Stallað stórhýsi í Borgartúni má verða með allt að 100 íbúðum

Á bak við Hótel Cabin í Borgar­túni verður heimilt að koma fyrir allt að 100 íbúðum, samkvæmt skipulags­tillögu sem yfirvöld í borginni hafa samþykkt. Húsið lækkar um eina hæð frá eldra skipulagi, en íbúar í nágrenninu telja það þó margir verða of hátt.

Gróf þrívíddarteikning af húsinu sem fyrirhugað er að byggja á lóðinni.
Gróf þrí­vídd­ar­teikn­ing af hús­inu sem fyr­ir­hugað er að byggja á lóð­inni. Mynd: Úr deiliskipulagstillögu

Umhverfis- og skipulagsráð Reykja­víkurborgar samþykkti í síðustu viku breytingar á deili­skipulagi á lóðinni Borgartún 34-36, sem fólu í sér að eldra skipulagi frá 2017 var breytt lítillega, byggingar­magnið aukið og hámarks­fjöldi íbúða í stórhýsi sem þar stendur til að byggja aukinn úr 86 upp í 100, þrátt fyrir að húsið verði einni hæð lægra en áður stóð til, eða á 4-8 hæðum í stað 4-9 hæða, eins og heimilt var samkvæmt eldra skipulagi reitsins.

Á lóðinni, sem er fyrir aftan Hótel Cabin, er í dag atvinnu­húsnæði sem byggt var á sjötta og til áttunda áratug síðustu aldar. Vélsmiðjan Afl lét reisa þar skemmu með skábursta­þaki árið 1958 sem ferða­þjónustu fyrir­tækið Guðmundur Jónasson hf. keypti árið 1961 og flutti fyrir­tækið í kjölfarið höfuð­stöðvar sínar þangað. Guðmundur Jónasson reisti svo stein­steypt hús á lóðinni árið 1978, sem í dag er fjögurra hæða hátt. Einnig er á lóðinni tvílyft hús sem byggt var 1964 og hýsti Vélsmiðju Ögmundar Jónassonar.

Allt húsnæði á lóðinni verður rifið til þess að rýma fyrir nýja fjölbýlis­húsinu, en því hefur lítt verið haldið við á undan­förnum árum og lóðin að miklu leyti nýtt sem geymslu­svæði undir bifreiðar af hinum ýmsu gerðum.

Nýja húsið mun breyta ásýnd svæðisins mjög, en gert er ráð fyrir að það verði byggt í hálfhring utan um sameiginlega skjólgarð fyrir miðju. Bílastæði verða að mestu leyti neðanjarðar, en í skipulags­tillögunni segir að um 80 prósent bílastæða geti verið í bíla­geymslunni.

Tugir nágranna mótmæltu hæð hússins

Þrátt fyrir að heimildir hafi verið til staðar í eldra í skipulagi fyrir enn hærri byggingu, lutu flestar innsendar athuga­semdir nágranna að því að hæð byggingarinnar væri of mikil.

„Við teljum að svo há bygging og margar íbúðir skapi óviðunandi þrengsli af ýmsu tagi fyrir þá sem þegar búa á þessu svæði. Við óskum eftir að ekki verði reist hærri bygging en sex hæðir á umræddri lóð,“ sagði í skila­boðum sem 58 íbúar í nærliggjandi húsum við Sóltún skrifuðu nafn sitt við.

Íbúar í Sóltúni 11 sem sendu inn umsögn sögðu jákvætt að hæsti punktur yrði lækkaður um eina hæð, en töldu það ekki nóg. „Rétt væri að fækka íbúðum og að hæsti punktur yrði 6 hæðir sem svo stallaðist niður í fjórar hæðir,“ sagði í umsögn þeirra. Sömu íbúar sögðu aukna umferð um Sóltúnið skapa óþægindi fyrir alla íbúa, og væru þau þó næg fyrir, mótmæltu þessu gífurlega byggingar­magni og sögðu það engum til góðs „nema ef vera skyldi borgar­sjóði og handhöfum lóða“ og nefndu skugga­varp og vind­strengi, máli sínu til stuðnings.

Einnig töldu íbúarnir „galið“ að áform væru um það að nýta jarðhæð hússins að hluta undir verslun og aðra þjónustu. „Verslun er að færast æ meira á netið og miðað við smæð okkar standa smáverslanir og smærri þjónustu­fyrirtæki ekki undir sér ef gert er ráð fyrir þeim í hverjum byggingar­kjarna. Hvers vegna þarf að blanda verslunum og þjónustu inn í íbúðarhús? Hvar eiga viðskipta­vinir að leggja? Á bíla­stæðum nærliggjandi húsa?“ sögðu íbúarnir.

Einnig nefndu þeir að íbúar í nærliggjandi húsum hefðu „verulegar áhyggjur af ásókn í bílastæði sem tilheyra þeirra húsum“ vegna fyrir­liggjandi skipulags­tillögu að Borgar­túni 34-36.

Í svörum frá embætti skipulags­fulltrúa Reykja­víkurborgar er athuga­semdum um hæð bygginga svarað með þeim hætti að verið sé að lækka húsið frá gildandi skipulagi og athuga­semdum um að fjöldi þeirra sé of mikill svarað með þeim hætti að breytingin, og hið aukna byggingar­magn ofanjarðar sem stefnt sé að, mæti betur markmiðum skipulags um fjöl­breytta samsetningu íbúða­gerða og nefnt að stærðir íbúða í fyrir­huguðu húsi yrðu „allt frá minni eignum fyrir einstaklinga eða fyrstu kaupendur upp í stórar fjölskyldu­íbúðir,“ sem væri til þess fallið að auka „möguleika á flutningi innan hverfisins“.

Athuga­semdum um umferðar­álag í Sóltúninu var svarað með þeim hætti að lóðin væri staðsett austast í hverfinu og aðkoma akandi umferðar frá Borgar­túni væri næst lóðinni, sem ætti því „ekki að vera óþægilega íþyngjandi.“

„Garðrými hússins er beintengt við göngu- og hjóla­stígakerfið svo skólabörn komist á göngu­stígakerfið og að brúnni gegnum garðinn og þau fara því ekki yfir götu fyrr en við Helgateig. Vegna nálægðar við megin atvinnu­svæði borgarinnar eru íbúar hússins og hverfisins í heild líklegir til að velja umhverfis­væna samgöngu­máta,“ segir svo í umsögn skipulags­fulltrúa, um áhyggjur sem settar voru fram af öryggi barna í umferðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár