Peningum dælt í herinn en skorið niður í öllu öðru

Yfirmenn í hernum mótmæla fyrir­huguðum niður­skurði til þróunar­aðstoðar.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Bandarísk stjórn­völd, með Donald J. Trump Bandaríkja­forseta í broddi fylkingar, ætla sér að auka fjárútlát til Bandaríkja­hers um 54 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega sex þúsund milljörðum króna, en skera niður um svipaða upphæð í öðrum mála­flokkum, eins og þróunar­aðstoð og umhverfis­málum.

Frá þessu greindi Trump á blaðamanna­fundi í gær, en aukningin mun að mestu koma til á næsta ári. Heildar­framlög til Bandaríkja­hers fara í tæplega 600 milljarða Bandaríkja­dala með aukningunni, en Trump sagði að með þessari aukningu yrði öryggið sett á oddinn. „Við ætlum að gera meira fyrir minna,“ sagði Trump.

Ekki liggur fyrir hvernig niður­skurðurinn verður útfærður, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post, en markmiðið með þessar aðgerð er að skerpa á stefnu Trumps, um að Banda­ríkin séu í forgangi (American First), og að skorið verði niður í svo til öllum öðrum mála­flokkum á móti.

Demó­kratar hafa mótmælt þessum áformum og sagt að niður­skurðurinn í hinum ýmsu verkefnum muni að lokum grafa undan störfum víða um Banda­ríkin og dýpka félagsleg vandamál.

Yfir 120 hers­höfðingjar og aðmírálar í her og flota Banda­ríkjanna hvetja Donald Trump, Bandaríkja­forseta, og leiðtoga á Banda­ríkjaþingi, til að láta það ógert að skerða fjár­veitingar til þróunar­hjálpar og milli­ríkja­samskipta til að vega upp á móti auknum útgjöldum til hernaðar­mála, að því er segir á vef CNN.

Þeir David Petraeus, fyrr­verandi hers­höfðingi og forstjóri leyni­þjónustunnar, CIA, og James Stavridis, fyrr­verandi aðmíráll og yfir­hers­höfðingi Atlantshafs­banda­lagsins eru á meðal þeirra fjölmörgu, háttsettu yfirmanna í her, flugher og flota Banda­ríkjanna sem skrifa undir áskorun til forsetans um að hætta við boðaðan niður­skurð á þessum sviðum.

Þeir telja að niður­skurðurinn muni grafa undan öryggi í heiminum og auka á hættuna á því að ófriður brjótist út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár