Hátt í 80 íbúðir í nýju fjölbýli á Ármannsreit

Íbúar í Túnum í Reykjavík segja sumir að síðasta tækifæri borgar­yfirvalda til að skipuleggja hverfis­garð fyrir þau sem búa á svæðinu sé að fara forgörðum, með skipulags­breytingum á lóðinni Sóltún 2-4, sem bíða samþykktar borgar­ráðs.

Í Sóltúni 2 (t.v.) er í dag rekið hjúkrunarheimili. Til stendur að stækka það hús og byggja svo allt að 79 íbúðir í stakstæðu fjölbýlishúsi við Sóltún 4 sem er til hægri á teikningunni. Gildandi skipulag gerir ráð fyrir hjúkrunarrýmum þar.
Í Sóltúni 2 (t.v.) er í dag rekið hjúkr­un­ar­heim­ili. Til stendur að stækka það hús og byggja svo allt að 79 íbúðir í stak­stæðu fjöl­býl­is­húsi við Sóltún 4 sem er til hægri á teikn­ing­unni. Gildandi skipu­lag gerir ráð fyrir hjúkr­un­ar­rýmum þar. Mynd: Úr skipulagstillögu.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykja­víkurborgar samþykkti í síðustu viku fyrir sitt leyti deili­skipulags­breytingar á lóðinni Sóltún 2-4, en þar stendur til að byggja við núverandi hjúkrunar­heimili á lóðinni, auk þess að reisa stakstætt fjölbýlishús með allt að 79 íbúðum á 5 til 6 hæðum. Málinu hefur verið vísað til loka­afgreiðslu í borgar­ráði.

Gildandi skipulag reitsins gerði ráð fyrir því að hjúkrunar­heimilið yrði stækkað og ný álma þess á allt að fjórum hæðum reist, auk þess sem lágreist tengi­bygging yrði byggð á milli húsanna tveggja. Reiturinn er kallaður Ármanns­reitur, en íþrótta­félagið Ármann var þarna áður með íþrótta­mannvirki og félags­aðstöðu á svæðinu.

Lóðar­hafar eru félögin Sóltún fasteignir ehf. og Fjallasól ehf., en þessi félög hafa skuld­bundið sig til þess að greiða Reykja­víkurborg dágóða summu fyrir aukinn byggingar­rétt, eða 13.500 krónur hið minnsta fyrir hvern einasta fermetra byggingar­magns ofanjarðar sem bætist við frá gildandi skipulagi og sömu upphæð fyrir hvern einasta fermetra sem ætlaður verður undir íbúðir en ekki hjúkrunar­rými samkvæmt nýja skipulaginu. Alls má ætla að þessi upphæð verði hátt á annað hundrað milljónir.

Breytingarnar á skipulaginu hafa verið umdeildar meðal íbúa í grenndinni, sem settu fram ýmsar athuga­semdir við nýja skipulagið er það var til umsagnar hjá borginni fyrr á árinu. Í mörgum þeirra var ráðstöfun lóðar­hluta númer 4 undir stærðarinnar fjölbýlishús gagnrýnd á þeim grund­velli að með byggingu þess yrði endanlega út um mögu­leikann á því að búa til vænan og grænan almennings­garð fyrir íbúa hverfisins.

Fulltrúi VG greiddi atkvæði gegn skipulaginu

Einnig var málið umdeilt í umhverfis- og skipulags­ráði. Fulltrúi Vinstri grænna í ráðinu, Líf Magneu­dóttir borgar­fulltrúi, greiddi atkvæði gegn samþykkt ráðsins og sagði í bókun sinni að svæði hefði „verið fallegra með minna byggingar­magni og stórum og fjöl­breyttum almennings­garði“ enda væri „vöntun á nálægu andrými innan hverfisins“. Líf sagði jafnframt að borgin hefði átt, á fyrri stigum málsins, „að leggja sig fram við að eignast lóðina fyrst hætt var við áform um að stækka hjúkrunar­heimilið“.

„Þétting byggðar á að tryggja sjálfbærni hverfa þar sem verslun, þjónusta, lykil­stofnanir, afþreying og andrými tvinnast vel saman. Það virðist hins vegar ekki verið búið að hugsa þá samþættingu hverfisins til enda í þessu máli og því erfitt að sjá að uppbyggingin samræmist að öllu leyti Aðal­skipulagi Reykja­víkur,“ sagði einnig í bókun Lífar. Sjálfstæðis­menn í ráðinu sátu svo hjá við afgreiðslu málsins.

Minna landrými fari undir byggingar

Fulltrúar borgar­stjórnar­meirihlutans sögðu hins vegar í sinni bókun að lóðin væri á skipulögðu íbúða­svæði samkvæmt aðal­skipulagi og lengi hefði staðið til að byggja þar, þó reyndar hefði staðið til að byggja hjúkrunar­heimili en ekki almennar íbúðir.

Í bókun fulltrúa Samfylkingar, Fram­sóknar, Pírata og Viðreisnar sagði að verið væri að auka byggingar­magnið, með hækkun bygginga og stækkun bíla­kjallara, en á móti var bent á að þar sem hætt væri við tengi­byggingu á milli húsanna drægi úr yfirborðs­fleti uppbyggingarinnar.

Fulltrúar meirihlutans vísuðu til svara fulltrúa embættis skipulags­fulltrúa við athuga­semdir íbúa og að niður­staða greiningar væri að skugga­varp breyttist óverulega vegna breyttrar tillögu og væri innan þeirra marka sem við mætti búast þegar uppbygging ætti sér stað í þéttri borgar­byggð.

„Mikilvægt að hugað sé vel að göngu- og hjóla­leiðum á svæðinu og umferðar­öryggi allra vegfarenda sé tryggt. Suður af uppbyggarreitnum er áfram gert fyrir almennings­garði fyrir hverfið sem mikilvægt að þróa í kjölfarið, í góðu samráði við nærumhverfið,“ sagði í bókun fulltrúa meirihlutans.

Útsýni, skuggamyndun, umferðarmál og hverfisgarður

Sem áður segir bárust ýmsar athuga­semdir frá íbúum í grenndinni er skipulags­tillagan var auglýst í vor. Margar voru þær áþekkar, jafnvel algjör­lega samhljóða. „Með breytingu á byggingunni, með því að hækka hana, mun skugginn hylja algjör­lega pallinn okkar á þeim tíma sem njótum sólarinnar mest,“ sögðu íbúar í Mánatúni 2, sem sögðust helst hafa keypt íbúð sína þar til þess að njóta pallsins og sólarinnar.

„Stærð húss og fjöldi íbúða að Sóltúni 4, samkvæmt þessu breytta skipulagi, er allt of mikill að mínu mati. Þessu getur ekki annað en fylgt stóraukin bíla­umferð, sem sérstak­lega mun valda ónæði hjá íbúum í Mánatúni 1 með innkeyrslu og fjölda bílastæða alveg við Sóltúnið rétt hjá íbúðum á fyrstu hæð hússins við Mánatún 1,“ sagði íbúi í Mánatúni 1, sem einnig sagði skugga eiga eftir að falla á neðstu hæðir þess húss.

„Nú þegar er staðan sú að það er vart hægt að komast út úr hverfinu eftir kl. 15. á daginn vegna umferðar­tafa í Borgar­túni og Nóatúni. Hér hef ég ekki minnst á bílastæða­málin sem er upp á sömu bókina lært,“ sagði íbúi í Mánatúni 5. „Það litla andrými sem er til staðar mun skerðast alveg. Aðeins verður hægt að sjá í næsta húsvegg og inn um gluggana hjá næstu nágrönnum. Hvaða gæði eru nú það? - ekkert prívatlíf lengur,“ sagði íbúi í Mánatúni 6.

Engin borgarleikvöllur fyrir börn í 2.500 manna hverfi

Allnokkrir íbúar settu svo nafn sitt við athugasemd í nokkrum liðum sem hófst á eftir­farandi tilvitnun í nýtt aðal­skipulag borgarinnar fram til 2040: „Skipulags­starf að gæðum byggðar miðar að því að búa til staði og umhverfi þar sem fólk lifir og hrærist en ekki eingöngu vinnur og sefur. Áherslan er lögð á að útivistar­svæði, gangstéttir og hverfi borgarinnar myndi umgjörð um lifandi og aðlaðandi staði sem ýta undir aukin og gagnkvæm samskipti.“

Í athugasemdinni sagði að skipulags­tillagan í Sóltúni gengi þvert gegn þessum hugmyndum, og einnig skipulagi reitsins í því sama aðal­skipulagi, þar sem hámarkshæð bygginga hefði verið skilgreind fjórar hæðir. Tekið skal fram að í svari skipulags­fulltrúa borgarinnar við þessari athugasemd segir að gert sé ráð fyrir 5 hæða byggingu á þessum stað, sem geti jafnvel verið 6-7 hæðir ef efstu hæðir sé inndregnar.

Í sömu athugasemd íbúa segir að tillögurnar fari gegn stefnu aðal­skipulagsins um að hverfis­garðar verði í mest 500 metra fjarlægð frá íbúðum. Bent er á að frá fyrir­huguðu fjölbýlis­húsi við Sóltún 4 sé 800 metra loftlína að næsta almennings­garði, sem sé Klambratún, og að þangað sé göngu­leiðin um kílómeter.

„Í þessu hverfi er sérstak­lega brýn þörf á almennings­garði – hverfið er rammað inn af þungum umferðar­götum og börn eiga því ekki auðvelt með að fara á leiksvæði utan hverfisins. Nú er hins vegar enginn leik­völlur á vegum borgarinnar innan hverfisins. Sá nálægasti er í Stórholti og nálægasti bolta­völlur er við Háteigs­skóla. Börn í hverfinu á yngri stigum grunn­skóla fara ekki fylgdar­laust á þessi svæði og tækifæri þeirra til útivistar því takmörkuð,“ segir í þessari athugasemd, sem nokkrir íbúar í hverfinu gera að sinni, sem áður segir.

Bent er á að í hverfinu búi nú um 2.500 íbúar, og þar starfi auk þess nokkur þúsund manns til viðbótar. „Hvergi á svæðinu er opið grænt almennings­rými. Fyrir­sjáanlegt er að íbúum fjölgi enn frekar á næstu árum með uppbyggingu svæðisins sem hefur verið kallað Hátún+, þar sem er gert ráð fyrir allt að átta hæða háum íbúða­byggingum. Auk þess stendur til að byggja nokkur hundruð íbúðir við Laugaveg, ofan við hverfið. Það hlýtur því í besta falli að teljast mikil skammsýni að hefja þá auknu uppbyggingu sem boðuð er í nýju aðal­skipulagi á því að koma í veg fyrir að hægt verði að byggja upp grænt svæði í miðju hverfisins. En eina auða svæðið í hverfinu er það sem hér er til umræðu, og er mitt á milli hjúkrunar­heimilis og skóla, sem hlýtur að teljast ákjósanleg stað­setning fyrir hverfis­garð,“ segir í athugasemdinni frá íbúum.

Embætti skipulags­fulltrúa hjá borginni brást við þessum athuga­semdum, og fleirum, í umsögn sinni um málið sem sett var fram í október.

Í svari við því að til stæði að byggja of mikið á reitnum benti skipulags­fulltrúi á að allt frá því að skipulags­breytingar voru gerðar árið 2005 hefði legið fyrir að byggt yrði á lóðinni nokkuð umfangs­mikið mannvirki. Breytingarnar sem nú væri verið að gera væru í anda fyrri breytinga og þess að nýta þetta land miðsvæðis í borginni vel.

„Reiturinn er innan áhrifa­svæðis Borgar­línu og hágæða almennings­samgangna og miðlægt stað­settur í nágrenni við fjölmennan atvinnu­kjarna. Því eru sterk rök fyrir því að nýta svæðið vel,“ segir í umsögn embættis skipulags­fulltrúa.

Athuga­semdum þess efnis að fyrir­hugaðar byggingar væru of háar var svarað með þeim hætti að þróun byggða­mynstursins þarna í kring hefði verið sú að hús væru frá 5 og allt upp í 10 hæðir. Því væri þessi uppbygging í góðum takti við nágrennið. Hvað áhyggjur íbúa af skugga­varpi varðar voru breytingarnar sagðar óverulegar frá gildandi deili­skipulagi, og „innan þeirra marka sem við má búast þegar uppbygging á sér stað í þéttri borgar­byggð“.

Einhverjir íbúar settu fram áhyggjur af því að missa útsýni sitt með tilkomu nýbyggingarinnar við Sóltún 4. Því svarar skipulagsfultrúi með eftir­farandi hætti: „Benda má á að aðilar í þéttri borgar­byggð geta ekki búist við því að óbyggðar og vannýttar lóðir í nágrenni þeirra haldist óbyggðar eða óbreyttar um aldur og æfi og að réttur til óbreytts útsýnis er ekki bundið í lög.“

Ekki borgarland

Embætti skipulags­fulltrúa svaraði svo ákalli íbúa um að lóðin yrði fremur nýtt undir stóran hverfis­garð með því að benda á að lóðin væri í eigu ákveðinna aðila, en væri ekki vannýtt borgar­land. Reykja­víkurborg hefði því takmarkað með það að gera hvað hún væri nýtt í.

„Lóðar­hafar komu með erindi/fyrir­spurn til skipulags­fulltrúa þar sem þeir lýstu áhuga á því að breyta nýtingu húss á vannýttum hluta lóðarinnar í íbúðarhús í stað hjúkrunar­heimilis, ein af skýringunum sem settar voru fram var að lóðar­hlutinn hefði verið boðin fram til uppbyggingar hjúkrunar­heimilis en ekki var áhugi fyrir því af hálfu þeirra sem taka ákvarðanir um það. Tekið var jákvætt í að vinna breytingu á deili­skipulagi m.t.t. þess. Þar sem umrædd lóð er ekki borgar­land er ekki gerlegt að fella niður heimildir sem eru á henni og gera grænt svæði þess í stað, enda gekk endur­skoðun deili­skipulags reitsins 2005 út á það að skipta miðbiki reitsins upp þannig að annars vegar yrði frekari uppbygging að norðan verðu og hinsvegar að gert yrði útvistar­svæði til suðurs. Ekkert hefur breyst í því en[n] er til staðar ráðstöfun þess efnis að gera útivista­svæði þar,“ segir í umsögn skipulags­fulltrúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár