Stefnt að því að rýmka heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta erlendis upp í 65 prósent

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi sem hækkar þakið á heimild lífeyris­sjóða til að fjárfesta erlendis um eitt prósentu­stig á ári frá árinu 2024 til 2038.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Drög að frumvarpi sem rýmkar verulega heimildir lífeyris­sjóða til að fjárfesta erlendis hefur verið birt í samráðs­gátt stjórn­valda. Þar er lagt til að heimild lífeyris­sjóða til að fjárfesta í erlendum gjald­miðlum verði færð úr 50 í 65 prósent í fimmtán jafn stórum skrefum frá árinu 2024 til 2038.

Í lok janúar síðastliðins átti íslenska lífeyris­sjóðakerfið erlendar eignir sem metnar voru á 2.244 milljarða króna. Þær voru 34,3 prósent allra eigna sjóðanna og hafa tvöfaldast í krónum talið á rúmum þremur árum.

Lífeyris­sjóðir landsins hafa þrýst mjög á að heimildirnar verði hækkaðar þar sem margir sjóðir eru komnir ansi nálægt hámarks­hlutfallinu nú þegar. Viðbúnar sveiflur á gengi íslensku krónunnar gera það að verkum að sjóðir geta tæplega farið mikið yfir 45 prósent hverju sinni.

Í erindi sem Agni Ásgeirsson, formaður áhættu­nefndar Lands­samtaka lífeyris­sjóða, hélt á stefnu­mótunar­fundi samtak­anna 6. september í fyrra kom fram að hlutfall erlendra fjár­festinga flestra íslenskra lífeyris­sjóða væri komið yfir 35 prósent og mest í 43 prósent. Sumir sjóðir gætu því lítið hreyft sig sem stendur utan landsteinana.

Í erindi Agna var því velt upp hvort það ætti yfirhöfuð að hafa tiltekið hámark á erlendum eignum íslenskra lífeyris­sjóða. Í mörgum grann­ríkjum sé ekki kveðið á um neitt hámark á erlendum eignum lífeyris­sjóða, til dæmis í Danmörku, Noregi, Belgíu, Írlandi og Hollandi.

Komið í veg fyrir að gengisþróun þrýsti sjóðum í að selja

Í frumvarps­drögunum sem birt voru í samráðs­gáttinni í dag er einnig lagt til að lífeyris­sjóðir þurfi að lágmarki að eiga eignir í sama gjald­miðli og væntar lífeyris­greiðslur þeirra til næstu þriggja ára.

Auk þess er þar að finna tillögu um að hámark gjaldeyris­áhættu verði eingöngu bindandi á viðskipta­degi fjár­festingar. Það hefur í för með sér að ef gengis­þróun eða verðþróun á mörkuðum leiðir til þess að erlendar eignir lífeyris­sjóða fara umfram hámarkið verður sjóðum ekki gert að selja eignir til þess að komast niður fyrir hámarkið líkt og nú er. Það hefur í för með sér að ef gengis­þróun eða verðþróun á mörkuðum leiðir til þess að erlendar eignir lífeyris­sjóða fara umfram hámarkið verður sjóðum ekki gert að selja eignir til þess að komast niður fyrir hámarkið líkt og nú er.

Í frum­varpinu er líka að finna tillögu sem varðar afleiðu­viðskipti lífeyris­sjóða sem eiga að auka möguleika þeirra til að nýta afleiður til gjaldeyris­varna.

Að lokum er þar lögð til sú megin­regla að lífeyris­sjóðir birti sjóð­félögum yfirlit og upplýsingar með rafrænum hætti á vefsvæði sem krefst rafrænnar auðkenningar sjóð­félaga. Sjóð­félagar geti þó áfram óskað eftir því að fá send gögn og upplýsingar þeim að kostnaðar­lausu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár