Trump: Við Pútín áttum gott samtal

Donald J. Trump Bandaríkja­forseti segir að andstæðingar hans þoli ekki að hann vilji eiga góð samskipti við Rússa.

Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, segir að hann og Vladímir Pútín, forseti Rússlandi, hafi átt gott samtal í Asíuferð hans, en þeir tóku þátt í Apec-fundinum í Víetnam. Á honum var meðal annars rætt um efnahags­legan uppgang í Asíu og hvernig horfurnar væru til framtíðar litið, meðal annars með tilliti til aukinnar þátttöku erlendra fjárfesta.

Trump tjáði sig um samskipti sín við Pútín á Twitter, eins og við var að búast, og lét þar andstæðinga sína finna fyrir því með vel völdum orðum. Sagði hann meðal annars að andstæðingar hans gætu ekki sætt sig við það, að hann vildi halda sambandinu við Pútín góðu. Fram kemur í umfjöllun BBC að Trump og Pútín hafi rætt um rann­sóknina á afskiptum Rússa af kosningunum í Banda­ríkjunum og stöðu mála í Sýrlandi.

„Hann sagðist alls ekki hafa skipt sér af kosningunum,“ sagði Trump meðal annars um samtal sitt við Pútín. Hann ítrekaði síðan, engu að síður, að hann hefði fullt traust á leyni­þjónustu­stofnunum Banda­ríkjanna.

Robert Mueller, sérstakur saksóknari, stýrir nú rannsókn á afskiptum Rússa af kosningunum í Banda­ríkjunum í fyrra og einnig hvort framboð Trumps hafi með einhverjum hætti verið í samskiptum rússnesk yfirvöld.

Nú þegar hafa fyrstu ákærurnar birst, sem byggja á rann­sókninni, en þær beinast að Paul Manafort, sem var um tíma kosninga­stjóri Trumps, og viðskipta­félaga hans. Þeir eru ákærðir fyrir samsæri og peninga­þvætti, með annars með því að nýta aflandsfélög í tengslum við samstarf við yfirvöld í Úkraínu.

Þá hefur Wall Street Journal greint frá því að teymi Muellers hafi nú Michael Flynn, fyrr­verandi þjóðar­öryggis­ráðgjafa Trumps, til rann­sóknar og er talið að nægilegar sannanir liggir nú fyrir, til að ákæra hann og son hans, Michael Flynn Jr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár