Dómsmálaráðherrann ætlar ekki að láta Trump valta yfir sig

Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, segist ekki ætla að láta ráðuneyti sitt bogna undan pólitískum þrýstingi.

Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, segir að á meðan hann sé dómsmála­ráðherra þá muni ráðuneyti hans ekki láta pólitískan þrýsting hafa áhrif á störf þess.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur gagnrýnt Sessions, meðal annars fyrir að láta rannsókn Roberts Muellers, saksóknara, óáreitta.

Trump hefur viljað að dómsmála­ráðuneytið stoppi rann­sóknina, en hún beinist að því hvort Rússar hafi beitt áhrifum sínum til að hafa áhrif á framgang kosninganna í Banda­ríkjunum 2016.

Sessions er sagður standa fastur á því, að láta Trump ekki hafa áhrif á þá sem stýra rann­sókninni, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.

Óhætt er að segja að Trump sé undir miklum þrýstingi þessi misserin, eftir að fyrr­verandi kosninga­stjóri hans, Paul Manafort, og persónu­legur lögmaður hans til margra ára, Michael Cohen, voru fundnir sekir um lögbrot, þar á meðal skatt- og fjársvik, en Cohen játaði enn fremur að hafa greitt tveimur konum sem Trump átti í leynilegu ástar­sambandi við, samtals tæplega 300 þúsund Bandaríkja­dali, fyrir að þaga um sambandið við Trump. Cohen staðfesti að Trump hefði vitað af greiðslunum og fyrir­skipað þær.

Trump lét hafa eftir sér í dag, að ef hann yrði þvingaður til að hætta sem forseti Banda­ríkjanna, þá myndi það þýða hrun á verðbréfa­mörkuðum og miklu lakari staða efnahags­mála. „Margir yrðu mjög, mjög fátækir,“ sagði hann í viðtali við Fox News.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár