi um Evr­ópu og horfði á Grammy-verð­launin í Berlín heima hjá forstjóra Deutche Grammophon ásamt yf­ir­mönn­um hjá út­gáfu­fyr­ir­tæk­inu Universal. Víkingur hefði vissulega viljað vera viðstaddur en aðstæður leyfðu það hreinlega ekki. „Það er svo mikið sorgar­ástand í Los Angeles vegna eldanna sem hafa farið illa með fólk. Grammy-verð­launin voru allt öðruvísi í ár en hefur verið. Við ákváðum á endanum að fagna þessu í Berlín,“ segir hann, en öll­um viðburðum á veg­um út­gáfu­fyr­ir­tæk­isins hefur verið af­lýst.

Víkingur var tilnefndur í flokki klassískra einleiks­hljóðfæra­leikara fyrir plötu sína þar sem hann leikur Goldberg-tilbrigði Johanns Sebastians Bachs, sem gefin er út af þýska útgáfu­fyrirtækinu Deutsche Grammophon. Auk hans voru Andy Akiho, Curtis J Stewart, James Blachly & Experiential Orchestra, Mak Grgić & Ensemble Dissonance og Seth Parker Woods tilnefndir.

Puntkurinn yfir i-ið

Víkingur og Halla snæddu kvöldverð heima hjá forstjóra Deutche Grammophon og fögnuðu í leiðinni nýjum útgáfu­samningi hans við Universal og Deutche Grammophon. „Svo kveiktum við á sjón­varpinu klukkan eitt eftir miðnætti til að athuga hvernig þetta færi en ég var tilbúinn að tapa. Þannig varð sigurinn ennþá sætari fyrir vikið. Þetta var geggjað kvöld,“ segir Víkingur. Í raun hélt hann sína eigin litlu verðlauna­hátíð í heimahúsi í Berlín. „Grammy-hátíð í yndislegu húsi og í ótrúlega góðra vina hópi og samstarfs­manna. Þetta var stórkostlegt.“

Verð­launa­hafiVíkingur Heiðar var til­nefndur í flokki klass­ískra ein­leiks­hljóð­færa­leik­ara og eru þetta hans fyrstu Grammy-verð­laun.

Þakklæti er honum efst í huga. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er tilnefndur til Grammy-verðlauna og ég var búinn að búa mig undir vonbrigðin að vinna ekki. Ég átti ekki von á að vinna. Þetta er stórt fyrir mig. Ég var á tónleika­ferðalagi í heilt ár að spila Goldberg-tilbrigðin sem fyrir mér er stórkostlegasta tónverk tónlistar­sögunnar, að minnsta kosti sem ég þekki. Að fá að eiga þennan tíma með þessu verki í heilt ár, spila um öll Banda­ríkin og um allan heim, þá kemur þetta núna eins og punkturinn yfir i-ið. Þetta er bara dásamlegt.“

„Það að vinna verð­laun hefur nú aldrei hjálpað neinum að gera betri músík. En það þarf ekki endi­lega að skemma fyrir“
Víkingur Heiðar Ólafsson
(sig­ur­ræðan sem hann flutti í heima­húsi í Berlín þegar ljóst var að hann vann til Grammy-verð­launa)

Víkingur undirbjó ekki sigurræðu í þetta sinn, hann segir nógu margar slíkar hafa farið í ruslið í gegnum tíðina. „Ég var búin að undirbúa ljúfsára tapræðu í huganum en svo þurfti ég að segja nokkur orð í stofunni. Ræðan var einföld: „Það að vinna verðlaun hefur nú aldrei hjálpað neinum að gera betri músík“. En svo bætti ég við sigur­ræðuna: „En það þarf ekki endilega að skemma fyrir“. Þannig þetta var mín stutta ræða til þeirra,“ segir hann og hlær. 

Platan kom út fyrir rúmu ári og hefur Víkingur ferðast vítt og breitt um heiminn og flutt tilbrigðin í heild sinni á tónleikum, alls 96 sinnum. „Þetta var ævintýralegt ár og það hefur verið ótrúlegt að kynnast sjálfum mér í gegnum þessa tónlist. Tónlist Bachs verður alltaf að spegla, bæði fyrir þá sem spila hana og þá sem hlusta á hana.“

Vildi óska að Bach væri á lífi í dag

Að flytja Goldberg-tilbrigðin meira og minna í heilt ár hefur kennt honum fjölmargt um sjálfan sig. „Sem og um sköpunina í tónlist og hvernig stórkostlegt verk eins og þetta er aldrei eins tvö kvöld, hvað það breytist mikið og hvað við erum ólík frá degi til dags. Og eigum að vera það og eigum að fagna því að þannig er það.“ Víkingur er einnig þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa Bach, bæði sem píanisti en líka sem manneskja. „Hvaða áhrif Bach hefur á fólk úr ólíkustu menningar­heimum og hvað hann talar sterkt til fólks. Eina sem ég vildi væri að hann vissi í dag hversu yfir­gengilega mikla hlustun tónlist hans hefur hjá ólíkustu hópum af fólki. Það er svo fallegt.“ 

Hlustenda­hópur Víkings undan­farið ár er mjög fjöl­breyttur, allt frá ungu fólki yfir í eldra fólk, úr öllum þjóð­félagshópum. Hann tekur dæmi. „Í Boston þegar ég spilaði verkið þar var ég stoppaður af öryggis­verði á flug­vellinum, ég hélt að hann ætlaði að taka mig í gegn fyrir að hafa gleymt vatns­brúsa eða eitthvað, en þá hafði hann verið að hlusta á Golberg-tilbrigðin á tónleikum hjá mér kvöldið áður. Þetta er ein saga af mörgum hvernig Bach talar til breiðs fólks af fólk. Það veitir mér gleði.“

Víkingur er enn að meðtaka verð­launin. Hann svaf ekki mikið í nótt. „Það fyndna í lífinu er að þó að maður vinni verðlaun þá situr maður alltaf uppi með sjálfan sig. Svo er bara kominn mánudagur og þá er tími til að æfa sig og vinna og undirbúa næstu upptöku og leita fegurðarinnar.“

Með nýjum útgáfu­samningi við Universal og Deutche Grammophon ætlar Víkingur að verja meiri tíma í hljóð­verinu. „Ég ætla að gefa í. Ég er að reyna að finna jafnvægið í mínu lífi, í tónlistinni, á milli þess að ferðast um heiminn og spila alla þessa tónlistina og til að hafa tíma til að endurnýja mig og til að gera uppgötvanir og tilraunir í hljóð­verinu. Þessi samningurinn er nákvæmlega það sem ég vil á þessum tíma­punkti. Hann gerir mér kleift að helga mig upptökunum. Það er falleg leið til að ná til fólks sem hefur ekki aðgengi að tónleika­sölunum.“


Ítar­legra við­tal við Víking Heiðar Ólafsson verður að finna í Heim­ild­inni sem kemur út á föstu­dag, 7. febr­úar. 
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár