„Við segjum nei við úranvinnslu“

„Við ætlum að hlusta á kjósendurna, þeir eru órólegir. Við segjum nei við úran­vinnslu,“ sagði Múte Egede, formaður Inuit Ataqatigiit, flokksins sem fór með sigur af hólmi í grænlensku þing­kosningunum.

Múte Egede, formaður Inuit Ataqatigiit
Múte Egede, for­maður Inuit Ataqatigiit Mynd: EPA

Niður­stöður þing­kosninganna á Grænlandi benda til þess að námu­vinnslu­ævintýrið sem stefnt var að í suður­hluta landsins sé úti. Vinstri flokkurinn Inuit Ataqatigiit (IA) er sigurvegari kosninganna og getur ásamt flokknum Naleraq myndað stjórn. Báðir flokkarnir eru á móti því að fjöldi sjaldgæfra jarðefna, m.a. úran, verði unnið úr fjallinu Kuannersuit.

Hin fyrir­hugaða námu­vinnsla í nágrenni smábæjarins Narsaq var stóra kosninga­málið sem deilt var um í aðdrag­anda kosninga til grænlenska þingsins, Inatsisartut, og er niður­stöðurnar lágu fyrir í morgun, um að IA hefði hlotið 37 prósent atkvæða og tryggt sér tólf sæti á þinginu og Naleraq tryggt sér fjögur, er litið á það sem sterka vísbendingu um hver örlög námu­vinnslu­verk­efnisins verða. Formaður IA, Múte Bourup Egede, sagði er niður­staðan var ljós að verkefnið yrði stöðvað. „Við kvikum ekki frá því,“ sagði hann. „Við ætlum að hlusta á kjósendurna, þeir eru órólegir. Við segjum nei við úran­vinnslu.“

Jafnaðar­manna­flokkurinn Siumut hefur haft meirihluta á þinginu í áratugi eða allt frá árinu 1979 að undan­skildu einu kjör­tímabili. Hann er nú næst stærsti flokkurinn á eftir IA og hlaut 29,4 prósent atkvæða. Í ár eru 300 ár síðan að Danmörk tók völdin á Grænlandi. Smám saman hafa Grænlendingar fengið meiri sjálfs­stjórn en krafa um full sjálf­stæði hefur orðið sífellt háværari.

Námu­fyrirtækið Greenland Minerals hefur verið starfrækt á Grænlandi frá árinu 2007 og allan tímann haft það á stefnu­skrá sinni að opna námu í Kuannersuit. Þetta er því ekki í fyrsta sinn sem verkefnið er bitbein í kosninga­baráttunni í landinu. Það fékk þó aukna athygli í aðdrag­anda kosninganna nú, þegar kosið var bæði til þings- og sveitar­stjórna, eftir að lands­stjórnin, Naalakkersuisut, samþykkti fyrir sitt leyti umhverfis­mats­skýrslu um hina áformuðu vinnslu. Sú skýrsla er nú í kynningu meðal almennings og rennur athugasemda­frestur ekki út fyrr en 1. júní. Að því ferli loknu er það í höndum stjórn­málamanna að ákveða hvort að framkvæmda­leyfi til vinnslunnar verður gefið út. Af þessu sökum er litið svo á að úrslit kosninganna nú hafi snúist um skoðun Grænlendinga á verk­efninu. Formaður Siumut-flokksins, Erik Jensen, segist í samtali við dönsku sjónvarps­stöðina TV2 telja að andstaðan við námu­vinnsluna hafi orðið til þess að flokkur hans tapaði.

Stuðnings­menn námu­verk­efnisins telja að það gæti skipt sköpum fyrir efnahag Grænlands. Námu­fyrirtækið hefur sagt að um 300 störf muni skapast og var Siumut-flokkurinn fylgjandi því. Andstæðingar benda hins vegar á að námu­vinnslunni myndi fylgja mikið rask og óttast skammtíma- sem og langtíma­áhrif á náttúruna. Úran, sem er mjög óstöðugt og hættulegt efni, er ein af þeim auka­afurðum sem námu­gröfturinn hefði í för með sér. Í fjallinu er að finna fjölda sjaldgæfra jarðefna sem námu­fyrirtækið hafði ætlað sér að vinna. Sautján þeirra eru notuð til fram­leiðslu raftækja, allt frá snjall­símum til segul­ómtækja en einnig til að búa til vopn. Þessar fágætu tegundir efna urðu til þess að Grænland var um skeið kallað „fjársjóðs­kista Trumps“ en hann sagðist hafa hug á að kaupa landið si svona.

Skoðana­kannanir meðal almennings hafa sýnt að meirihluti Grænlendinga er á móti því að vinnslan verði að veruleika.

„Við byrjum á að fá okkur kaffi­bolla,“ segir Egede í samtali við Danska ríkis­sjónvarpið, spurður um hvaða flokks eða flokka hann horfi til í sambandi við stjórnar­samstarf. Á grænlenska þinginu er 31 þingsæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár